Morgunblaðið - 26.08.1986, Page 52
ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Nauðgun kærð:
Manns
leitað
ínótt
TILKYNNT var um nauðgun í
íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti
laust fyrir klukkan 23 í gser-
kvöldi. Læknir og hjúkrunar-
fræðingur komu með sjúkrabO á
staðinn en konan var ekki flutt
í sjúkrahús.
Lögreglan leitaði manns sem var
eftirlýstur vegna þessa máls, meðal
annars í Qölbýlishúsinu, þar sem
grunur lék á að hann leyndist í
ákveðinni íbúð, en hann hafði ekki
náðst þegar Morgunblaðið hafði
síðast spumir af í nótt. Almennir
fctögreglumenn og rannsóknarlög-
reglumenn vom þá enn í húsinu.
Rannsókn málsins fer fram á vegum
Rannsóknarlögreglu ríkisins og var
unnið að henni fram á nótt.
Boeing-verk-
smiðjurnar:
Islending-
"ur gekk frá
170 milljarða
samningi
BORGE Boeskov, fram-
kvæmdastjóri Evrópusölu-
svæðis Boeing-flugvélaverk-
smiðjanna, er staddur hér á
landi til viðræðna við Flug-
leiðir. Hann fæddist í
Mosfellssveit og ólst upp á
Islandi til 10 ára aldurs.
^ Nýlega gekk Borge Boeskov
irá stærsta flugvélasölusamningi
á farþegaflugvélum sem gerður
hefur verið til þessa. Hans deild
seldi brezka ríkisflugfélaginu,
British Airways, 21 Boeing 747-
400 risaþotur og er andvirði
samningsins um 4,2 milljarðar
dollara eða jafnvirði nærri 10
milljarða íslenskra króna.
Sjá viðtal við Borge
Boeskov á bls. 20.
Morgunblaðið/Rafn Ólafsson
Borgarís á Dohrnbanka
Myndarlegir borgarísjakar hafa verið á reki norður af landinu | Líkist hann helst mikilli súlnabyggingu. Hæðin á jakanum var
í sumar. Skipveijar á Bjarna Sæmundssyni sigldu nálægt þess- 40—50 metrar.
um óvenjulega borgarísjaka á Dohrnbanka fyrir skömmu. I
Mjög góð loðnuveiði
á Vestfjarðamiðum
20 skip hafa fengið rúm 13 þúsund tonn síðan á föstudag
LOÐNUFLOTINN er nú nær all-
ur kominn á miðin út af Vest-
fjörðum og voru aflabrögð nú
um helgina með betra móti. Um
hádegi í gær, mánudag, höfðu
20 bátar tilkynnt um afla frá því
á föstudag með samtals rúmlega
13 þúsund tonn. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Loðnunefnd hefur
Vestfjarðaloðnan ekki enn verið
fitumæld, en hún er sögð stór
og falleg.
Alls eru nú 21 skip á loðnuveiðum
og eru flest á svæði sem er utan
og norðan við Halann. Hér er um
að ræða mun skemmri leið en áður
var á miðin við Jan Mayen, en
dæmi voru um að bátar væru um
40 tíma á leið til lands þaðan. Frá
miðunum nú er skemmst til Bolung-
arvíkur, um 10 tíma sigling. Ekki
liggur nákvæmlega fyrir hver
Vantrú á að bankar lækki útlánsvexti:
„Gengi kjarabréfa snarhækkar“
- segir Gunnar Óskarsson hjá Fjárfestingarfélaginu
SÉRFRÆÐINGUM á sviði
vaxtamála sem Morgunblaðið
ræddi við i gær ber saman um
að líklega muni vextir á almenn-
um verðbréfamarkaði lækka í
kjölfar ákvörðunar fjármála-
ráðherra að hætta sölu spari-
skírteina ríkissjóðs. Hins vegar
eru menn ekki eins vissir um
að bankar og sparisjóðir muni
lækka sína vexti, nema þá helst
af innlánsreikningum á sérkjör-
um.
