Morgunblaðið - 26.08.1986, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.08.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1986 7 Þúsund starfs- menn IBM á ráð- stefnu hér á landi 1% af ferðamönnum sem koma til landsins RÚMLEGA eitt þúsund manns, starfsmenn IBM í Þýskalandi ásamt mökum munu sitja ráð- stefnur á Islandi næstu daga. Þetta er í annað sinn sem IBM heldur ráðstefnur á íslandi en i fyrra komu hingað tæplega átta- hundruð starfsmenn IBM á Norðurlöndum og í Austurríki. „Það má því segja að á vegum IBM komi um 1% af öllum ferða- mönnum, sem til landsins koma í ár,“ sagði Gunnar M. Hansson for- stjóri IBM á íslandi. Ráðstefnugest- ir koma í þremur hópum því ekki er aðstaða til að halda þúsund manna ráðstefnu hér á landi. Að sögn Gunnars verður fjallað um rekstur IBM í Þýskalandi og hvað framundan er. Farið verður með ráðstefnugesti í skoðunarferðir um Reykjavík og nágrenni. „Þeir útlendingar sem sótt hafa ráðstefnur hingað hafa allir verið yfir sig hrifnir af að koma til landsins og líkað það alveg ein- staklega vel,“ sagði Gunnar. „ís- land á svo sannarlega framtíðina fyrir sér sem ráðstefnuland svo framarlega sem við höfum aðstæð- ur til en okkur vantar stærri ráðstefnusali. Að öðru leyti er allt hér sem stuðlar að því að þetta megi takast." Ráðstefnurnar eru haldnar í húsakynnum Háskóla Ís- lands. Mikil þröng var í flugstöðinni á Keflavikurflugvelli í gærmorgun enda komu tvær svissneskar leiguflug- vélar með hinn stóra hóp IBM-manna á sama tíma. TOYOTA V estmannaeyjar: Minna um ölvunarakstur Vestmannaeyjum. LÖGREGLAN í Vestmannaeyj- um var með stífa herferð um helgina að kanna hvort ökumenn ækju ölvaðir. Voru 178 ökumenn stöðvaðir og reyndist enginn þeirra vera ölvaður. Herferð lögreglunnar stóð frá fimmtudegi og fram á aðfaranótt mánudags. Á þessu tímabila voru 178 bifreiðar stöðvaðar og ástand ökumanna kannað. Lögreglumönn- um til mikillar ánægju reyndist allt í stakasta lagi og engin ölvunartil- felli fundust hjá ökumönnunum. Frá áramótum hafa 29 ökumenn verið teknir fyrir meinta ölvun við akstur en á sama tíma í fyrra höfðu 40 ökumenn verið teknir. — hkj. Grein í Newsweek: Upplifun að vaða út í Laxá í Aðaldal Stór og áberandi mynd af tveimur köppum í lopapeysum að laxveiðum á Islandi prýðir opnugrein nýjustu útgáfu banda- ríska tímaritsins Newsweek. Greinin, sem er á íþróttasiðum blaðsins, fjallar um áhuga velefn- aðra Bandaríkjamanna á veiði- ferðum til framandi landa og ísland kemur við sögu í einni setningn. Stangveiðar eru í tísku meðal auðugs fólks í Bandaríkjunum og ferðaskrifstofur hafa komist á bragðið. Þær bjóða veiðiferðir til Alaska, Belize, Panama, Jólaeyju ( Kyrrahafi, Síberíu og víðar fyrir offjár. Svo virðist sem enginn sé lengur maður með mönnum nema hann, eða hún, hafí rennt fyrir fisk í Qarlægri heimsálfu og kennslu- stundir í flugukasti eru orðnar vinsælar. Myndin af íslandi er góð kynning fyrir landið. Hinir nýju veiðimenn kippa sér ekki upp við þótt það sé nokkuð dýrt að renna þar fyrir lax. Ánægður veiðimaður sagði News- week að „upplifunin að vaða út í fjarlæga á eins og Laxá í Aðaldal í norðurhluta íslands" væri jú inni- falið í verðinu. P. Samúelsson & Co. hf. hefur rekið bílasölu fyrir notaða bíla samhliða sölu nýrra Toyota bifreiða að Nýbýlavegi 8 í Kópavogi. Nú hefur verið gerð breyting þar á og sala notaðra bifreiða flutt í nýtt húsnæði í Skeifunni 15. Þar er öll aðstaða eins og best verður á kosið fyrir þá sem eru að kaupa, vilja selja, eða skipta notuðum bíl. Sýningarsalurinn er nokkuð stór á íslenskan mælikvarða, enda mun þægilegra að skoða bifreiðar innan húss en utan. Bifvélavirki tekur alla okkar bíla í söluskoðun áður en þeir eru settir í sölu. Með því móti getur kaupandi kynnt sér mun betur en áður ástand hverrar bifreiðar. Sölumennirnir eru þaulvanir og leggja sig fram um að veita góða þjónustu. P.S. Við seljum ekki eingöngu góðar, notaðar Toyota bifreiðar, því við höfum flestar tegundir bíla á söluskrá. SKEIFUNNI 15 108 REYKJAVÍK SÍMl’(91)687120

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.