Morgunblaðið - 26.08.1986, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1986
*
Guðfinna. 8 ára, Jóhannes, 9 ára, og Ása. 9 ára, með pysjur sem þau ætla að fara að sleppa.
Börn í Eyjum:
Bjarga þúsundum
lundapysja af götunum
Þegar pysjan er komin á legg yfirgefur lundinn hana, og hungrið 1
rekur svo pysjuna til að taka flugið. Margar villast til að fljúga á
ljósin í bænum að næturlagi.
Vestmannaeyjum.
ND ER svokallaður lunda-
pysjutími í hámarki í Vest-
mannaeyjum, þegar hundruð
barna bjarga þúsundum
lundapysja, afkvæmum lund-
ans, af götum og úr húsa-
görðum. Börnin sleppa síðan
lundapysjunum til flugs út
yfir sjó og snúa heim aftur í
fullvissu um að þau hafi unn-
ið góðverk. Sagan endurtek-
ur sig dag eftir dag þangað
til öllum pysjum hefur verið
bjargað.
Eftir að lundinn hefur alið
pysjuna og fært henni æti í lunda-
holuna, komið henni á legg,
yfirgefur hann afkvæmi sitt og
pysjan verður sjálf að horfast í
augu við lífið. Hún verður að kom-
ast á sjóinn og afla sér ætis sjálf.
Þegar hungrið sverfur að inní
myrkri holunni neyðist pysjan til
að paufast út og grípa til sjálfs-
bjargarviðleitninnar. I úteyjum og
á þeim stöðum þar sem lunda-
byggðin snýr beint að sjó er þetta
Börnin í Eyjum safna pysjunum saman og fara með þær næsta morgun niður í fjöru.
harla lítið mál fyrir pysjuna. Hún u
bara dembir sér framaf brúninni A
og í sjóinn, kafar samstundis eftir <í
æti. En á stöðum, þar sem ekki ri
sést til sjávar þegar pysjan skreið- u
ist úr holu sinni, vandast málið. j.
Þá er freistandi að fljúga á ljós-
in í bænum og árlega „nauðlenda"
þúsundir lundapysja á götum
bæjarins, í húsagörðum og fjöl-
mörgum öðrum stöðum á Heima- ^
ey. Og þá er pysjan hjálparlaus
og þarf á aðstoð að halda. Hún
nær sér ekki á flug aftur og er
algjör rati í öllum umferðarregl-
um. Árlega farast margar pysjur
í umferðarslysum í Eyjum.
Og þá kemur til björgunarað-
gerða bamanna í bænum, starf 1
sem á sér varla hliðstæðu. Frá
því fréttist um fyrstu pysjuna í
bænum, venjulega snemma í
ágústmánuði, halda hundruð
bama á hverju kvöldi út í nátt-
myrkrið með vasaljós í hendi og 1
pappakassa í fangi, í leit að lunda-
pysjum í nauðum. Vandlega er
leitað í hveiju skúmaskoti og pysj- ■
?b
Smjörstciktir sveppir
sjálfsagt mál.
Mý VERÐLÆKKLM 100 grömm af smjöri kosta aðeins kr 23-30.
- Ágústmáltíð í hœsta gœðaflokki
69-11-00
Auglýsingar 22480
Afgreiðsla 83033
— j»*