Morgunblaðið - 28.08.1986, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1986
43
Það var menntandi, í orðsins fyllstu
merkingu, að umgangast Guðrúnu.
Um skeið sá hún einnig um tónlist-
artíma bamanna í útvarpinu og
gerði það á sniildarlegan hátt.
Guðrún ferðaðist um landið í
nokkur ár á vegum söngmálastjóra
Þjóðkirkjunnar, kenndi og þjálfaði
kirkjukóra. Hún hafði yndi af því
starfi. Guðrún lék einnig á lang-
spil, lét smíða langspil og kom þessu
gamla hljóðfæri á framfæri hjá
nemendum.
Guðrún Sveinsdóttir var trú-
hneigð í eðli sínu og gekk mikið
upp í guðspeki framan af ævinni,
en síðar minntist hún aldrei á þessi
fyrri áhugamál sín. Raunar talaði
hún aldrei um trúmál. Ég heyrði
hana aldrei fara með sálm eða
bænavers hvorki eftir séra Hallgrím
né Matthías, hvað þá aðra. En hún
hafði myndina af Matthíasi afa
sínum fyrir ofan rúmið sitt, aðra
mynd af honum á hillunni á veggn-
um á móti og þá þriðju á nátt-
borðinu. Afi hennar var góði
engillinn í lífi hennar. Þegar ég á
síðustu árum minntist á afa og
ömmu og gamla heimilið okkar, þá
kom elskulegt bros á fallega andlit-
ið hennar. Minningin um þau var
henni helgidómur og trúmálin henni
svo viðkvæm að hún talaði aldrei
um þau.
Það var mikil gæfa þegar þau
hjónin, Jóhanna Þórarinsdóttir og
Magnús H. Gíslason fluttu í húsið
til Guðrúnar. Þau höfðu allt það til
að bera, sem hún mat mest. Þau
önnuðust hana af stakri ljúf-
mennsku og hjúkruðu henni af alúð
þegar hún þurfti þess með síðustu
árin sem hún lifði. Þetta var ómet-
anlegt fyrir Herdísi, sem hafði
erfíðu kennslustarfí að sinna.
Guðrún Sveinsdóttir er kvödd
hinstu kveðju. Við systurnar drúp-
um höfði í hljóðri þökk fyrir allt sem
hún var okkur.
Blessuð sé minning Gunnu
frænku.
Guðrún Þorsteinsdóttir
Elsa Kristín Hauks-
dóttir - Minning
í heiðríki fegurð himinsins situr
hún nú og syngur sín fegurstu ljóð.
Við geymum minninguna um blíða,
fallega og greinda stúlku, sem þrátt
fyrir sína stuttu dvöl skildi svo mik-
ið eftir.
Kolbrún amma.
Fædd 19. maí 1979
Dáin 17. ágúst 1986
Nú er orðinn hljóður, litli söng-
fuglinn hennar ömmu. Mitt í
fegurðs sumarsins er Elsa litla öll,
I eftir nærri þrotlausa baráttu við
erfiða sjúkdóma síðustu fjögur árin.
Hún sem var sí syngjandi, svo fljót
að læra allt, sem að músik laut,
gaf okkur öllum svo mikið af feg-
urð og gleði að erfítt er að sætta
sig við að öllu sé nú lokið og hún
horfín á braut.
En Guðs vegir eru órannsakan-
legir og hans dómum verður ekki
breytt.
Elsa var aðeins þriggja ára þegar
hún veiktist fyrst af erfíðum blóð-
sjúkdómi. Eftir þriggja ára stríð,
virtist sigur vera unninn. Hún var
orðin frísk og hress og farin að leika
sér í vor, þegar annar sjúkdómur
tók sig upp, sem veikti lífsþróttinn
dag frá degi þar til yfir lauk.
Það er erfitt fyrir Auði dóttur
mína, aðeins 24 ára gamla, að horfa
upp á eina barnið sitt og sólargeisl-
ann veslast upp í svo löngu dauða-
stríði, en Guð gefí henni þann styrk,
sem þarf til að takast á við lífið á ný.
En jafnvel sorgjn á sínar björtu
hliðar. Minningamar um allt það
góða fólk sem barðist með okkur.
Sérstaklega vil ég þakka starfsfólki
bamaspítala Hringsins, læknunum
Guðmundi Jónmundssyni og Jóni
Kristinssyni og starfsfólki bama-
deildanna. Margir dagamir vom
Elsu litlu léttbærari og glaðari fyr-
ir atbeina Brynhildar Sigurðardótt-
ur á föndurstofunni, sem reyndist
henni með eindæmum vel. Af ætt-
ingjunum rís hæst 10 ára frænka
hennar, Vilborg Ævarsdóttir, sem
hjálpaði okkur mæðgunum við að
vera við sjúkrabeð hennar, svo hún
þyrfti enga stund að vera ein.
Litla ömmustúlkan mín þjáist
ekki meir.
Birting afmæl-
is- og minning-
argreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Hvetja til
bindandi
þvingnnar-
aðgerða
LÖGREGLA í Suður-Afríku hef-
ur drepið fjölda manna í þvi
skyni að viðhalda kynþáttamis-
rétti í landinu, segir m.a. í
ályktun aðalfundar NKR, sam-
bands norrænna bæjarstarfs-
manna, sem lialdinn var i
Reykjavík 19.—23. ágúst.
I ályktuninni segir ennfremur um
ástandið í Suður-Afríku: „Gerræðis-
legar aðgerðir beinast ekki síst
gegn samtökum launamanna í
landinu. í þessu sambandi má benda
á, að a.m.k. 300 forystumenn
verkalýðsfélaga sitja fangelsaðir í
Suður-Afríku vegna neyðar-
ástandslaga hvita minnihlutans.
Margir þeirra hafa sætt pyntingum.
Verkalýðshreyfíngin í Suður-
Afríku er í fararbroddi þeirra, sem
beijast fyrir frjálsu, lýðræðislegu
þjóðskipulagi í Suður-Afríku. NKR
styður þessa baráttu í gegnum þau
alþjóðlegu samtök, sem NKR er
aðili að.
NKR lýsir þeirri skoðun sinni,
að ástandið í Suður-Afríku sé mjög
alvarlegt. NKR hvetur Norðurlönd-
in til að veita lýðræðisöflunum í
Suður-Afríku stuðning í baráttu
sinni gegn hvítu minnihlutastjóm-
inni.
NKR hvetur ríkisstjómir Norður-
landanna til að setja fram á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna
bindandi tillögur um þvingunarað-
gerðir gegn hvitu minnihlutastjóm-
inni í Suður-Afríku. NKR hvetur
einnig þær ríkisstjómir Norðurland-
anna, sem ekki hafa þegar lagt
bann við öllum viðskiptum við Suð-
ur-Afríku, að gera svo nú þegar."
Góðan dag!
Nú er þad
Amo
hafragrautur
Hann er bæði bragðgóður og nærandi.
Amo hafragrjónin eru uppfull
af sólarorku og hollustu.
Næst skalt þú fá þér
Amo hafragrjón
í sólskinsgula pokanum.
Hefur þú bragðað Amo músli?
Hollt og kraftmikið góðgæti.
Veldu þína tegund: Með súkkulaði,
ávöxtum eða trefjum.
Musll Fiber
knas,
VJT
Heildsöludreifing: Nathan og Olsen hf.
Sími 681234.