Morgunblaðið - 24.09.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986
Nýja sjónvarpið:
Unnur og
Þórir til Páls
UNNUR Steinsson og Þórir Guð-
mundsson hafa verið ráðin sem
fréttamenn á nýju sjónvarpsstöð-
ina, Stöð 2, sem tekur til starfa
i næsta mánuði.
Þórir Guðmundsson starfar nú
hjá ríkisútvarpinu og sagði Páll
Magnússon, fréttastjóri nýju sjón-
varpsstöðvarinnar , að hann myndi
fyrst og fremst starfa við erlendar
fréttir. Unnur Steinsson hefur ekki
starfað við fréttamennsku áður, en
mun fást við innlendar fréttir.
Páll sagði að nú væri búið að
ráða þá fréttamenn sem nýja stöðin
teldi sig þurfa á að halda í upp-
hafí. Auk Unnar og Þóris hafa verið
ráðin þau Ólafur E. Friðriksson,
Mikil ásókn í
„afréttarana“:
Ómar Valdimarsson og Sigurveig
Jónsdóttir.
Ekið á mann:
Hlaut mikla
höfuðáverka
EKIÐ var á mann á Hafnarfjarð-
arvegi skammt sunnai: við brúna
yfir Kársnesbraut í Kópavogi á
mánudag. Hlaut maðurinn alvar-
lega höfuðáverka.
Slysið varð með þeim hætti að
maðurinn ætlaði austur yfír Hafn-
arfjarðarveg. Varð hann fyrir
bifreið sem var ekið suður veginn.
Að sögn lögreglunnar f Kópavogi
er maðurinn vistmaður á Kópavogs-
hæli og á erfítt með að átta sig á
umferðarhraða. Hann lenti í ámóta
slysi á sama stað í febrúar í ár.
visa Jóhann
W visa Karl
Karl Þorsteins og Jóhann Hjartarson tefia í Grundarfirði.
Ljósmynd/Bœring Cecilsson.
!fei! sas
Margeir heldur efsta sætinu
MARGEIR Pétursson er enn í efsta sæti þegar tefldar hafa verið átta umferðir á Skákþingi ís-
lands. Hann hefur nú 5 og hálfan vinning, en skák hans og Jóns L. Ámasonar í gær fór i bið.
Ónnur úrslit í áttundu umferð vom þau að Karl Þorsteins vann Björgvin Jónsson, Davíð Ólafsson
vann Þröst Ámason og Hannes Hlífar Stefánsson vann Dan Hanson. Guðmundur Siguijónsson og
Jóhann Hjartarson gerðu jafntefli og skák Þrastar Þórhallssonar og Sævars Bjaraasonar fór í bið.
100 „afréttarar“ Tillögur Hafrannsóknarstofnunar um hámarksafla 1987:
pantaðir daglega
„YTÐ gemm okkur vonir um að
geta verið búnir að afgreiða þá
rúmlega 2000 afréttara, sem
búið er að panta hjá okkur, um
miðjan næsta mánuð, þegar farið
verður að tmfla útsendingar
Stöðvar 2,“ sagði Birgir Öm
Birgis, verslunarstjóri hjá Heim-
ilistækjum h.f.
Birgir kvað um 100 pantanir á
dag. „Afréttarinn" kostar tæpar 12
þúsund krónur, væntanlega á bilinu
11.500-11.800 krónur, og hefur
fyrirtækið ákveðið að bjóða fólki
greiðslukjör, til dæmis 2000-2500
króna útborgun og eftirstöðvamar
á 10-12 mánuðum.
Lagt til að þorskaflinn
verði 300 þúsund tonn
Borgarráð:
Gjöftil
líftæknihúss
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sinum í gær að leggja fram 7,5
milljónir króna til byggingar
líftæknihúss i Keidnaholti.
Það er Byggingarsjóður rann-
sóknarstofnunnar atvinnuveganna
og Reykjavíkurborg, sem standa að
byggingu hússins. Háskóli íslands
verður eigandi þess og er þetta
framlag borgarinnar til styrktar
liftækniiðnaði í landinu, gefíð í til-
efni 200 ára afmælis borgarínnar
og 75 ára afmælis Háskóla íslands
á þessu ári.
HAFRANNSÓKNARSTOFNUN
hefur sent frá sér tUlögur um
aflamark fyrir næsta ár. Þar er
gert ráð fyrir svipuðum há-
marksafla á flestum nytjafiskum
og á þessu ári að þvi undanskildu
að lagt er til að hámarksafli
þorsks verði 300 þúsund tonn,
sem er 50 þúsund tonnum minna
en á þessu ári.
í skýrslu Hafrannsóknarstofnun-
ar er lagt til að ýsuafli verði 50
þúsund tonn, 65 þúsund tonn verði
veidd af ufsa, karfaafli verði 75
þúsund tonn og afli grálúðu 5000
tonnum minni en á þessu ári, eða
25 þúsund tonn.
