Morgunblaðið - 24.09.1986, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986
5
Fyrirlestur
um notkun
senditækja
við lífeðlis-
fræði legar
rannsóknir
Dr. G. Edgar Folk, prófessor í
lífeðlisfræði við háskólann í
Iowa í Bandaríkjunum, heldur
fyrirlestur annað kvöld,
finuntudag, á vegum Rann-
sóknarstofu Háskóla íslands í
lífeðlisfræði. Fyrirlesturinn
verður fluttur á ensku og nefn-
ist „Notkun senditækja við
lífeðlisfræðilegar rannsóknir".
Fyrirlesturinn verður fluttur
að Grensásvegi 12, 2. hæð og
er öllum opinn.
I fyrirlestrinum mun verða fjallað
um þá tækni, sem gerir það kleift
að fá lífeðlisfræðilegar upplýsing-
ar frá dýrum, sem lifa frjáls í
nátt- úrunni. Litlum sendum er
annað hvort komið fýrir inni í
dýrinu eða utan á því. Þetta gefur
meiri upplýsingar en hægt hefur
verið að fá með sendum, sem ein-
ungis rekja slóð dýranna.
Dr. G. Edgar Folk
Prófessor Folk mun í fyrirlestr-
inum sýna og segja frá notkun
sendis, sem hann kallar „Iowa
sendi". Hann mælir hjartsláttar-
tíðni og líkamshitastig og tekur
hjartalínurit. Tækni sem þessa er
einnig hægt að nota til að taka
heilalínurit og mæla blóðþrýsting
og blóðflæði. Þó aðeins sé mæld
hjartsláttartíðni, er hægt að fá
með því mikilvægar upplýsingar
um virkni dýra og efnaskipta-
hraða vegna þess að slagmagn
hjartans breytist lítið við eðlilega
virkni heilbrigðra dýra. Prófessor
Folk mun sýna notkun á „Iowa
sendi“ og segja frá mælingum
sínum á líkamshitastigi stórra
dýra í dvala.
Aðalfundur alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar:
Þurfum að leggja
meiri fjármuni til
fræðslu gegn alnæmi
- segir Ólafur Ólafsson landlæknir.
ALNÆMI, útbreiðsla og vamir gegn sjúkdómnum, var með-
al þess sem rætt var á árlegum aðalfundi Alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar sem nýlega var haldinn. Olafur Ólafsson
landlæknir sótti fundinn og sagði hann ljóst að brýnt væri að
auka enn frekar fræðslu hér á landi um smitleiðir og hvernig
bregðast beri við sýkingu.
„Við höfum gert það sem aðrar
þjóðir hafa gert, reynt að halda
uppi fræðslu um alnæmi," sagði
Ólafur. „Og ég held að við stöndum
nokkuð vel að vígi, en það er erfitt
að segja til um framtíðina. Við
munum herða allt eftirlit en það sem
best dugar er fræðsla um alnæmi
því við vitum að menn geta gengið
með veiruna í sér í 2 til 8 ár áður
en einkennin koma fram.“ Hann
sagði að nauðsynlegt væri að þeir
sem væru með smit og hefðu vitn-
eskju um það, gerðu ráðstafanir til
að smita ekki aðra. Góður árangur
hefur náðst með upplýsingaþjón-
ustu Borgarspítalans og Landspítal-
ans um sjúkdóminn. Margir hafa
snúið sér til síns heimilislæknis, sem
síðan hefur sent sýni í rannsókn.
„Menn óttast að enn vanti mikið á
að þeir sem eru með smit komi til
rannsóknar á sérstökum alnæmis-
deildum vegna fordóma annarra,
sem af því gætu frétt,“ sagði Ólaf-
ur.
Ólafur benti á í ræðu sinni á
fundinum að ekki væri hægt að
einskorða áhættuhópinn við
homma, eiturlyfjaneytendur eða
blæðara. Allir sem hafa kynmök
taka mismikla áhættu. Fulltrúar
Evrópuþjóða á fundinum voru
margir þeirrar skoðunar að alnæmi
breiddist hægar út í Evrópu en raun
varð á í Bandaríkjunum. Þar hafði
sjúkdómurinn náð þó nokkurri út-
breiðslu áður en gripið var til
gagnráðstafana.
