Morgunblaðið - 24.09.1986, Blaðsíða 53
53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986
Hvernig fer
leikurinn?
Morgunblaöiö/Einar Falur
• Aukaspyrnur voru œfðar í gærmorgun og hór má sjá Arnór Guðjohnsen skjóta föstu skoti úr einni slíkri en að þessu sinni varði Bjami
Sigurðsson mjög laglega í markinu. Ef aukaspyrnur fást í leiknum í dag þá gæti verið stórhætta því f íslenska liðinu eru miklar stórskyttur
sem ættu að vera ófeimnar við að skjóta á markið jafnvel þó snillingurinn Dasaev standi í sovóska markinu.
Verður erfiðari leikur
en gegn Frökkunum
„MÉR líst bara vel á þennan leik
gegn Sovátríkjunum þó svo þeir
sáu mjög sterkir," sagði Sævar
Jónsson varnarmaðurinn sterki í
samtali við Morgunblaðið f gær-
morgun en þá æfði fslenska
landsliðið á glœsilegum grasvelli
f Mosfellssveit í blýðskaparveðri.
„Sovétmenn eru mjög „teknísk-
ir“ og leika skipulega. Þeir voru
með gott lið í heimsmeistara-
keppninni en hafa breytt talsvert
síðan þá en engu að síður held
ég að þessi leikur verði erfiðari en
gegn Frökkum á dögunum. Þeir
eru eldfljótir og skyndisóknir þeirra
stórhættulegar. Það er þó gott að
Belanof er ekki með því hann er
frábær leikmaður."
Igorj Belanof var markahæsti
leikmaður sovéska liðsins í heims-
meistarakeppninni í Mexíkó í
sumar. Stórskemmtilegur leikmað-
ur sem getur skorað úr ótrúlegustu
færum. Hann er þekktur fyrir sín
fyrnarföstu langskot og þeir sem
fylgdust með heimsmeistara-
keppninni muna eflaust eftir hinu
stórglæsilega marki sem hann
skoraði gegn Belgum en þá skaut
hann rétt utan vítateigs og lenti
knötturinn efst í markstönginni og
þaðan í netið — gjörsamlega óverj-
andi fyrir Pfaff markvörð Belga og
er hann þó enginn aukvisi í mark-
inu.
Gunnar Gíslason:
Þetta getur ekki
tognað mikið meira
ÞAÐ VAR um tfma útlit fyrir að
Gunnar Gfslason, varnarmaður-
inn sterki úr KR, gæti ekki leikið
með landsliðinu gegn Sovát-
mönnum f dag. Gunnar tognaði á
Sigurður með hálsbólgu
SIGURÐUR Jónsson hefur veríð
með hálsbólgu frá því hann kom
til landsins og f gærmorgun var
óvfst hvort hann yrði með í leikn-
um gegn Sovátríkjunum.
Sigurður hefur verið hafður í
nokkurskonar einangrun þannig að
aðrir leikmenn smitist ekki af hon-
um en á seinni æfingunni í gær
var Sigurður með en hann var hins
vegar heima á hóteli þegar strák-
arnir æfðu í gærmorgun.
„Hann reynir að vera með á
æfingunni seinna í dag og ég held
hann nái sór góðum fyrir leikinn.
Hann hefur verið hitalaus en finnur
fyrir eymslum í hálsinum. Hann
hefur verið í sérstakri meðferð hjá
okkur og við vonum að hann nái
sér fyrir leikinn," sagði Þorsteinn
Geirharðsson aðstoðarmaður
landsliðsins og kylfingur hinn
mesti á æfingunni í gærmorgun.
hægri ökla á æfingu á mánudag-
inn en f gærmorgun var hann
mættur á æfingu eins og ekkert
væri og virtust meiðslin ekki há
honum mikið og þvf líklegt að
hann verði f byrjunariiðinu f dag.
„Þetta er það sama og ég lenti í
í vor en ég held að þetta geti ekk-
ert tognað meira. Eg hef svo oft
tognað í ökla og þetta er allt orðið
svo teygt að það getur ekki tognað
meira.
