Morgunblaðið - 26.08.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1986
31
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Álftanes
Blaðbera vantar á Suðurnesið.
Upplýsingar í síma 51880.
Málarar óskast
málarar óskast til vinnu í Osló, Noregi. Mik-
il vinna framundan. Leiguhúsnæði fyrir hendi
fyrir einstaklinga.
Þeir sem hafa áhuga leggi inn uppl. til augl-
deildar Mbl. fyrir föstudaginn 29. ágúst
merkt: „H-3050“.
Fataverksmiðjan
Gefjun
óskar að ráða starfsfólk í saumasal og á
fatapressu.
Upplýsingar hjá verkstjóra.
Fataverksmiðjan Gefjun,
Snorrabraut 56.
Sími 18840og 16638.
Sölumaður —
skrifstofumaður
Lítið heildsölufyrirtæki óskar eftir starfs-
manni hálfan daginn. Umráð yfir eigin bíl
æskilegt. Þarf að byrja strax. Tilboð merkt:
„Sjálfstæður — 8064“ sendist augld. Mbl.
fyrir 1. sept.
Starfsmaður óskast
Lítil prentstofa í borginni óskar eftir að ráða
starfsmann sem fyrst. Æskilegt er að við-
komandi hafi starfað á fjölritunarstofu.
Skriflegar umsóknir sendist augld. Mbl. fyrir
2. september merktar: „B — 1911“.
Frönsk stúlka
óskar eftir atvinnu. Er 23 ára gömul. Er með
próf í Túrisma. Talar frönsku , ensku og er
að læra íslensku. Góð vélritunarkunnátta.
Uppl. í síma 78782 eftir kl. 18.00.
Járniðnaðarmenn
Við leitum að röskum og áreiðanlegum suðu-
og járniðnaðarmönnum til húsgagnafram-
leiðslu. Reynsla nauðsynleg. Umsækjendur
þurfa að vera stundvísir og áhugasamir um
gæði íslensks iðnaðar og vilja framtíðar-
vinnu. Mötuneyti á staðnum. Vinnutími
8.00-16.00. Meðmæla eða tilvísunar í með-
mælendur óskað.
Upplýsingar veitir verkstjóri á staðnum.
%
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
STEINARS HF.
Skeifan 6
Kennara
vantar að heimavistarskólanum að Varma-
landi í Mýrasýslu í ensku og almenna
kennslu. Gott og ódýrt húsnæði, frír hiti.
Upplýsingar í símum 93-5300 og 93-5302.
Skólastjóri
Kennarar
Reykhólaskóla í Austur-BarðastrandarSýslu
vantar einn kennara næsta vetur við. al-
menna kennslu í 0-9 bekk. í skólanum eru
55 nemendur, rúmlega 20 í heimavist.
Heimavistargæsla er því í boði. íbúð í skólan-
um á góðum kjörum.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Steinunn
Rasmus í síma 93-4807 og 93-4731.
Skólastjóri.
Atvinna
Stúlkur vantartil verskmiðjustarfa nú þegar.
Sápugerðin Frigg
Lyngási 1, Garðabæ,
sími 51822.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða fóstrur og aðstoðar-
fólk á deildir eftirtalinna heimila:
Dagheimilin Dyngjuborg og Múlaborg.
Dagheimili/leiksk. Grandaborg og Hálsakot.
Leikskólana Tjarnarborg, Njálsborg og Holta-
borg.
Skólaheimilið Hólakot við Suðurhóla.
Uppl. veita forstöðumenn viðkomandi heim-
ila og umsjónarfóstrur á skrifstofu Dagvistar
barna í símum 27277 og 22360.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð,
á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Afgreiðslustarf
Starfskraftur óskast 25 ára eða eldri hálfan
eða allan daginn í snyrtivöruverslun við
Laugaveginn.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„C — 3145“ fyrir föstudagskvöld.
