Morgunblaðið - 24.09.1986, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986
v 1 j
[t'" \ ' ~ M K ' ' í zEÍi Ki't, ]
Munaðarfullar
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Eftir sumarstarfið og ýmsar
hressilegar upphengingar á verk-
um fjölmargra listamanna, sem
Gallerí Borg hefur nú á lager,
hefur það aftur almenna sýning-
arstarfsemi sína. Þetta er hárrétt
þróun að mínu mati og mjög í
anda þess, sem gerist víða um
Evrópu, en þar opna mörg gall-
eríinn dyr sínar sama dag að
hausti, og er þá mikið um dýrðir
og sérstaklega vandað til veitinga.
Listamenn hittast þá aftur eftir
að hafa margir hveijir verið í sum-
arhúsum upp til sveita eða á
ferðalögum víða um heim og er
þá glatt á hjalla.
Eg upplifði eina slíka uppá-
komu í Dússeldorf fyrir nokkrum
árum og gleymi henni seint. Sér-
stök stórveisla var í listahöll
borgarinnar og í hveiju einasta
galleríi, sem litið var inn í, var
uppábúið og glatt fólk að heils-
ast, knúsast og kyssast . ..
Það er Harpa Bjömsdóttir
sem ríður á vaðið með fyrstu
einkasýningu haustsins í húsa-
kynnunum. Svo sem segir þá er
Harpa af árgangi 1955 og hefur
lokið námi í MHÍ. Hún dvaldi í
Höfn á sl. ári og hélt þar eina
sýningu í Gallerí Gerly. Hefur
haldið nokkrar einkasýningar og
tekið þátt í samsýningum heima
og erlendis. Harpa vinnur jöfnum
höndum í málverki og grafík og
efniviður hennar eru ýmiss konar
táknmyndir af fuglum, fiskum og
mannskepnunni, af tvíeðli, ást-
arbríma og afl skáldskaparins.
Myndir Hörðu hafa tekið allmikl-
um stakkaskiptum frá því að hún
sýndi í „flotta galleríinu" á Vest-
urgötunni fyrir tæpu ári. Formin
eru stærri og heilli, en samt hefur
hún í engu glatað þeim ferskleika
sem einkennt hafa myndir henn-
ar. Og það segir sig sjálft að það
tekur langan tíma að beisla slíka
óhefta sköpunargleði, sem lista-
konan virðist búa yfir í ríkum
mæli og gera það á þann hátt að
tjákrafturinn eflist og styrkist.
Þetta hefur Hörpu tekist um
margt, en segja verður að um
sumt eru sumar nýjustu myndir
hennar full skreytikenndar (dek-
oratívar). Minna að nokkru á
skreytingar á leirmuni, einföld,
létt og fín strik og stórar form-
blakkir, gædd miklum yndis-
þokka, en skilja ekki mikið eftir
sig, en sem gott er að hafa í ná-
grenni sínu.
Sumar myndir Hörpu minna og
á ýmislegt úr nýbylgjumálverkinu
og hér nær hún að hemja það
undir sinn létta og leikandi stíl.
Ég vil hér nefna nokkrar myndir
myndir
sem sérstaklega höfuðu til mín
fyrir stermmningarríkan tjákraft,
„Afbrýðisama augað“ (2), „Án
titils" (9) og „Án titils" (10). Hins
vegar kunni ég miklu síður við
myndir líkt og „Án titils" (14) og
„Án titils" (15) vegna þess að
báðar virka þær of skreytikenndar
og eru ekki nægilega markvissr
í formrænni byggingu og skera
sig að því leyti úr öðrum myndum
á sýningunni. Grafík Hörpu á sýn-
ingunni eru saga út af fyrir sig
og mjög svo frábrugðnar máluðu
verkunum. í þeim er rík, mettuð
og fíngerð stemmning sem stað-
festir að Harpa býr yfir ágætum
„artistískum" hæfileikum, svo
sem ég hef skilgreint þetta hugtak
í blaðinu áður. Þessa hæfileika
hefur Harpa í svo ríkum mæli að
fágætt er meðal íslenzkra grafík-
era og mætti hún gjaman leggja
meiri rækt við þá hlið. Að vísu
koma þeir einnig fram í máluðu
myndum hennar, en á annan hátt
og þá meira á yfirborðinu. I
grafíkinni eru þeir dýpri og þótt
sviðið sé hér nokkuð einhæft, þá
finn ég í þeim öllum meiri list-
ræna lifun.
Harpa má una vel við þann
árangur sem hún hefur náð frá
síðustu sýningu og ljóst er, að hún
er á miðju þroskaskeiði og hefur
alla burði til að bæta mikið við
sig í náinni framtíð.
Líkið sem lifnaði
Békmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Kjartan Árnason:
Dagbók Lasarusar.
Brot úr glötuðu handriti.
Örlagið 1986.
Kjartan Ámason skiptir bók sinni
í marga kafla og kemur Lasarus
alls staðar við sögu í nafngiftum
kaflanna, samanber Lasarus við
sjálfan sig, Lasarus ræðir skáldskap
og Lasams um ýmis málefni.
Bókin er sem slík nokkuð vel upp
byggð og höfundurinn kemst oft
Tónlistargagnrýni leiðrétt
í GAGNRÝNI Jóns Ásgeirsson-
ar í Morgunblaðinu I gær um
Sinfóníuhljómsveit æskunnar
féllu niður nokkrar setningar.
