Morgunblaðið - 24.09.1986, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986
Bókasamband íslands:
Fjölmennt þing um framtíð bókarinnar
BÓKAÞING hins nýstofnaða
Bókasambands íslands var haldið
á Hotel Loftleiðum í gær. Tæp
tylft fyrirlesara fjölluðu um mál-
efni bókarinnar á þinginu, en
einkunarorð þess voru “Bóka-
þjóð á krossgötum.“ Ólafur
Ragnarsson, formaður sam-
bandsins, setti þingið. „Fleira
keppir nú um athygli fólks og
frístundir en nokkru sinni fyrr,“
sagði Ólafur í ávarpi sínu. „Við
þurfum að gera upp við okkur
hvaða afstöðu við ætlum að taka
til bókanna, hvaða sess við viljum
skipa þeim í þjóðfélagi okkar á
komandi árum. Þetta er megin-
viðfangsefni Bókaþingsins." Um
200 manns sóttu þingið, sem var
öllum opið.
Á máli fyrirlesara mátti heyra að
flölgun flölmiðla veldur bókamönn-
um nokkrum áhyggjum. Þeir voru
þó sammála um að reynsla annara
þjóða benti til þess að í barátta
bókarinnar við aðra miðla yrði að-
eins til að varpa skýrara ljósi á
sérstöðu hennar. Bókin byði upp á
kosti sem ekki væri hægt að líkja
eftir. Á þinginu var rætt um gam-
alt baráttumál, sem er niðurfelling
söluskatts af bókum. Töldu sumir
að ef verð bóka yrði lækkað með
þessum hætti, myndi sala aukast.
Aðrir bentu á að óvíst væri að verð
bóka hefði bein áhrif á söluna, og
hvort útgefendum væri ekki óbeinn
hagur í því að litið væri á bókina
sem dýran grip.
Kristján Jóhannson, forstjóri Al-
menna bókafélagsins, sagði í erindi
sfnu að bókin ætti í harðri sam-
keppni við aðrar tegundir íjömiðlun-
ar og afþreyingar. Sagði hann að
á hveiju ári væri Reykvíkingum
boðið upp á 130 málverkasýningar,
240 tónleika, 220 bíómyndir og um
50 leikhúsverk. Nýjir titlar á mynd-
bandaleigum eru á bilinu 700-1000.
Þá taldist Kristjáni til að dagblöð,
tímarit og fréttabréf útgefín á ís-
landi væru um 200.
Kristján sagði að sennilega yrði
þróunin sú að bókin myndi hafa
Morpirblaðið/Einar Falur
“Þjóð sem lengi hefur verið
nefnd bókaþjóð stendur nú á
krossgötum" sagði Ólafur Ragn-
arsson, formaður Bokasambands
íslands, í ávarpsorðum sínum
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Við norðurströnd landsins er dálítill lægð-
arhryggur sem þokast í austur, en langt suðvestur í hafi er 995
millibara víðáttumikil lægð, sem þokast í norður.
SPÁ: Suðaustan gola eða kaldi (3—5 vindstig) og sumsstaðar dá-
lítil rigning á suðvestanverðu landinu, en hæg norðlæg átt, þurrt
og víða bjart veður á norður- og austurlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FIMMTUDAGUR og FÖSTUDAGUR: Suðlæg átt og fremur hlýtt.
Skýjað og víða dálítil rigning á sunnanverðu landinu en þurrt og
sum staðar léttskýjað fyrir norðan.
TÁKN:
Heiðskírt
a
<h
Léttskýjað
Hálfskýjað
Alskýjað
Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—{. Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UMHEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hitl veAur
Akureyri 7 skýjað
Reykjavik 7 akúr
Bergen 10 skýjað
Helsinki 10 skýjað
Kaupmannah. 11 súld
Narssarssuaq 1 léttskýjað
Nuuk 2 skýjað
Oaló 11 léttskýjað
Stokkhólmur 10 skýjað
Þórshöfn 9 rignlng
Algarve 28 heiðskfrt
Amsterdam 18 mistur
Aþena 2S rigning
Barcelona 27 léttslcýjað
Berlfn 1S skýjað
Chicago 19 þokumóða
Glasgow 16 skýjað
Feneyjar 24 heiðskfrt
Frankfurt 18 léttskýjað
Hamborg 1S skýjáð
Jan Mayen 1 snjóél
Las Patmas 28 léttskýjað
London 19 mistur
Los Angeles 15 skýjað
Lúxemborg 16 léttskýjað
Madrid 17 skúr
Malaga 29 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Miaml 25 skruggur
Montreal 14 rigning
Nice 24 hálfskýjað
NewYork 18 þokumóða
Parfs 15 skýjað
Róm 25 léttskýjað
Vfn 20 skýjað
Washington 19 þokumóða
Winnipeg 7 reykur
samflot með öðrum tegundum miðl-
unar í ríkara mæli. Þannig gæti
útgáfa bókar haldist í hendur við
Qölföldun hljóð- og myndbanda, eða
tölvuforrita, um sama efni. Einnig
taldi hann líklegt að sérhæfíng
myndi aukast í útgáfu. Um leið
yrði samprenti beitt í ríkara mæli.
