Morgunblaðið - 24.09.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986
19
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Finninn Timo Salonen á leið sinni til sigurs í 1000 Vatna rallinu
finnska. Hann tryggði Peugeot heimsmeistaratitil bílaframleiðenda.
Rallakstur:
Peugeot heimsmeistari
Fmninn Timo Salonen á Peugeot 205 Turbo 16 tryggði liði sínu
heimsmeistaratitil bilaframleiðenda í rallakstri þegar hann vann
1000 Vatna rallið finnska fyrir skömmu. Hefur Peugeot tryggt sér
titilinn þó nokkrar keppnir séu eftir og Finninn Juha Kankkunen,
sem einnig ekur Peugeot hefur forystu í heimsmeistarakeppni öku-
manna. Hann varð annar í finnska rallinu.
Það var þriðji Finninn sem leiddi
1000 Vatna rallið í byijun, Marrku
Alen ók Lancia Delta afburðavel
framan af, en fór útaf í lokin. Tap-
aði hann miklum tíma og varð að
sætta sig við þriðja sæti í 1300 km
langri keppninni. Á meðan sigldu
landar hans, Salonen og Kankkun-
en Peugeot bílnum sínum í efstu
sætin af öryggi. Félagi þeirra hjá
Peugeot, Svíinn Stig Blomqvist,
varð flórði þrátt fyrir veltu á einni
leiðinni. Tókst 81 keppanda að kom-
ast í mark en 164 lögðu af stað.
Meðal þeirra sem luku keppni var
Finninn Peter Geitel, sem tvívegis
hefur keppt í Ljómarallinu. Hann
vann flokk óbreyttra bíla á Mazda
323 4WD, en kvennaflokkinn unnu
Maijo Salonen og Tuula Karkkula-
inen á Citroen Visa, en þær kepptu
í Ljómarallinu í fyrra.
Staðan í heimsmeistarakeppni
ökumanna, Juha Kankkunen Finn-
landi 91 stig, Marrku Alen Finn-
landi 69, Massimo Biasion Ítalíu
47, Timo Salonen Finnlandi 43.
í kjölfar viljayfirlýsingar meirihluta
Hafnfirðinga:
Vildi taka að sér rekstur
áfengisútsölu í bænum
- en ráðuneytið hafði ekki áhuga
„SVAR ráðuneytisins var í stuttu máli það, að ÁTVR hefði einkarétt
á að selja áfengi og því gæti ekkert af þessu orðið,“ sagði Arni Sv.
Mathiesen, verslunarmaður í Hafnarfirði, um tillögu er hann setti
fram við fjármálaráðuneytið um að hann tæki að sér að opna og
reka áfengisútsölu þar í bænum.
Samfara bæjarstjómarkosning-
unum í Hafnarfirði í vor greiddu
kjósendur atkvæði um hvort þeir
vildu að opnuð væri áfengisútsala
þar í bænum. Um 80% þeirra, sem
greiddu atkvæði (kosningaþátttaka
var um 60%), kváðust samþykkir
því. Af hálfu fjármálaráðuneytisins
hefur hins vegar komið fram, að
ekki séu uppi áform um að hefja
rekstur útsöíu ÁTVR þar í bænum
a.m.k. ekki fyrr en á árinu 1988.
Ámi sagði í samtali við blm.
Morgunblaðsins að með tilliti til
yfirlýstrar stefnu ríkisstjórnarinnar
um að stefna bæri að frjálsræði á
sem flestum sviðum, hefði sér kom-
ið í hug að ekkert gæti verið því
til fyrirstöðu að einstaklingar tækju
að sér sölu á þeim varningi, sem
ÁTVR hefði einkarétt á. „Þannig
gæti ríkið sparað sér þann kostnað,
sem felst í stofnun útibús - og ekki
neita ég því, að í aðra röndina var
þetta til gamans gert,“ sagði Árni.
„í bréfi, sem ég skrifaði fjármála-
ráðuneytinu um hugmynd mína,
lýsti ég einnig áhuga á að fá um-
ræður um sölufyrirkomulag á
áfengi og hugmyndir um hvort gera
mætti breytingar á gildandi skipu-
lagi. Ég kvaðst vera opinn fýrir
hugmyndum um fyrirkomulag á
verslunarrekstrinum enda kemur
ýmislegt til greina."
