Morgunblaðið - 26.08.1986, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1986
13
Fasteignakaup
og framhjáhald
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó: Skuldafenið —
The Money Pit ☆ ☆
Leikstjóri Richard Benjamin.
Tónlist Michael Colombier.
Kvikmyndataka Gordon Will-
is. Framleiðendur Spielberg
og co. Aðalleikendur Tom
Hanks, Shelley Long, Alex-
ander Goudunov, Maureen
Stapleton. Bandarísk. Uni-
versal 1986. 91 mín.
Vandamál og verkir húsbyggj-
enda og tilheyrandi sambúðareij-
ur eru innihald farsans
Skuldafenið. Tom Hanks er lög-
fræðingur og Shelley Long fiðlu-
leikari sem verða að flytja í skyndi
úr íbúð manns hennar fyrrverandi
og halda óundirbúin og auralaus
út á fasteignamarkaðinn.
Hanks fær lán þegar þeim
stendur til boða glæsivilla fyrir
grunsamlega lítinn pening. Enda
reynist villan vera aðeins rétt fyr-
ir augað. Það hrynur allt sem
hrunið getur og þurfa nú hinir
skítblönku húseigendur að endur-
byggja slotið með tilheyrandi
stríði við iðnaðarmenn o.s.frv.
Ekki bætir það sambúðina að frú-
in lendir á fylliríi með eigin-
manninum fyrrverandi og veit
fátt í sinn fagra haus morguninn
eftir. Stendur sambúðin á brauð-
fótum þegar endurreisninni er
lokið.
Richard Benjamin, sá ágæti
gamanleikari, hefur rejmst lið-
tækur leikstjóri og eftir hann
liggur ljómandi gamanmynd, My
Favorite Year, (þar sem hann
nýtur reyndar afburðaleiks Peter
O’Toole). Skuldafenið er létt og
lagleg afþreying sem á fína spretti
en fellur á milli niður í bragðlítið
léttmeti. Ber þess merki að vera
framleidd sem skyndibiti oní sum-
argesti kvikmyndahúsanna
vestra, en á þeim árstíma gæti
maður hæglega ætlað að Banda-
ríkjamenn hlæi að öllu.
Hið margvíslega basl hins al-
menna húsbyggjanda, hvort sem
er í New York eða Njarðvíkunum,
er kjörið efni í gamanmynd. Hið
furðulega er að vandamálið sem
myndin dregur nafn sitt af og á
að vera aðalaðhlátursefnið kemur
nefnilega lítið upp á yfirborðið.
Hanks slær í einum grænum fyrir
slotinu og framhaldið er einsog
kafli úr ritningunni; með 5 þús.
dölum mettar hann alla upp-
bygginguna!
Leikstjóri og handritshöfundur
hafa semsagt valið þann kostinn
að láta vaða á súðum. Syndafen-
ið er harla yfirborðskennd en
hefði með hnitmiðaðara handriti
getað orðið eftirminnileg
grínmynd.
Nýr stjórnandi
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Tónleikar sem haldnir voru á
vegum Tónlistarfélags Kristkirkju
undir yfirskriftinni Töðugjöld,
voru haldnir sl. sunnudagskvöld,
en þar komu fram ungir tónlistar-
menn og fluttu nýja og gamla
tónlist. Með unga fólkinu kom
fram söngkonan Ragnheiður Guð-
mundsdóttir og söng Lieder eines
fahrenden Gesellen eftir Mahler.
Það sem helst var forvitnilegt við
tónleika þessa, var að ungur tón-
listarmaður, Hákon Leifsson kom
þama fram sem hljómsveitar-
stjóri, ekki alskapaður, heldur til
að reyna sig áður en hann leggur
upp til náms í fræðunum. Hús-
fylli var og segir það nokkuð um
áhuga fólks fyrir því sem ungir
tónlistarmenn eru að bardúsa og
svo þegar upp var staðið, voru
þessir tónleikar einnig ánægjuleg-
ir vegna þess að bæði var flutt
góð tónlist og ágætlega vel. Þetta
upphlaup unga fólksins er ef til
vill ábending um að enn vanti hér
á landi kennarastól fyrir stjóm-
anda og víst er að baksvið þessara
atburða er vitneskja ungu tónlist-
armannanna um að enn sé þörf á
kunnáttumönnum í hljómsveitar-
stjóm. Það er með hljómsveitar-
stjóm eins og önnur tónlistarstörf,
að á því sviði verður ekki um
neinn „standard" að ræða fyrr en
um er að velja marga kunnandi á
því sviði. Tónleikarnir hófust á
Vetramótt eftir Hans Abraham-
sen, ekki óáheyrilegu verki, annað
verkið, Söngvar fömmanns, eftir
Mahler, er undurfalleg tónlist.
