Morgunblaðið - 24.09.1986, Blaðsíða 1
56 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
214. tbl. 72. árg.
MEÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Afganistan:
Átök blossa
upp við Kabúl
Islamabad, AP.
BARDAGAR hafa blossað upp
að nýju umhverfis Kabúl, höfuð-
borg Afganistans. Skæruliðar
múhameðstrúarmanna hafa ráð-
ist á vígi stjórnarhersins og vega
nú um fimmtán hermenn dag-
lega, að því er haft var eftir
vestrænum stjórnarerindrekum í
gær.
Mikil átök hófust á þessu svæði
í lok ágústmánaðar og stóðu út
Austurríki:
Ný ráð-
stefna um ör-
yggismál
Zttrích, frá Önnu Bjamadóttur,
fréttaritara Morgunblaðsins.
Undirbúningsfundur undir
ráðstefnu um öryggismál og
samvinnu í Evrópu (RÖSE),
sem hefst í Vínarborg 4. nóv-
ember, var settur í gær.
Hjálmar W. Hannesson, sendi-
fulltrúi utanríkisráðuneytis-
ins, situr fundinn fyrir íslands
hönd.
Fundurinn stendur tvær vikur.
Hannes sagði að hann ætti að
ákveða dagskrá og tímasetningu
fyrir RÖSE, en ráðstefnan verður
haldin til að fara yfir framkvæmd
Helsinki-sáttmála og semja tillög-
ur til úrbóta á honum.
Fyrsti RÖSE-fundurinn eftir
Helsinki var haldinn í Belgrad og
stóð í fímm mánuði. Annar fundur-
inn hófst í Madríd í nóvember
1980 og lauk ekki fyrr en í sept-
ember 1983. Hannes sagði að eitt
meginmarkmið undirbúningsfund-
arins nú væri að fínna leið til að
koma í veg fyrir að Vínarfundur-
inn drægist á langinn eins og
gerðist í Madríd. Vonir standa til
að hann standi ekki lengur en eitt
ár.
fyrstu viku þessa mánaðar. Leið-
togar skæruliða sögðu þá að þeir
hefðu hafið mestu sókn að höfuð-
borginni síðan fyrir þremur árum.
Heimildamennimir sögðu að
sveitir skæruliða hefðu ráðist á út-
verði stjómarinnar á Paghman-
svæðinu norður af Kabúl og skotið
eldflaugum á borgina. Á fimmtudag
hefðu t.d. fjórar sprengjuflaugar
sprungið í borginni, ein skammt frá
flugvellinum.
Afganski herinn hefur verið
kvaddur til Paghman-hæða til að
beijast við skæmliðana. Sovéskt
stórskotalið og flugher hafa komið
stjómarhemum til aðstoðar.
-
Mynd þessi sýnir húsarústir eftir hina harðskeyttu loftárás ísraela á stöðvar skæruliða PLO í Libanon
í gær. Loftárásin stóð yfir í 40 minútur og olli stórfelldu tjóni á byggingum og öðrum mannvirkjum.
* A, \ . ' '. ‘ ... i
E 1 ^Pfl
ísraelar gera loftárás á
stöðvar skæruliða PLO
Beirút, AP.
ÍSRAELAR gerðu miklar loft-
árásir' á stöðvar palestínskra
skæruliða í hæðunum fyrir aust-
an Beirút í gær. Komu herþotur
þeirra í bylgjum og vörpuðu
sprengjum á skotmörkin i lág-
flugi. Eldar kviknuðu á mörgum
stöðum og stigu miklir reykjar-
bólstrar upp af þeim síðdegis í
gær.
Flugvélamar komu í fjórum
bylgjum á um 40 mínútna tímabili.
Var sprengjum þeirra m.a. beint
að bækistöðvum skæruliða, sem
njóta stuðnings Sýrlendinga, en
stöðvar þessar em á hæðunum fyr-
ir austan Beirút. Skæmliðar héldu
uppi mikilli skothríð á móti úr loft-
vamabyssum, auk þess sem þeir
skutu flugskeytum á ísraelsku flug-
vélamar.