Mikið framboð á flugmönnum:
Tæplega 100 sóttu
um flugmannsstöður
hjá Flugleiðum
„ÞAÐ LIGGUR ekki ljóst fyrir
hvað verður ráðið í margar stöð-
ur,“ sagði Már Gunnarsson,
starfsmannastjóri Flugleiða, en
umsóknarfrestur um lausar stöð-
ur flugmanna hjá félaginu rann
út um helgina og að sögn Más,
voru umsækjendur 98 að tölu.
Már sagði að þar sem enn væri
verið að ræða aukin umsvif Flug-
leiða á næsta ári, væri ekki ljóst
hve margir flugmenn yrðu ráðnir.
Akvörðun þess efnis myndi hins
vegar liggja fyrir eftir fáeina daga.
Már vildi ekki giska á hvað stöðum-
ar gætu orðið margar, en sagði þó
að ljóst væri að nokkuð margir
umsækjendur væru um hveija
stöðu.
„Við erum nú ekki farnir að vinna
úr öllum umsóknunum, en í fljótu
bragði sýnist mér þetta vera bæði
reynslulitlir flugmenn, sem nýlega
hafa lokið prófi, og menn sem hafa
starfað við flug annars staðar,“
sagði Már.
Hann sagði að svo virtist sem
atvinnutækifæri væra ónóg, miðað
við fjölda flugmanna og væri því
framboð á flugmönnum hérlendis
meira en eftirspum. Dæmi væra
um að íslenskir flugmenn sæktust
eftir störfum erlendis, en það reynd-
ist sumum erfitt, sökum strangra
krafna um flugreynslu.
Skýrsla Umferðarráðs:
Flest slys urðu
FLEST slys sem orðið hafa í
umferðinni á þessu ári urðu í
ágústmánuði. Þá urðu 69 slys
með meiðslum og 2 dauðaslys.
Þetta kemur fram í nýútkominni
skýrslu Umferðarráðs. Töluverð
fjölgun varð á slysum í ágústmán-
uði miðað við júlímánuð, en þá urðu
51 slys með meiðslum og 2 dauða-
slys. í ágúst í fyrra urðu 51 slys
með meiðslum, en ekkert dauða-
slys. Umferðarslysum hefur fækkað
frá því í fyrra, vora þá 397 á tíma-
bilinu frá janúar til ágúst, en era
í ágúst
nú 327. Dauðaslysum hefur hins
vegar fjölgað úr 13 í 17 á þessu ári.
Enn stendur yfir átak lögregl-
unnar og Umferðarráðs gegn of
hröðum akstri og ölvunarakstri,
sem hófst í sumar.
SPLUNKUNY
OG SPRELLFJÖRUG ER KOMIN í BÆINN OG
SKEMMTIR NK. SUNNUDAGSKVÖLD
28. SEPTEMBER í
BKCADWAT
FJÓRTÁN FJÖRKÁLFAR FRUMSÝNA í REYKJAVÍK.
Ath:
nú er kjörið tæki-
færi fyrir þá sem
vinna á föstu-
dags- og laugar-
dagskvöldum að
bregða sér á
góða skemmtun
á sunnudags-
kvöldi.
Miðasala og miðapantan-
ir í sfma 77500 kl.
11.00-19.00.
Matseðill:
Koniaks-
löguð
sjávarrétta-
súpa
Gljáður
hamborgar-
hryggur
Triffleis
Ný, stærri, fjölbreyttari, frískari og fjör-
ugri. Stórstjarnan Diddú, Raggi,
Maggi, Bessi, Hemmi, íslandsmeistar-
arnir í frjálsum dansi, Svörtu ekkjurnar
og hljómsveitin hressa fara á kostum
og nú verður tjúttað og trallað af öllum
lífs og sálarkröftum.
HITTUMST HRESS
W&ínW/