Hann sagði að frá sínum bæjar-
dyrum séð skipti það meginmáli í
þessu sambandi, að ríkisvaldið hefði
ekki einkarétt á sölu áfengis heldur
aðeins innflutningi og heildsölu,
eins og ljóst væri af því, að áfengi
væri selt á veitingahúsum víðsvegar
um landið undir eftirliti Áfengis-
og tóbaksverslunar ríkisins.
Heimtur nokkuð
góðar á Ströndum
Bjarnarfirði.
RÉTTIR hófust hér um slóðir
þann 14. september, en þá var
fyrst réttað í Staðarrétt í Hróf-
bergshreppi. Um helgina var svo
réttað í Skarðsrétt hér í Bjarnar-
firði og þá vitanlega með til-
heyrandi réttarballi á
Laugarhóli á laugardag. Heimt-
ur eru nokkuð góðar.
Fyrir tveim vikum bilaði brúin á
Fossá og urðu bílar að fara um vað
á ánni, nokkru ofan við brúna,
meðan viðgerð fór fram. Brú þessi
á sér sérstaka sögu, því að bændur
gerðu Vegagerðinni tilboð um að
byggja hana snemma á öldinni.
Svar Vegagerðarinnar barst í
skeyti, sem sagði að heimilt væri
að byggja brú á Fossá, en þama
var aðeins sá hængur á, að fallið
hafði niður einn bókstafur, þ.e. ó.
Standa átti að óheimilt væri að
byggja brú á Fossá. Bændur fóru
vitanlega eftir texta skeytisins og
byggðu brúna. Þegar svo reikning-
arnir voru sendir, átti að neita að
greiða verkið. Annað hljóð kom í
strokkinn, þegar texti skeytisins var
lagður fram, og verkið var borgað.
En svo myndarlega var þessi brú
byggð af heimamönnum, að hún
hefír enst fram á þennan dag, þrátt
fyrir aukinn umferðarþunga.
Erétfaritari
r
ASEA
rafmótorar
Nú eru ASEA rafmótorar í næsta nágrenni viðskiptavina sinna: —
AUSTURLAND: Rafmagnsverkstæði Leifs Haraldssonar, Seyðisfirði
VESTMANNAEYJAR: Geisli, Vestmannaeyjum.
SUÐURNES: Rafiðn, Keflavík
VESTFIRÐIR: Póllinn, ísafirði
NORÐURLAND: Raftækni, Akureyri.
Sölumenn okkar veita frekari upplýsingar ef óskað er.
•4TRÖNNING Simi 8400Ö
Sjálfstæðishúsið Njarðvík
í dag, miðvikudag 24. sept. kl. 17.00-20,00.
Hafnarfjörður
Iþróttahúsinu v/Strandgötu á morgun kl. 17.00-20.00.
Reykjavik
Frostaskjóli, Gerðubergi, Fellahelli og Skeifunni 17.
Oll skírteini afhent í Skeifunni 17 (Ford-húsinuj, föstudaginn
26. sept. og laugardaginn 27. sept. kl. 13.00-19.00 báða
Kennsla hefst da9ana AUÐAR HARALDS
mánudaginn 29. sept. S: 656522 og 31360
DANSSKÓLI
LETT. LIPUR OG VANDVIRK
Aðeins 6,1 kg á sviflétlum hjólabúnaði.
Stillanlegt sogafl og afbragðs sogstykki.
STERK OG TRAUST
Reynslan sannar rekstraröryggi og
einstaka endingu.
HAGKVÆM OG HEILNÆM
10 lítra poki og svo frábær ryksíun að
hún hreinsar einnig andrúmsloftið.
Nýlegar hollusturannsóknir leiddu í Ijós
að flestar ryksugur rykmenga loftið,
sumar hrikalega.
Já, svona er NILFISK: Vönduð og tæknilega ósvikin, gerð til að vinna sitt verk,
fljótt og vel, ár eftir ár, með lágmarks truflunum og tilkostnaði.
NILFISK
HEIMSINS BESTA RYKSUGA
Stór orð, sem reynslan réttlætir
frQn\X
HÁTÚNI6A SlMI (91)24420