Morgunblaðið - 26.08.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1986
51
Morpunblaðið/Ámi Sæberp:
Tvær Cessna 402-flugvélar frá
Arnarflugi flugu hópflug lágt
yfir áhorfendasvæðið.
staðar og sumir af yngri kynslóð-
inni söknuðu þess að sjá ekki list-
flug með lituðum reyk, líkt og
frönsku þoturnar sýndu á dögunum.
Sýningunni lauk með flugi Land-
græðsluvélarinnar yfir svæðið og
var tilkynnt að hún myndi dreifa
einhvetju óvæntu yfir gesti sýning-
arinnar. Eftirvæntingin skein úr
hverju andliti þegar flugvélin hóf
sig á loft og nálgaðist áhorfenda-
Hákon Sveinsson og Hákon Ágústsson.
Morgunbladið/Helga Guðrún
DC-8 vél Flugleiða flaug yfir svæðið, en vélin millilenti á Keflaví-
kurflugvelli á leið frá Lúxemburg til Bandaríkjanna.
Hér sést ein þriggja Alpha Jet-þotanna frá þýska flughernum,
sem komu til landsins á föstudag. Sú fjórða varð eftir í Skotl-
andi, þar sem flugmaður hennar varð skyndilega veikur. Stærri
vélin er kafbátaleitarvél frá þýska sjóhernum og er hún af gerð-
inni Breguet 1150 Atlantic.
svæðið. Þá losaði flugmaður hennar
um dreifingarbúnaðinn og þúsundir
rósa í öllum litum svifu til jarðar.
Flaug Landgræðsluvélin tvisvar yfir
svæðið með rósir og þótti það veg-
legur og viðeigandi endir á eftir-
minnilegum flugdegi.
- hgj
Þúsundir fylgdust
með flugsýningunni
TALIÐ ER að á miUi 8.000 og
10.000 manns hafi fylgst með
flugsýningunni á Reykjavíkur-
flugvelli á laugardaginn og
miklu fleiri frá svæðum í kring,
s.s. Öskjuhlíðinni og meðfram
Miklubraut.
Aðgangur að sýningarsvæðinu
var 200 krónur og var ýmislegt á
boðstólnum. Þar var sýningin
Flug ’86 í fullum gangi í skýli nr.
1, þá voru nokkrir sölubásar Flug-
björgunarsveitanna staðsettir
utan dyra og einnig voru ótal flug-
vélar til sýnis á vellinum.
Á meðal þeirra þúsunda sem
fylgdust með flugsýningunni var
Kjartan Jónsson, sem var þar á
ferð með níu ára gömlum syni
sínum, Áma Rúnari Kjartanssyni.
Fannst þeim feðgum mjög gaman
og kvaðst Ámi Rúnar ekki mjög
hræddur við háværan þotugný
sem öðru hverju barst yfir svæðið.
„Mér fannst skemmtilegt að
horfa á módelflugvélamar," sagði
Ámi Rúnar, en mest fannst foður
hans til snillibragða flugmanns
þýsku Domier-farþegaflugvélar-
innar koma. Það var samdóma
álit beggja að það hefði verið vel
þess virði að koma og sjá sýning-
una.
„Þetta er nú svolítið bijálæðis-
legt,“ sagði Ámundi Guðmunds-
son, sem fylgdist með flugsýning-
unni ásamt félaga sínum, Valgeiri
Jakobssyni.
„Þetta er ótrúlega vel heppnað
og vel að þessu staðið," sagði
Valgeir. Helst fannst þeim vanta
hátalarakerfi og pylsuvagn, en
höfðu ekki yfir nokkm öðm að
kvarta. Ámundi og Valgeir sögð-
ust hafa mætt nokkuð seint á
sýninguna, en af þeim atriðum
sem þeir sáu, fannst þeim til-
komumest að sjá tilþrif F-15-
ormstuþotanna bandarísku, en
ein þeirra sýndi mikið listflug, þar
sem hún m.a. hóf sig lóðrétt upp
í allt að 10.000 feta hæð og sneri
sér í marga hringi í leiðinni.
Frændumir Hákon Ágústsson
og Hákon Sveinsson vom á röltinu
um svæðið og vom fremur hress-
ir með sýninguna. Þeir höfðu
fylgst með sýningunni frá byijun
og vom orðnir ijóðir í kinnum,
enda nokkuð kalt að standa í fjór-
ar klukkustundir á bersvæði.
„Það vantar flugsveit eins og
þessa frönsku sem var um dag-
inn,“ sagði annar Hákoninn og tók
hinn í sama streng. Aðspurðir um
hvort hávaðinn í flugvélunum
færi nokkuð fyrir brjóstið á þeim,
svömðu þeir báðin „Nei blessuð
vertu, við höldum bara fyrir eyr-
un.“
VIÐ MINNUM A
Okkar frábæru barna- og ungliugahúsgögn. Fiölbreytt-
astaúrvalsemvölerá. _ _.
m/tru, furu
SKRIFBOKB
MAKGAK STÆKBIR
Skrifstofuhúsgögn
Skrifborð 90x180
kr. 14.400,.
SENDUMUMALLT LAND
VÉLKITUNAKBOKB
TÖLVUBOKB
SKÁPAELNINGAK
HILLUEININGAK
Húsgagnaverslun, Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði, s. 54343.