U7U
W il
MJÓLKURFÉLAG
REYKJAVÍKUR
LAUGAVEG1164 REYKJAVlK
PÖSTHÓLF 5236
Starfsmaður
óskast í fóðurverksmiðju.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 681907.
Sjúkraliðar —
athugið
Okkur bráðvantar 2-3 sjúkraliða til starfa við
Sjúkrahúsið á Egilsstöðum. Hvernig væri að
breyta til eitt ár eða svo?
Sjúkrahúsið er ekki stórt, en heimilislegt og
þar er góður starfsandi.
Á Héraði er náttúrufegurð rómuð jafnt sumar
sem vetur. Félagslíf er fjölbreytilegt á
Egilsstöðum, skíðaland og ýmsir skólar.
Við útvegum húsnæði. Hafið samband, það
kostar ekkert.
Upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri í s.
97-1631 eða framkvæmdastjóri í s. 97-1386.
Okkur vantar
nokkra harðduglega verkamenn til starfa
strax. Mikil vinna. Uppl. í síma 671210 eða
á Krókhálsi 1.
Gunnarog Guðmundursf.
Hver vill ekki hafa lokið
8 stunda vinnudegi kl. 13.00?
Okkur vantar morgunhresst starfsfólk í tiltekt
og pökkun frá kl. 05 í verksmiðju okkar,
Skeifunni 11.
Ennfremur vantar okkur glaðlegar og hressar
afgreiðslustúlkur í Álfheimabakaríið Hagamel
67.
Hafið samband sem fyrst í síma 83277, það
sakar ekki.
Brauð hf.,
Skeifunni 11.
Sölustarf í
heimilistækjadeild
Vörumarkaðurinn hf. óskar að ráða sölumann
til starfa í heimilistækjadeildina á Eiðistorgi.
í deildinni eru seld vönduð heimilistæki í
hágæðaflokki, t.d. Electrolux, Rowenta,
Gaggenau og Ignis, auk sjónvarps- og videó-
tækja.
Við leitum að áhugasömum og hugmyndarík-
um starfsmönnum, sem eru reiðubúnir að
takast á við spennandi og krefjandi verkefni.
Nánari upplýsingar veitir Jan Almkvist á
staðnum, þar sem jafnframt liggja frammi
umsóknareyðublöð.
©
Vörumarkaðurinn hf.
J Eiðistorgi 11, Seltjarnarnesi.
Sölustarf í
snyrtivörudeild
Vörumarkaðurinn hf. óskar að ráða snyrti-
fræðing til starfa í snyrtivörudeildinni á
Eiðistorgi 11. Vinnutími er aðra vikuna frá
kl. 9.00-13.00 og hina vikuna frá kl. 13.30-
19.00. Einnig óskum eftir að ráða starfsmann
á álagstímum eftir nánara samkomulagi.
Eingöngu snyrtifræðingar eða fólk með mikla
reynslu á sviði snyrtivörusölu kemurtil greina
í þessi störf.
Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Thors á
staðnum, þar sem jafnframt liggja frammi
umsóknareyðublöð.
Vörumarkaðurinnhí.
Eiðistorgi 11, Seltjarnarnesi.
Vantar þig vinnu?
Óskum eftir að ráða til framleiðslustarfa í
fyrirtæki okkar í 2-4 stöður. Störfin sem
auglýst eru tengjast framleiðslu á
piastvörum, einangruðum hitaveiturörum,
barkar-einingum o.fl., o.fl. Við bjóðum upp á
góða starfsaðstöðu, bónusvinnu að hluta til,
góðan starfsanda og framtíðarmöguleika í
starfi. Fyrirtækið er í örum vexti og eru
framleiðslugreinar bæði nýjar og þróaðar.
Umsóknum ásamt meðmælum skal framvísa
á skrifstofum okkar það sem frekari
upplýsingar eru veittar.
220 HAFNARFIRDI