Morgunblaðið - 26.08.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1986
5
Veiðimaður kastar flugu á Landaklöppinni í Soginu fyrir nokkru,
en hann hafði ekki erindi sem erfiði frekar en vel flestir sem
bleytt hafa færi í landi Syðri-Brúar í sumar, þar hafa veiðst inn-
an við 20 laxar í sumar.
Enn einn
stórlaxinn ...
Enn einn risalaxinn hefur verið
dreginn á þurrt á þessu mikla
stórlaxasumri. Var það 28 punda
hængur sem Árni Gíslason hjá
ísco veiddi í Hnausastreng í
Vatnsdalsá í gærmorgun á maðk.
Viðureignin var að sögn ekki
söguleg, það var togast á í hálf-
tíma en þá gafst hængurinn mikli
upp og lét draga sig upp úr. Fisk-
urinn var nokkuð leginn og því
trúlega nokkuð þyngri þegar hann
var nýrunninn, e.t.v. um 30 pund.
Þá voru komnir 1075 laxar á
land af aðalsvæði Vatnsdalsár og
talsvert meira úr allri ánni, því
fyrir nokkru höfðu 130 laxar ver-
ið skráðir í veiðibækur silunga-
svæðisins og milli 60 og 70 höfðu
veiðst á „milli fossa", efst á lax-
genga hluta árinnar. Þetta er
talsvert meiri veiði heldur en
greint var frá í frétt Morgun-
blaðsins um heildarlaxveiði á
landinu á sunnudaginn.
Hópurinn sem lauk 3 daga veiði
á laugardaginn hélt heim með 57
laxa í bílskottunum og þar á und-
an veiddust 97 laxar á jafn
löngum tíma. Þar á undan var
fyrsti íslendingahópurinn eftir
útlendingatímann og veiddust þá
125 laxar á þremur dögum. Veitt
er með sex stöngum.
Laxinn er um alla á, hefur
dreift sér vel og það eru engin
„dauð svæði“, meira að segja
ýmsir hyljir á miðsvæðunum sem
eru oft slappir síðsumars eru nú
fullir af laxi og gjöfulir eftir því.
Laxinn er bæði smár og stór, viku-
lega veiðast nokkrir 16-20 punda
fiskar, sumir nýrunnir, 20-24
punda laxar eru orðnir' um 30
talsins og sá stærsti fram til
gærmorguns var 27 punda hæng-
ur sem veiddist á silungasvæðinu
fyrir nokkrum dögum og greint
var frá í Morgunblaðinu á sunnu-
daginn.
Uppsveifla í
Miðfjarðará...
„Það er talsvert af físki í ánni,
en hann er farinn að taka illa í
vatnsleysinu. Þó hefur verið að
koma upp nýr fiskur og hópurinn
sem nú er að hætta, „Fjaðrafok-
ið“, fékk t.d. 72 laxa og var það
mikil bót frá hollinu á undan sem
fékk aðeins 34 laxa,“ sagði Böðv-
ar Sigvaldason formaður Veiðifé-
lags Miðfjarðarár í samtali við
Morgunblaðið í gærdag.
Sagði Böðvar að 1531 lax væri
kominn á land, en aðeins væri
veitt til 5. september. Samkvæmt
skýrslum Veiðimálastofnunar var
metveiði í Miðfjarðará sumarið
1977, en þá veiddist 2581 lax í
ánni, 1978 2337 laxar og 1979
2132 laxar. Ekki er víst að veiðin
verði alveg eins mikil nú, en ef
það gerði almennilega rigningar-
gusu gæti hún farið nálægt því.
Svo er þetta allt á uppleið og
kemur næst eins og sagt er í fót-
boltanum.
Stærsti lax sumarsins í Mið-
fjarðará veiddist á flugu í
Ármótunum og var það Banda-
ríkjamaður að nafni Sidney sem
fékk happadráttinn. Þá hafa
nokkrir 20-23 punda fiskar komið
á land, flestir úr Miðfjarðaránni
sjálfri og sumir þeirra merktir.
Álls hafa um 40 merktir laxar
komið á land í sumar sem er miklu
mun minna en í fyrra. Samt er
miklu meiri fiskur í ánum nú en
þá.
Nýja áfangakerfið sem við
tókum upp um áramótin auð-
veldar nemendum að meta
framfarir við tungumálanámið.
Áfangamir em fjórir: bvriendur,
lærlinear. sveinar og meistarar.
Námskeiðin sem nú fara í hönd
em í a) og c) flokkum allra
áfanganna.
Góð málakunnátta er Islend-
ingum alger nauðsyn - en hvern-
ig náum við bestum árangri? Fyrst er
að hugsa málið, síðan hringja til Mímis.
Mímir hefur um langt árabil sérhæft sig í
vönduðu tungumálanámi og kappkostað
að tryggja nemandanum bestu fáanlegu
kunnáttu á sem skemmstum tíma.
Áratuga reynsla og ánægðir nem-
endur eru besta auglýsingin.
ENSKA
ÞÝSKA
FRANSKA
SPÆNSKA
ÍTALSKA
ÍSLENSKA
fyrir úttendinga
Ef þú veist lítið um raunvem-
lega kunnáttu þína í tungu-
málinu leysa stöðuprófin úr
þeim vanda. Strax í fyrsta tíma
bjóðum við uppá stöðupróf
fyrir þá sem vilja.
Tíma ættu fleí
að geta fúndic
við sitt hæfi.
Við kennum
á kvöldin,
um miðjan
dag og á
morgnana.
október
Kennt er tvisvar í viku, tvær
klukkustundir í senn. Öli
námsgögn em innifalin í nám-
skeiðsgjaldi og við bjóðum
uppá veitingar í frímínútum.
Öllum d) námskeiðunum lýkur
með prófi í aprfl og þá
útskrifúm við fyrstu lærlingana,
sveinana og meistarana!
Viltu læra önnur tungumál en
þau sem hér eru nefnd? Láttu
það ekki aftra þér frá því að
grípa til símans - hringdu til
okkar og berðu fram óskir
þínar. Við reynum að koma til
móts við alla.
Allar frekari upplýsingar og
innritun í síma
10004/21655/11109
MÁLASKÓLI
RlTARASKÓLl
10% afsláttur gildir fýrir hjón,
systkini, öryrkja, ellilífeyrisþega
og félagsmenn Stjórnunar-
félagsins. Munið: starfs-
menntunarsjóðir ríkisins og
Reykjavíkurborgar taka þátt í
að greiða námskeiðsgjöld sinna
félagsmanna á námskeiðum
Mímis.
Mímir
ÁNANAUSTUM 15