í skýrslu Hafrannsóknarstofnun-
ar er nokkuð fjallað um afleiðingar
þess að veiða sama magn af þorski
og í ár og ef leyfður yrði 400.000
tonna hámarksafli. Þar segir að ef
veidd verði 400.000 tonn af þorski
muni það verða til þess að veiði-
stofninn muni standa í stað, en
hryggningarstofninn hins vegar
minnka. Sé reiknað með 350.000
tonna afla þessi tvö ár er tálið að
veiðistofhinn fari hægt vaxandi á
timabilinu 1987-1989 og hryggn-
ingarstofn muni haldast nær
óbreyttur. Því er það að lagt er til
að hámarksafli þorsks verði ekki
meiri en 300.000 tonn vegna þess
að þá muni veiðistofninn vaxa veru-
lega á næstu árum og hryggningar-
stofn verða rúmlega 500.000 tonn
eftir þijú ár.
Þá leggur Hafrannsóknarstofnun
til í skýrslu sinni að síldarafli á
haustvertíðinni í ár fari ekki fram
úr 65 þúsund tonnum og ef forsend-
ur reynast réttar er gert ráð fyrir
70 þúsund tonna heildarafla á
næsta ári. Humarafli er áætlaður
svipaður og verið hefur undanfarin
sjö ár, eða 2.700 tonn, en það er
sem næst kjörsókn í stofninn. Þá
er lagt til að leyfílegur afli hörpu-
disks verði alls 14.550 tonn, og
skiptist hann niður á sérstök svæði
eins og verið hefur, nema hvað
hörpudiskveiðar hafa verið bannað-
ar á næsta ári í Skagafirði, en svo
virðist sem þar hafi of nærri stofn-
inum verið gengið.
Á bls 32 er fjallað nánar um
skýrslu Hafrannsóknarstofnunar.
VMS á móti vinnustaðasamningum:
Nýir samningar ættu að vera
frágengnir fyrir áramótin
- segir framkvæmdastj óri Vinnumálasambands samvinnufélaganna
„VIÐ TELJUM afar mikilvægt
að samningagerðin verði ekki
dregin og helst eiga nýir kjara-
samningar að vera frágengnir
fyrir áramótin,“ sagði Hjörtur
Eiríksson, framkvæmdastjóri
Vinnumálasambands samvinnu-
félaganna, í samtali við Morgun-
blaðið um horfur i samningamál-
um. Gildandi kjarasamningar í
landinu renna almennt út um
áramótin.
Hjörtur sagði það sitt álit og
annarra forystumanna Vinnumála-
sambandsins, að strax þegar menn
væru búnir að átta sig á niðurstöð-
um launakönnunarinnar, sem gerð
er á vegum Kjararannsóknanefnd-
ar, væri rétt að setjast niður við
„Flest myndbandakerfi fjölbýlishús-
anna ekki byggð fyrir tvær rásir“
- segir Jón Þóroddur Jónsson, yfirverkfræðingtlr hjá Pósti og síma
„ÞAÐ hefur aldrei komið til
tals að loka myndbandakerfun-
um í fjölbýÚshúsunum. Það
eina sem við viljum gera er að
lagfæra þau,“ sagði Jón Þór-
oddur Jónsson, yfirverkfræð-
ingur i sambandadeild Pósts og
síma, í samtali við Morgun-
biaðið. „Við viljum leiðbeina
fólki, sem er með þessi svoköll-
uðu Ioftnetskerfi í fjölbýlis-
húsunum og eins því fólki sem
vill byggja upp kapalkerfi í
framtíðinni, inn á réttar braut-
ir þannig að það lendi ekki í
vandræðum með truflanir
vegna nálægðar rásanna."
Unnið er nú að reglugerðum á
vegum Pósts og síma, sem sam-
gönguráðuneytið kemur til með
að gefa út, og eiga þær að upp-
fylla ýmis gæðaskilyrði loftnets-
kerfana, sem er mjög ábótavant,
að sögn Jóns. „Notendur mynd-
bandakerfa eiga heimtingu á því
að tryggt sé að truflanir eigi sér
ekki stað á milli rása, sem fluttar
verða á sama kapalkerfínu, en
með tilkomu annarra sjónvarps-
rása, t.d. Stöðvar 2 nú, er viss
hætta á að truflanir munu eiga
sér stað í þeim húsum sem þegar
eru með myndbandakerfi vegna
nálægðar tíðnanna. Loftnetskerf-
in hafa hingað til verið byggð á
það einfaldan máta að þau ráða
ekki við að taka inn fleiri rásir
samtímis og í sumum tilvikum eru
þau einungis byggð fyrir eina rás.
Sérstaklega er hætta á truflunum
ef tíðnir rásanna eru nálægar
hvor annarri. Vatnsendastöðin er
t.d. á rás 10 en Stöð 2 verður á
rás 12,“ sagði Jón Þóroddur.
samningaborðið. Gert er ráð fyrir
að þær niðurstöður liggi fyrir nú
um mánaðamótin.
Framkvæmdastjóri VMS kvaðst
ekki telja grundvöll fyrir því nú að
gera sérstaka samninga á vinnu-
stöðum eða milli einstakra verka-
lýðsfélaga og atvinnurekenda, eins
og talsvert hefur verið rætt að und-
anfömu. „Ég óttast að. því fyrir-
komulagi myndi fylgja of mikil
ringulreið," sagði hann. „Það gæti
dregist mjög mikið að ná friði á
vinnumarkaði ef gera á samninga
vítt og breitt um landið. Þá er
hætta á að það markmið, sem nán-
ast allir hafa sett sér, það er að
ná verðbólgunni enn meira niður,
færi fyrir lítið ef horfið verður frá
samflotinu."
o
INNLENT