Morgunblaðið - 26.08.1986, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST1986
3
H-
Sérfræðingar í
flugeldasýningum
UNDIRBÚNINGUR að flugeldasýningunni stórkostlegn að kvöldi
afmælisdags Reykjavíkur 18. ágúst hófst fyrir rúmu ári, enda teg-
undafjöldinn gifurlegur og flókið mál og tímafrekt að skipuleggja
svona fyrirtæki og fyrirbyggja að ekkert fari úrskeiðis. Hjálpar-
sveit skáta í Reykjavík sá um framkvæmdina og var allt starfið
sjálfboðaliðsvinna. Sjö menn voru hálfan sólarhring að stilla flugeld-
unum upp en ekki tók nema tiu minútur að skjóta allri dýrðinni upp.
Fyrir tilstuðlan Landssambands
hjálparsveita skáta kom hingað til
lands skömmu fyrir afmælið Bjöm
Söderberg, efnafræðingur, sem
undanfarin 25 ár hefur starfað hjá
fyrirtækinu Hansons Pyrotekniska
í Gautaborg við skipulag og upp-
setningu á flugeldasýningum.
Hansons Pyrotekniska er í fremstu
röð í framleiðslu og þróun á neyðar-
flugeldum. Söderberg aðstoðaði
skátana i Reykjavík við afmælissýn-
inguna.
Meðan Söderberg dvaldi á íslandi
hélt hann einnig námskeið fyrir
aðildarsveitir Landssambands
hjálparsveita skáta. Skiptist nám-
skeiðið í tvo meginhluta, annars
vegar uppsetningu á flugeldasýn-
ingum og meðferð flugelda, hins
vegar meðferð neyðarflugelda og
kynnti hann meðal annars nýja teg-
und af slíkum flugeldum.
Nokkrir af hjálparsveitarskátun-
um, sem hafa fengið þjálfun í
meðferð flugelda, munu framvegis
bjóðast til að sjá um alla fram-
kvæmd á sýningum af þessu tagi.
Á myndínni eru f.v. Össur Friðgeirsson, Garðar Gíslason, Sveinn
Sigurjónsson, Hjálparsveit skáta Hveragerði, Björn Hermannsson,
framkvæmdastjóri Landssambands Hjálparsveita skáta, Björn Söder-
berg, Hansons Pyro, Einar Strand, Jóhann V. Jónsson, Hjálparsveit
skáta Reykjavík, Már Guðmundsson, Hjálparsveit skáta Kópavogi,
og Kristján Ásbergsson, Hjálparsveit skáta Isafirði.
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Flugeldasýningin vakti mikla hrifningu viðstaddra. Ljósadýrðin speglast í Tjörninni.
b
íslenska útvarpsf élagið:
Bylgjan hefur
útsendingar á
fimmtudaginn
BYLGJAN, hin nýja útvarpsstöð
íslenska útvarpsfélagsins, hefur
útsendingar á FM 98,9 klukkan 7
að morgni næsta fimmtudags, 28.
ágúst. Verður siðan sent út sam-
fellt til miðnættis og verður sami
háttur hafður á alla virka daga,
nema hvað þá hefst dagskráin
klukkan sex. Um helgar hefjast
útsendingar klukkan 8 að morgni
og standa til klukkan 3 að nætur-
lagi.
Einar Sigurðsson, útvarpsstjóri,
sagði i samtali við Morgunblaðið að
útsendingar Bylgjunnar myndu fyrst
um sinn nást á Suðvesturlandi, frá
Keflavík til Akraness og eitthvað
austur yfir fyall, þ.á m. á Selfossi.
Síðar er ráðgert að reyna að stækka
útsendingarsvæðið.
Dagskrá Bylgjunnar verður eink-
um dægurtónlist. Fréttir verða
fluttar á klukkutíma fresti og hafa
sex fréttamenn verið ráðnir til að
hafa umsjón með þeim. Aðalfrétta-
tímar verða kl. 12 og 18 og milli kl.
23 og miðnættis verður sérstök dag-
skrá með fréttatengdu efni.
Auk tónlistar og frétta verða á
dagskrá skemmtiþættir, framhalds-
leikrit, spumingakeppni, viðtals-
þættir og fitjað verður upp á þeirri
nýlundu að efna til „flóamarkaðar"
í beinni útsendingu á hvetjum virkum
degi. Er það hugsað sem vettvangur
fyrir fólk, sem vill selja hluti úr fór-
um sínum og verður miðlunin
ókeypis.
Rekstur Bylgjunnar er ljármagn-
aður með auglýsingum, sem skotið
er inn í dagskrána, en hlustendur
greiða ekkert afnotagjald.