Morgunblaðið - 26.08.1986, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1986
35
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
ViÖburÖaríkt ár
Ég ætla í dag að fjalla um
árið framundan hjá Meyjar-
merkinu (23. ágúst—23. sept.)
Lesendur eru minntir á að hér
er einungis fjallað um sólar-
merkið og að hver maður á sér
nokkur merki. Hér er því ein-
ungis fjallað um takmarkaðan
þátt. Athygli er einnig vakin á
því að hér er ekki um atburða-
spá að ræða. Reynt er að benda
á þá orku sem er sterkust á
hverjum tíma til að menn geti
stýrt lífi sínu til samræmis við
náttúrulega krafta og eigin
lífstakt.
Rólegt ár
Þeir sem fæddir eru 23.-26.
ágúst þurfa ekki að takast á
við orku kynslóðaplánetanna.
Árið framundan ætti því að
vera rólegt og einkennast af
föstum liðum eins og venju-
lega.
Yfirvegaö ár
Þeir sem fæddir eru frá 27.
ágúst til 5. september takast
á við Satúmus og mjúkar af-
stöður frá Neptúnusi og Plútó.
Satúmus táknar að þessir ein-
staklingar þurfa, að vinna
töluvert og lifa reglusömu og
fastskorðuðu lífi. Einkunnar-
orð em aðhald, skynsemi og
varkámi. Álag getur orðið tölu-
vert, einnig óánægja og hömlur
ef viðkomandi er óánægður
með fyrri aðstæður. Neptúnus
táknar að tónlist, leikhús og
andleg iðkun geta verið gef-
andi og jákvæð. Plútó táknar
að góður tími er til að vinna
með sálarlífið og losa sig við
óæskilega þætti. Einbeiting
ætti einnig að vera góð.
Vinna og útfærsla
Þeir sem fæddir em frá 6.—10.
september em undir áhrifum
frá Satúmusi og Júpíter. Það
táknar að þeir þurfa að vinna
mikið og lifa reglusömu og
fastskorðuðu lífi. Þörf til að
færa út sjóndeildarhringinn og
takast á við nýja reynslu verð-
ur einnig sterk. Þessir einstakl-
ingar verða að varast að færast
of mikið í fang. Álag getur
verið töluvert og getur verið
ágætt fyrir þá að breyta eitt-
hvað til, skipta um umhverfí
og t.d. ferðast.
MargsIungiÖ ár
Fyrir þá sem fæddir em frá
11.—14. september verður árið
viðburðaríkt. Nauðsjmlegt er
fyrir þessa aðila að gera rót-
tæka uppstokkun á lífi sínu.
Þörf er fyrir nýjungar og
spennu, aukið sjálfstæði og
frelsi frá fortíðinni og gömlum
vana. Auk Júpíters og Satúm-
usar (sjá umsögn framar)
myndar Úranus afstöðu á Sól
þessara einstaklinga.
Uppstokkun
Þeir sem fæddir em frá
15,— 20. september þurfa að
takast á við Júpíter og Úran-
us. Eirðarleysi verður því
sterkt, svo og þörf fyrir ferða-
lög og breytingar. Þessir
einstaklingar ættu að stefna
að því að öðlast aukið fijáls-
ræði á næsta ári því þörf fyrir
nýjungar, spennu og víkkun
sjóndeildarhringsins verður
ráðandi. Ef viðkomandi er
bundinn er hætt við óþoli og
sprengingum.
Rólegt ár
Fyrir þá sem fæddir em frá
20.—23. september má búast
við rólegu ári. Júpíter verður
þó sterkur í febrúar 1987 og
er þá æskilegt að hreyfa sig
og takast á við einhveijar nýj-
ungar, skreppa t.d. utan í
stutta ferð, kaupa nýjan bíl eða
fara á námskeið sem víkkar
sjóndeildarhringinn o.s.frv.
Nauðsynlegt er þó að varast
óhóf þann mánuð.
X-9
LUKKUPRIK tSANGA
FyRll? HU6A»yNPAFLU6l
AHA'.SKO PETTA prik.1 Þetta
ER EKKERT VENJULEGT PRIK.
pETTA ER LUKKU-PRIK
PAVfS
9-so •«*-
PETTA
eina
Leikfangið
SEM
6ENGUR
EKKI
FYKIR RAFHLOÐU
© 1985 United Feature Syndicate.lnc.
DÝRAGLENS
UÓSKA
Ljúfa ástvina.
Þetta er of ópersónulegt.
I TI4INK VOU 5H0ULP
CALL MER. 50METMIN6
MORE ENPEARIN6...
Ég held að þú ættir að
ávarpa hana með meira
ástríki...
Pear Anqel Food
Cake With Seven
Minute Frostinq,
Kæra Englakaka
Hraðkremi!
með
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Sagnhafí taldi sig hafa himin
höndum tekið þegar hann sá
tígulkónginn koma á borðið. Það
var sannarlega betra útspil en
spaði, hélt hann.
Austur gefur, allir á hættu.
Norður
♦ 104
VKDG
♦ G9862
♦ D102
Austur
... ♦ SG76
II *98543 ^
♦ 3
♦ G76
Suður
♦ Á83
♦ Á1062
♦ Á7
♦ Á985
Vestur Norður Austur Sudur
— Pass 1 grand
Pass 3 ^nind Pass Pass
Pass
An þess að skeyta um að telja
slagina drap sagnhafi tígulkóng-
inn gráðugur og spilaði tígli á
gosann um hæl. Vestur tók á
drottninguna og skipti yfir í
spaða.
Sagnhafi gaf spaðann tvisvar
og notaði tímann til að telja.
Og komst auðvitað að þeirri
óumflýjanlegu niðurstöðu að
hann átti aðeins átta slagi og
hafði ekki lengur tíma til að
sækja níunda slaginn á lauf.
Villa suðurs er vel þekkt. Eins
og barn sem fær kakó í staðinn
fyrir mjólk og þambar fyrsta
sopann af áfergju án þess að
athuga hitastigið fyrst. Og
brennir sig auðvitað á tungunni.
Suður hefði átt að sjá að hann^
þurfti að fría tvo slagi strax til
að vinna spilið. Og þá er hvergi
hægt að fá nema á lauf.
Besta spilamennskan er að
fara inn á blindan á hjarta í
öðmm slag og spila út lauf-
drottningunni. Vestur fær á
kónginn og skiptir yfír í spaða,
en það kemur ekki að sök því
laufið rennur upp eftir að búið
er að svína fyrir gosann.
Vestur
♦ D952
V 7
♦ KD1054
*K43
Umsjón Margeir
Pétursson
Á stórmótinu í Biel í Sviss í
júlí kom þessi staða upp í viður-
eign alþjóðlegu meistaranna
Bela Toth, Italíu og Stefan
Kindermann, V-Þýzkalandi,
sem hafði svart og átti leik.
Toth lék síðast 30. Hfl -
dl?? og hélt sig vera að vinna
svarta d peðið. 30. d6 var sjálf- ^
sagt og nauðsynlegt.
Það sem Toth yfirsást var:
30. — Hcl! (Nú gengur 31.
Dxd2? ekki vegna 31. — Hc2.
Hvíta staðan er því gjörtöpuð)
31. d6 - Hxdl+, 32. Kf2 -
Hfl+! og hvítur gafst upp