Ég finn lítið fyrir þessu núna og
vonast til að veröa orðinn góður
fyrir leikinn þannig að ég geti leik-
ið,“ sagði Gunnar, en hann er
þekktur fyrir allt annað en að
kvarta að ástæðulausu enda harð-
jaxl hinn mesti.
ísland—Sovétríkin:
Landsliðsmenn
á ferð og flugi
ÞAÐ MÁ með sanni segja að
landsliðsmenn okkar í knatt-
spymu hafi í nógu að snúast
þessa dagana. Það er ekki nóg
með að þorri þeirra fljúgi hing-
að til lands f landsleiki heldur
þurfa þeir þess á milli að ieika
leiki með sínum fólagsliðum
eriendis. Þeir sem hafa haft
mest að gera að undanföru og
munu hafa á næstu dögum leika
alls níu leiki á 29 döguml
Gamanið byrjaði laugardaginn
6. september með því að leikið
var í viðkomandi deildum. Mið-
vikudaginn á eftir, þann 10.
sept., léku kapparnir síðan með
íslenska landsliðinu hér heima
gegn Frökkum, flugu síðan út til
aö leika á laugardaginn með
sínum félagsliðum þann 13.
Miðvikudagurinn rann upp og
þá var leikur í Evrópukeppni fé-
lagsliða þar sem Ómar Torfason,
Ásgeir Sigurvinsson, Atli Eð-
valdsson og Arnór Guðjohnsen
léku allir með sínum félagsiiðum.
Ásgeir, Atli og Arnór léku á
heimavelli en Ómar skrapp til
Moskvu þar sem Luzern lék við
Spartak Moskva.
Enn var haldið áfram og laug-
ardaginn 20. september var enn
leikið í deildarkeppninni og nú
eru þeir komnir hingað heim til
að leika gegn Sovétmönnum.
Eftir leikinn verður flogið bein-
ustu leið út þar sem leikið vérður
á laugardag í deildarkeppninni,
þann 27. september, og síðan
eru Evrópuleikir 1. október og
þá leikur Arnór í Póllandi, Ásgeir
í Sovétríkjunum, Atli skreppur
yfir landamærin til Austur-Þýska-
lands og Ómar ieikur á heima-
velli. Þessu annasama tímabili
lýkur síðan með deildarleikjum
þann 4. október.
Af þessari upptalningu sést
að menn leggja ýmislegt á sig í
knattspyrnunni — 9 leikir á 29
dögum er ekkert smáræði og auk
þess þarf auðvitað að æfa svona
endrum og sinnum.
Morgunblaöið/Einar Falur
• Það var ekkert gefið eftir á æfingunni f gærmorgun í Mosfeils-
sveit og hór má sjó Ragnar Margeirsson ná knettinum af Atla
Eðvaldssyni og þeir Ómar Torfason og Ásgeir Sigurvinsson fylgj-
ast með. Ásgeir, Atli, Ómar og Arnór hafa haft f nógu að snúast
undanfarnar vikur og ótrúleg vinna og ferðalög sem þeir hafa lagt
á sig til þess að geta leikið með landsliðinu og sínum félagsliðum.
HVERNIG fer leikurinn? Þessa
spurningu lögðum við fyrir
nokkra vegfarendur í Austur-
stræti í gær. En sem kunnugt
er leika Islendingar við Sovát-
menn á Laugardalsvelli f dag
kl. 17.30.
Þórarinn Friðriksson:
Sovétmenn hafa á að skipa
betra liði en Frakkar og spái
ég því að þeir vinni okkur, 1:2.
Sigurður HaHbjömsson:
ísiand vinnur 1:0. Við eigum að
geta unnið þá þar sem íslenska
liðið sýndi mjög góðan leik
gegn Frökkum á dögunum.
Kolbrún Eiríksdóttlr:
Ég spái að Sovétmenn vinni
með þremur mörkum gegn
engu. Þeir eru betri en Frakk-
arnir.
Kristján Björgvinsson:
Þetta verður góður leikur en
Sovétmenn eru betri og ná að
merja sigur, 1:2.
Þurfður Sigmundsdóttir:
Ég vona að Island vinni. Segjum
2:1 fyrir ísland.