Hörður Bergmann Qallaði um
niðurfellingu söluskatts af bókum.
“Mér dettur ekki í hug að halda
því fram að hægt sé að bæta algjör-
lega úr gloppum f íslenskri bókaút-
gáfu og styrkja myndarlega þann
menningargrundvöll sem hvílir á
bókum með þvf einu að fella niður
söluskatt" sagði Hörður. “Fleira
þarf til - en ég fullyrði hins vegar
að engin önnur Ieið yrði fljótfamari
að því marki." Hörður sagði að í
engu öðru landi væri lagður jafn
hár söluskattur á bækur. Veiga-
mestu rökin væru þó þau að sölu-
skattur væri ekki lagður á blöð og
tímarit. Þau stjómvöld sem sam-
þykktu þetta, gætu ekki á sama
tíma skattlagt bækur.
Önnur erindi á Bókaþinginu fjöl-
luðu m.a. um áhrif tölvutækninnar
á ritstörf og útgáfu. Salvör Giss-
urardóttir kynnti nýjar leiðir við
útgáfu bóka, og þann hugbúnað
sem höfundar geta notað við
ritsmíðar. Magnús Einar Sigurðs-
son fjallaði einnig um innreið nýrrar
tækni í prentiðnaðinum og hvatti
til þess að menn ræddu þau félags-
legu áhrif sem hún hefur.
Aðalheiður Bjamfreðsdóttir vék
talinu að þeirri spumingu hvort
„bókaþjóðin“ lesi nóg - og svaraði
henni neitandi. „Það er ekki sama
að eiga bók og lesa bók“ sagði
Aðalheiður. „Bók þarf að lesa, ræða
og lesa upp aftur. Góð bók er eins
og góð kjötsúpa. Betri upphituð !“.
Síðar spurði Aðalheiður: „En eru
dagar bókarinnar senn taldir ? Ég
trúi því ekki. Bók hefur vissa töfra.
Að vonast eftir henni, handQatla
hana, lesa hana, eiga hana upp í
hillu...við getum ekki afsalað okkur
því.“
Undir lok þingsins sté Ólafur í
pontu.dró saman umræðuefni dags-
ins og ræddi um hvaða leiðir væm
sambandinu færar. Að hans mati
virtist svo að menn væru bjartsýnir
um hag bókarinnar og teldu enga
ástæðu til þess að örvænta. Lögð
var fram tillaga stjómar Bókasam-
bandsins um stefnuyfírlýsingu þess
en fundarmenn urðu sammmála um
að hana bæri að vinna betur. Henni
var því vísað aftur til stjómar.
Hreindýravertíð lokið:
Um 400 dýr felld
Hreindýraveiðitímabili er nú ný-
lokið og munu hafa veiðst u.þ.b.
400 dýr. Alls var 32 hreppum á
Austfjörðum, allt frá Langanesi
suður í Homafjörð, úthlutaður
veiðikvóti, samtals 700 dýr.
Veiðitímabilið hófst 1. ágúst og því
lauk 15. september. Hæstu veiði-
kvótum, 66 dýrum, var úthlutað til
Norðfjarðarhrepps og Helgustaða-
hrepps, þá kom Borgarfjarðar-
hreppur eystri með 60 dýr,
Fljótsdalshreppur og Jökuldals-
hreppur með 50 dýr hvor og
Hjaltastaðahreppur með 32 dýr. I
öllum þessum hreppum tókst að
veiða upp í kvóta en í öðrum náðist
aftur á móti lítið sem ekkert T.d.
fékkst ekkert dýr í Egilsstaðahreppi
og í Breiðdalshrepp tvö dýr, en
hvorum hreppi fyrir sig var úthlutað
18 dýrum.
Hvert kg mun vera selt til veit-
ingahúsa á u.þ.b. 600 krónur og á
það við um hrygg eða læri, en bóg-
ar em ódýrari.
Madonna enn
efst á Bylgjunni
Vinsældarlisti Bylgjunnar var
valinn í gær og á hann við vik-
una 23. til 29. september. Tvö
efstu sætin em þau sömu og
síðast. Madonna hafnaði aftur í
fyrsta sæti og lagið Holiday Rap
lenti í öðra sæti. Þá komu tvö
ný lög inn á listann, annað með
Eurythmics og hitt með Huey
Lewis and the News.
1 (1) Laisla Bonita.Madonna
2 (2) Holiday Rap..N.C. Miker
G. og Deejay Swen
3 (4) Braggablús...Bubbi Mort-
hens
4 (13) We don’t have to.......
Jermaine Stewart
5 (-) Thom in my sight.....Eu-
rythmics
6 (8) So Macho....Sinitta
7 (17) Ég vil fá hana strax....
Greifamir
8 (6) Human....Human Legue
9 (-) Stuck with you.....Huey
Lewis and the News
10 (3) Dancing on the ceiling.....
Lionel Richie