Þetta var tíunda loftárás ísraela
á Líbanon á þessu ári. Hún átti sér
stað samtímis því sem her og skrið-
drekar þeirra tóku sér stöðu
meðfram landamærunum við Líb-
anon til þess að fara þar yfír hvenær
sem væri.
Ekki var skýrt frá mannfalli í
skýrslu ísraelsku herstjómarinnar,
en aðeins tekið fram, að flugvélar
hennar hefðu beint árásum sínum
á skotmörk, sem væm fjarri þétt-
býlum svæðum.
Hafez Hassad, forseti Sýrlands,
sagði í gærmorgun, að her hans
myndi fljótur til andsvara, ef ísrael-
ar réðust inn í Líbanon og greiða
„innrásarhernum rothögg". Við-
brögð Sýrlendinga ættu eftir að
„koma öllum á óvart“.
Líbýumenn selja
hlutabréf sín í Fiat
Torino, AP.
LÍBÝA hyggst selja hlutabréf sín | bílafrandeiðanda og atvinnurek-
í Fiatverksmiðjunum, stærsta I anda á Ítalíu. Skýrðu talsmenn
Fundur Reagans og Gorbachevs
ennþá raunhæfur möguleiki
sagði Shevardnadze í ræðu sinni á Allsherj arþinginu
New York, AP.
EDUARD Shevardnadze, ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna,
sagði í gær að þrátt fyrir allan
ágreining risaveldanna væri
fundur æðstu manna þeirra enn
þá „raunhæfur móguleiki", ef
Bandaríkjastjórn vildi slíkan
fund. Shevardnadze gagnrýndi
hins vegar Reagan forseta fyrir
ræðu hans á Allsheijarþingi
Sameinuðu þjóðanna og lýsti
henni á þann veg, að „hana bæri
að harma“.
Þetta kom fram í ræðu, sem
Shevardnadze flutti á Allsheijar-
þinginu í gær. Þar sagði hann
ennfremur, að undanfarið hefði
mátt eygja samkomulag í mikilvæg-
um málum. Fundur æðstu manna
væri vissulega raunhæfur mögu-
leiki. Jafnframt skoraði Shev-
ardnadze á Bandaríkjastjórn að
fylgja orðum síhum um að draga
úr kjamorkuvopnahættunni eftir
með „raunhæfum aðgerðum". Þá
sagðist hann hafa umboð til þess
að lýsa því yfír, að Sovétríkin væru
reiðubúin til að undirrita hvenær
sem væri og hvar sem væri samn-
ing um algert bann við kjamorku-
vopnatilraunum.
Áður en Shevardnadze flutti
ræðu sína átti hann fund með
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, um mál bandaríska
blaðamannsins Nicholas S. Danil-
offs, sem ákærður er fyrir njósnir
í Sovétríkjunum og fær ekki að
fara frá Moskvu.
Fundur þessi stóð í 45 mínútur.
Hann hafði ekki verið áformaður
og kom því nokkuð á óvart. Engin
yfírlýsing var þó gefín út eftir fund-
inn og í ræðu sinni á Allsheijar-
þinginu minntist Shevardnadze
hvergi á Daniloff.
Fiatverksmiðjanna frá þessu i
gær. Þeir, sem kaupa hlutabréf-
in, eru Agnelli-fjölskyldan á
ítaliu, sem á fyrir mestan hlut í
Fiat, svo og vestur-þýzkur banki.
Líbýumenn áttu 15,19% af hluta-
bréfunum í Fíat. Ekki var greint
frá kaupverði hlutabréfanna nú, en
þau hafa verið metin á 3 milljarða
dollara, sem er 10 sinnum hærri
Qárhæð en Líbýumenn lögðu í fyrir-
tækið 1977.
Eignarhlutdeild Libýu í Fiat hef-
ur verið mörgum þymir í augum
sökum vaxandi spennu í samskipt-
um ítalskra stjómvalda og
Moammars Gadhafi, leiðtoga Líbýu.
Þá hefur hún einnig verið hindrun
í vegi fyrir því, að Fiatverksmiðj-
umar fái aðgang að geimvama-
áætlun Bandaríkjamanna, sem
forráðamenn Fiat hafa þó sýnt mik-
inn áhuga.