Morgunblaðið - 26.08.1986, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.08.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1986 21 Aðaldalur: Víg’slubiskups- hjónin voru kvödd í veg- legu samsæti Húsavík. VÍGSLUBISKUP sr. Sigurður Guðmundsson að Grenjaðar- stað kvöddu um fjögurhundruð Þingeyingar í veglegu samsæti að Idölum sl. föstudag. En séra Sigurður flytur nú heim að Hólum og situr staðinn, en síðast sat biskup á Hólum 1798. Til þessarar kveðjustundar höfðu boðað söfnuðir Grenjaðar- staðarprestakalls, Aðaldælahrepp- ur og kirkjukórasamband S-Þingeyinga. Veislustjóri var Þrá- inn Þórisson, skólastjóri Skútu- stöðum og voru margar ræður fluttar til presthjónanna og þeim þökkuð vel unnin störf og dyggileg þjónustu í meira en 42 ár. Fyrir hönd sóknarbarna ávarp- aði Halldóra Jónsdóttir, kennari, presthjónin Aðalbjörgu Halldórs- dóttur og sr. Sigurð, „sem setið hefðu staðinn með mikilli reisn og væru þau og fjölskyldan öll nú kvödd með söknuði; en miklu þakk- læti.“ Kveðju Aðaldælahrepps flutti Dagur Jóhannesson oddviti, kveðju Kirkjukórasambandsins Svanhildur Hermannsdóttir, kveðju Laugaskóla Óskar Ágústs- son og kveðju Húsmæðraskólans að Laugum Hjördís Stefánsdóttir, kveðju frá bókasafni Aðaldæla Jóhanna A. Steingrímsdóttir og kveðju sóknarpresta og samstarfs- manna í héraði sr. Örn Friðriksson, auk margra annarra sem tóku til máls. Auk þess sem skemmt var með söng kirkjukóra prófasts- dæmisins. Margar gjafir bárust presthjón- unum m.a. málverk frá Grenjaðar- stað eftir Hring Jóhannesson frá söfnuðum Grenjaðarstaðaprestakalls og Að- aldælahreppi. Vatnslitamynd eftir Sigurð Hallmarsson frá Lauga- skóla og mikið hljómplötusafn frá Kirkjukórasambandi S-Þingey- inga. Þessu veglega og virðulega hófi lauk svo með ávöipum presthjón- anna, Aðalbjargar Halldórsdóttur og vígslubiskups sr. Sigurðar, sem þökkuðu langt og ánægjulegt sam- starf við Þingeyinga og þá sérstak- lega samstarf með sóknarbörnum þeirra síðan 1944 að þau komu ung að hinum sögufræga stað Grenjaðarstað, sem þau kváðust nú flytja frá með söknuði. Fréttaritari. Morgunbladiö/Sigurður Pétur Bjömsson Um 400 Þingeyingar kvöddu sr. Sigurður Guðmundsson vígslubiskup, og konu hans Aðalbjörgu Halldórsdóttur, með samsæti í ídölum. Þau flytja nú frá Grenjaðarstað, þar sem þau hafa setið frá 1944, að Hólum í Hjaltadal. Morgunblaðið/Sigurður Pétur Bjömsson Að skilnaði voru þeim hjónum færðar margar gjafir, þ. á m. málverk frá Grenjaðarstað og vatns- litamynd frá Laugaskóla. TVÆR STÓRSVEITIR Tvær stórhljómsveitir skemmta gestum Súlnasalar föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveit Grétars Örvarssonar sem allir þekkja úr Átthagasalnum, kemur nú upp í Súlnasal og gerir allt vitlaust. Tveir nýjir menn hafa bæst í sveitina og ekki af lakari sortinni, þeir eru Stefán Stefánsson „super-saxisti" og Björn Thoroddsen „gítar-galdrakarl“. Pottþétt sveit! Og nú hefur hin stórskemmtilega söngsveit Þokkabót sem naut fádæma vinsælda hér á árum áður verið endurvakin, öllum til óblandinnar ánægju. Þeir munu svo sannarlega koma gestum Súlnasalar í gott söngstuð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.