Morgunblaðið - 28.08.1986, Side 35
> -M0R6UNBLAÐIÐ; FIMMTURAGUR 28. ÁGÚST' 1S86
35
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
g § HAGVIRKI HF
% §| SÍMI 53999
Verkamenn
Hagvirki óskar eftir verkamönnum nú þegar.
Fæði á staðnum. Upplýsignar gefur starfs-
mannastjóri í síma 53999.
Starfsmenn óskast
Starfsmenn óskast í sorphreinsun í Hafnar-
firði. Upplýsingar í síma 50274.
Starfskraftur óskast
Óskum að ráða starfskraft nú þegar. Upplýs-
ingar á staðnum og í símum 36737 og 37737.
Múiakaffi.
Myndbandaleiga
Óskum að ráða 2 starfsmenn til starfa í
myndbandaleigu frá 1. september.Vinnutími
frá kl.12. Æskilegur aldur 20 ára.
Vinsamlega hafið samband í síma 686635.
Verksmiðjuvinna
Viljum ráða stúlkur til starfa nú þegar í verk-
smiðju vora.
Kexverksmiðjan Frón hf.,
Skúlagötu 28.
Greiningar- og ráð
gjafastöð ríkisins, Sæbraut 1-2,
Seltjarnamesi
Laus störf
1. Starfsmaður við ræstingar.
2. Sjúkraþjálfari í 75% starf. Áskilið er að
viðkomandi hafi reynslu í meðferð fatlaðara
barna.
3. Sálfræðingur í 50% starf. Áskilið er að
viðkomandi hafi þekkingu og reynslu í tauga-
sálfræðilegri greiningu.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
611180.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Starfsmaður óskast við dagheimili ríkisspít-
ala Stubbasel við Kópavogshæli frá 1. sept.
nk. Upplýsingar veitir forstöðumaður dag-
heimilisins í síma 44024.
Reykjavík 27. ágúst 1986.
Bókhald
Á bæjarskrifstofur Garðabæjar vantar starfs-
kraft til starfa við bókhald.
Um er að ræða starf við merkingu og skrán-
ingu fylgiskjala. Allar nánari uppl. veita
bæjarbókari og bæjarritari í síma 42311.
Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofu
Garðabæjar, Sveinstungu v/Vífilsstaðaveg.
Bæjarritari.
Við lifum ekki öll
á því að klippa
hvert annað
Ein helsta stoð góðra lífskjara í hverju landi er
þróttmikill og framsækinn framleiðsluiðnaður.
Við í Hampiðjunni, öflugasta plastiðnaðarfyr-
irtæki landsins, erum stolt af okkar framlagi.
— Vilt þú slást í hópinn?
Nú þegar skólafólkið hverfur á braut, vantar
nokkuð af duglegu og samviskusömu fólki
til framtíðarstarfa, enda mikið að gera á
næstunni.
Við getum boðið:
Góða tekjumöguleika.
Hressa vinnufélaga og öflugt starfsmanna-
félag.
Góða staðsetningu við Hlemm.
Akstur frá Breiðholti og Kópavogi til verk-
smiðju á Bfldshöfða.
Tvískiptar vaktir eða næturvaktir eingöngu.
3ja rása heyrnarhlífar með útvarpi.
HampiAjan er eitt helsta iönfyrirtæki iandsins meö á 5ta hundraö millj-
ón króna veltu og 200 starfsmenn.
Þaö rekur m.a. eina stærstu og fullkomnustu trollnetaverksmiöju á sínu
sviði í heiminum og ftytur út yfir 40% netaframleiöslunnar.
Fyrirtækið framleiöir úr plasti:
• trollnet, gam og kaöla fyrir sjávarútveg
• heybindigarn fyrír landbúnaö
• plaströr fyrir byggingariönaö
• endurunnið plast til útflutnings
HAMPIÐJAN
Framsækið fyrirtæki íplastiðnaði
Stakkholti 2-4 og Bíldshöfða 9.
SUrifvélin hf
Suðuriandsbrant 12
Raf iðnaðarmaðu r
eða laghentur maður með góða enskukunn-
áttu óskast í viðgerðir á Ijósritunarvélum.
Hafið samband við Þóri Gunnlaugsson verk-
stjóra, ekki í síma. Farið verður með
umsóknir sem trúnaðaramál.
Skrifvélin,
Suðurlandsbraut 12.
Skólastjóri tónlistar-
skóla/organisti
Skólastjóra vantar að tónlistarskóla Ólafsvíkur,
sem jafnframt gæti verið organisti Ólafsvíkur-
kirkju. Mjög góð laun í boði.
Allar nánari upplýsingar veita bæjarstjóri í
síma 93-6153, formaður skólanefndar í síma
93-6303 og formaður sóknarnefndar í síma
93-6233.
Aðstoðarfólk
Brauðgerð Mjólkursamsölunnar þarf að ráða
til sín starfsfólk í ýmis störf meðal annars
vinna við:
1. Pökkun á brauðum (unnið á kvöldin).
2. Ýmis aðstoðarstörf við framleiðslu í
brauða- og kökudeild.
Allar nánari upplýsingar gefa verkstjórar í
brauðgerðinni að Brautarholti 10 (gengið inn
frá Skipholti).
Brauðgerð Mjólkursamsölunnar
Holtaskóla
Keflavík
Við Holtaskóla í Keflavík er laus ein kennara-
staða í líffræði og eðlisfræði. Skólinn er
einsetinn og öll vinnuaðstaða fyrir kennara
og nemendur er mjög góð.
Upplýsingar gefa Sigurður E. Þorkelsson
skólastjóri í síma 92-1135 eða hs. 92-2597
og Ingvar Guðmundsson yfirkennari í síma
92-1045 eða hs. 92-1602.
Skólastjóri.
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÚÐUR
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðinga vantar við sjúkradeild
Borgarspítalans í fæðingarheimili Reykjavík-
ur. Aðalsérgreinar eru kvennsjúkdómalækn-
ingar, háls-, nef- og eyrnalækningar og
bæklunarlækningar.
Upplýsingar veitir Sigríður Lister hjúkrunar-
deildarstjóri í síma 26571.
Borgarspítalinn.
rJnr.lr.
Th
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÖDUR
Sjúkraliðar
Lausar eru stöður : á Öldrunardeildum B-5
og B-6. Fullt starf.
Hlutastarf: kl. 08.00-13.00, kl. 17.00-21.00
og kl. 23.00-08.00.
Öldrunardeild Hvítabandsins, fullt starf.
Hlutastarf: kl. 08.00-13.00 (virka daga), kl.
17.00-21.00 og kl. 23.30-08.15.
Ath: möguleiki er á barnaheimilisvistun.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrif-
stofu hjúkrunarforstjóra í síma 696600-351.
Borgarspítalinn.
Kópavogur
Starfskraftur óskast til verslunarstarfa.
Hálfsdagsvinna kemur til greina.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Borgarbúðin,
Hófgerði 30.
Afgreiðsla
Óskum að ráða dugmikið og áreiðanlegt
starfsfólk til framtíðarstarfa við afgreiðslu í
verslun okkar, Skeifunni 15.
Við leitum að fólki sem hefur góða og ör-
ugga framkomu og á auðvelt með að veita
viðskiptavinum okkar sem besta þjónustu.
Æskilegt er að væntalegir umsækjendur séu
á aldrinum 18-40 ára og geti hafið störf hið
allra fyrsta.
Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri
(ekki í síma) í dag og á morgun frá kl. 16-
18. Umsóknareyðublöð liggja frammi á
staðnum.
HAGKAUP
Skeifunni 15.— Starfsmannahald.