Margt af því kom vel fram í leik
unga fólksins og Ragnheiður Guð-
mundsdóttir söng lögin mjög
fallega og á sannfærandi máta.
Sfðasta verkið var A-dúr klari-
nettukonsertinn eftir Mozart.
Einleik í verkinu lék Guðni Franz-
son og skilaði sínu allvel. Það er
augljóst að sem stjómandi er
Hákon Leifsson byijandi og því
lítið hægt að segja um frammi-
stöðu hans. Þar um verður ekkert
ráðið fyrr en hann hefur öðlast
þjálfun og kunnáttu í greininni.
Kunnáttan til að segja fulllærðum
hljóðfæraleikurum til, hafa skoð-
un á og vita um allt á sviði
tónsmíða annarra tónskálda og
hafa hæfileika til að blása sam-
starfsmönnum í bijóst allt það er
varðar fagurfræði, tilfinningalega
túlkun og skáldlegt inntak tónlist-
arinnar. Allt um það. Hákon
Leifsson er á leið til náms erlend-
is og honum fylgja góðar óskir
og eins og áheyrendur sýndu með
því að fjölmenna á tónleikana í
Kristkirkju, þá skiptir það þá
máli hvaða framtíð unga fóikið í
landinu hefur valið sér til að keppa
að og skapa sér.
Hlíf Signrj ónsdóttir
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Hlíf Siguijónsdóttir, fiðluleikari
og David Tutt, píanóleikari, opn-
uðu tónleika-vertíðina í ár með
tónleikum í Norræna húsinu. Á
efnisskránni voru verk eftir Schu-
bert, Prokofieff, Stravinsky og
Brahams, sannkölluð óskaefnis-
skrá fyrir hlustendur. D-dúr
sónatínan eftir Schubert er yndis-
lega falleg tónsmíð, en það var í
Fimm lögum, ópus 35, eftir Pró-
kofieff sem báðir flytjendur fóru
á kostum. Blæbrigðamótunin hjá
Tutt var á stundum hreinlega frá-
bær. Hlíf hefur til að leggja með
sér mjög glæsilegan fiðlutón og
hefur vald á sannfærandi leik, frá
fíngerðustu tónum upp í þrumandi
styrk og þá er tónninn blátt áfram
blómstrandi. Sama má segja um
flutning beggja flytjendanna í
Suite Italienne, eftir Stravinsky.
Þar var samleikurinn frábærlega
skýr í feikna hratt leikinni taran-
tellu og syngjandi fallegum
inngangi og reyndar öllu verkinu.
í d-moll sónötunni, ópus 108, eft-
ir Brahms brá víða fyrir meistara-
legum leik, bæði hvað snertir
tónmögnun og túlkun fiðluleikar-
ans. Hlíf lætur vel að flytja
skapmikla og tónþrungna tónlist
eins og í fjórða þættinum, þó sá
þriðji væri einnig feikna vel leik-
inn. Eitthvað mun fiðluleikarinn
hafa verið hamlaður af óþægind-
um í baki, sem ekki er neitt
gamanmál, því fullkomið líkam-
legt jafnvægi og heilbrigði er blátt
áfram forsenda þess að hljóð-
færaleikari geti gengið í gegnum
þá líkamlegu og andlegu þolraun,
sem það er að skila heilum tónleik-
um. Það verður að segjast eins
og er, að þrátt fyrir að Hlíf þyrfti
að harka af sér, var leikur hennar
samt þrunginn spennu og tón-
rænum átökum, er gerðu þessa
tónleika mjög ánægjulega. Sam-
spil Hlífar og Tutt var frábærlega
gott og á augnablikum sérstæðra
tóntiltekta, eins og í Brahms og
Prokofieff, að ekki sé talað um
Stravinsky, þar gat að heyra
glæsileg tóntilþrif.
þú finnur örugglega flokk við þitt hæfi hjá okkur!
Haustnámskeið hefjast 1. sept.
UKAMSRÆKT OG MEGRUN
fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum.
FRAMHALDSFLOKKAR
KERFI
MEGRUNARFLOKKAR
4x í viku fyrir þær sem þurfa og vilja missa aukakílóin núna.
AEROBIC J.S.B.
Okkar útfærsla af þrektímum með góðum teygjum. Hörku púl- og svitatímar'
fyrir ungar og hressar.
NÝ OG GLÆSILEG AÐSTAÐA
Suðurver
83730
INNRITUN
HAFIN
Hraunberg
79988
Ath. vetrar-
námskeið hefst
29. september
Lokaðir og framhaldsflokkar.
Staðfestið pantanir fyrir veturinn.
LIKAMSRÆKT
JAZZBALLETTSKÓLA
BÁRU
fltogttiiMaftfft
Áskriftarsíminn er 83033