Eiríkur Guðnason hagfræðingur
Seðlabankans sagði að ef ásókn
ríkissjóðs í lánsfé minnkaði mætti
fljótlega búast við vaxtalækkun í
almennum verðbréfaviðskiptum á
þeim bréfum sem fyrirtæki og ein-
staklingar selja. „En um banka-
vextina er ég ekki eins viss. Þeir
eru enn að hluta til undir stjórn
Seðlabankans - til dæmis mega
verðtryggðu útlánin ekki bera
hærri en 5% vexti. í fljótu bragði
sé ég ekki tilefni til lækkunar
þeirra vaxta. Það er frekar að
þeir hækki þegar nýju bankalögin
taka gildi 1. nóvember, því þeir
eru enn undir því sem ríkið býður,
eða 6,5%. Einu bankavextimir sem
ég held að gætu lækkað ei-u á
háum sérkjarareikningum, sem
bankamir hafa boðið í beinni sam-
keppni við spariskírteini rfkis-
sjóðs,“ sagði Eiríkur Guðnason.
Helgi Bergs bankastjóri í Lands-
bankanum var sama sinnis. „Þetta
hefur ekki verið rætt í bankanum
ennþá, en mér sýnist að það sé
ástæða til að lækka vexti sérkjara-
reikninga. Hins vegar er vafasamt
að breyta vöxtum á verðtryggðum
innlánum, því þeir eru mjög lágir,
eða 1-3%,“ sagði hann.
Gunnar Óskarsson hjá Fjárfest-
ingarfélaginu sagði þessa ákvörð-
un fjármálaráðherra góð tíðindi
fyrir eigendur kjarabréfa sem fé-
lagið býður. „Gengi þeirra mun
snarhækka. Þau eru að þriðjungi
til byggð á ríkisskuldabréfum sem
bera 9% vexti. Við munum nú selja
stóran hluta þeiira á verði sem
gefur 6,8-7% ársávöxtun og ná
þannig í gengishagnað," sagði
Gunnar.
Davíð Björnsson hjá Kaupþingi,
sem selur svokölluð einingabréf,
sagðist búast við mikilli eftirspurn
eftir þeim á komandi vikum og
mánuðum. „Fólk hættir auðvitað
ekki að spara þótt ríkið bjóði ekki
lengur spariskírteini. Við komum
til með að fá inn mikið af pening-
um sem getur orðið ærið verk að
koma í verðmæt bréf. Við eigum
ekki mikið af ríkisskuldabréfum
og munum ekki selja þau, nema
ljóst sé að betri ávöxtun sé að fá.
Sem ég tel að sé alls ekki sjálfgef-
ið,“ sagði hann.
spamaður verður af þessum breyttu
aðstæðum fyrir loðnuskipin, en ljóst
er að hann verður verulegur, mis-
mikill að vísu eftir því hvar skipin
landa.
Löndunarbið hefur verið á Siglu-
firði að undanförnu og að sögn
Jóns Reynis Magnússonar, forstjóra
Síldarverksmiðja ríkisins, hefur það
stafað af takmörkun á hráefnis-
töku, þar sem loðnan frá Jan Mayen
reyndist hafa lítið geymsluþol. Taldi
Jón Reynir ekki ólíklegt að á því
kynni að verða breyting er Vest-
fjarðaloðnan færi að berast, enda
væri hún sögð falleg.
Ekki er búsist við að.Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjan á Kletti í
Reykjavík taki til starfa fyrr en
einhvem tíma í september. Að sögn
Jónasar Jónssonar, forstjóra, er nú
unnið að breytingum á aðalpressu
verksmiðjunnar og von á sérfræð-
ingi frá Noregi um næstu helgi
vegna þeirra framkvæmda. Jónas
sagði að ekki hefði verið búist við
framboði á loðnu í verksmiðjuna á
þessum tíma og því hefði verið ráð-
ist í þessar framkvæmdir nú. Hann
sagði að loðnan væri nú mun fyrr
á ferðinni en í fyrra, þegar fyrsta
loðnan barst í verksmiðjuna á Kletti
um miðjan október. Kvaðst hann
vona að breytingar á pressunni
gengju fljótt og vel fyrir sig svo
að verksmiðjan gæti tekið til stafa
sem fyrst.