Lesendur eru beðnir afsökunar
á því og verður hér á eftir birt-
ur sá kafli greinarinnar í heild
sem brenglaðist:
Béla Bartók sagði eitt sinn, að
er hann tók til við að semja, hafi
honum orðið ljóst að sköpun tón-
listar yrði að vera helguð
„bræðralagshyggð meðal
manna", annars væri hún í raun
erindisleysa. Það sem liggur að
baki orðum þessum, er sú stað-
reynd, að tónlist er eitthvert
sterkasta afl til að stofna til sam-
virkni manna á meðal, svo vel
má sjá í dag, bæði á sviði
skemmtitónlistar og alvarlegrar.
Þessi samvirkjandi kraftur þarf
auðvitað að vera helgaður mann-
bætandi markmiðum, annars er
hætta á að hið uppvakta afl fjöld-
ans geti eitrast og umsnúist í
afskræmingu. Tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar æskunnar er lýsandi
dæmi um það hversu stórbrotin
sú mannfylking getur orðið, þegar
vel tekst til í vefnaði örlaganom-
anna. Þama gat að heyra hetjuóð
eftir Wagner, byggðan á stórbrot-
inni örlagasögu Niflunga, tón-
fagran leik í fiðlukonsert eftir
Haydn og stórbrotið og persónu-
legt tónaljóð eftir Schostakovich,
flutt af íslenskum ungmennum
undir stjóm bandaríska fiðluleik-
arans og stjómandans, Marks E.
Reedman. Þetta var því mikil og
stórkostleg veisla.
Jón Ásgeirsson
hnyttilega að orði og yrkir stöku
sinnum laglega. Eitt besta ljóðið
er þó ekki eftir hann sjálfan, heldur
Norðmanninn Jan Erik Vold og
gegnir hlutverki einkunnarorða:
drápen
henger der
ikke
Kjartan Ámason er gárungi í
ljóðagerð og iðkar ekki mjög alvöm-
gefinn skáldskap nema í skjóli
gamanseminnar. Svona er til dæm-
is ljóðið í miklum hita:
Og loftið so þykkt
að í hvert sinn
sem það gengur frammúr
öndunarfærunum
er það afsteypa
af lungunum
... orðin so þunn
að þau bera engan vott
um hugsun.
Kjartan Ámason leikur sér að
orðum og hugmyndum í Dagbók
Lasarusar, hefur endaskipti á kunn-
uglegum hlutum og er með ýmsar
fijálslegar útleggingar gamals og
nýs texta. Málfar er yfirleitt vandað
og dregur dám af talmáli.
Nýjar bækur frá
Norsk Gyldendal
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Line Baugstö: Reise i gult lys.
Útg. Gyldendal Norsk Forlag
1986.
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
nokkrar nýútkomnar bækur Norsk
Gyldendals og verður þriggja getið
hér og væntanlega fleiri síðar.
Ferð í gulu ljósi fékk viðurkenn-
ingu í samkeppni sem forlagið efndi
til á sl. ári meðal kvenna.
Line Baugstö er tuttugu og fimm
ára gömul, starfar við blaða-
mennsku. Þetta er fyrsta bók
hennar. Ferð í gulu ljósi er að form-
inu til skáldsaga, þar segir frá fimm
evrópskum ungmennum, sem eru á
flakki og flandri um Suður Afríku.
Þau eira hvergi og eru rekin áfram
af einhverri innri ókyrrð á nýjaii
SCOBIE er aðalpersónan í einni af
þekktari skáldsögum Grahams
Greene. Þar segir frá brezkum lög-
regluforingja sem á í ástarævintýri
meðan eiginkona hans er í burtu.
Þegar hún kemur heim aftur frem-
ur hann sjálfsmorð þar sem hann
hafði gengið til altaris án þess að
skrifta.
I þessari bók eru tvær langar
smásögur og í annarri þeirra er
aðalpersónan einmitt ákaflega upp-
tekin af hugtakinu dauðasynd.
Einnig er hann áfram um að velta
því fyrir sér af hveiju Graham
Greene hefur aldrei fengið Bók-
menntaverðlaun Nóbels. Ögn
hljómar þetta nú fáránlega, en er
ekki eins fáránlegt og maður skyldi
halda. Og Áge Rönning er flínkur
höfundur sem kann að segja sögu
og form smásögunnar virðist eiga
og nýjan stað og loks liggja leiðir
þeirra saman, þegar þau fara í ferð
upp Amazonfljótið. Sú ferð er ákaf-
lega nærri því að verða að martröð
og hið ævintýralega og undursam-
lega — töfrar fljótsins óg allt það
— er hvergi nærri. Line Baugstö
lýsir þessum ungmennum á ansi
skemmtilegan og nýstárlegan hátt,
í raun og veru eru þau ekki þátttak-
endur í heiminum, þau notfæra sér
heiminn og hvert annað án þess að
vera fær um að gefa af sjálfu sér.
Og það sem meira er þau hafa ein-
hvers staðar á leiðinni misst hæfi-
leikann til að njóta. Þetta er um
margt óvenjuleg bók, listilega gerð
og forvitnilegt verður að fylgjast
með því sem þessi stúlka sendir frá
sér á næstunni.
Áge Rönning: Husker du
Scobie
Útg. 1986.
Kjartan Ámason
í viðleitninni til að vera fyndinn
tekst honum oft að villa um fyrir
lesandanum, láta eins og ekkert sé
sagt í alvöru. En það er nú síður
en svo. Margt kemur upp um skop-
fuglinn. Til dæmis eftirfarandi
texti, að mínu viti góður:
Þarsem snjóhvítan skjöldinn
ber við himin
undir brennandi sól
verður birtan sem
milljón sólir skíni;
soldið einsog þessi
jökull
ert þú
bjartur en kaldur. (Skilningur)
við hann bærilega. Fyrri sagan
Member of the Club gerist í Man-
illa á Filippseyjum, dramatisk saga
og ákaflega myndræn og áhrifa-
mikil. Seinni sagan gerist í Algarve
og Lissabon. Aðalpersónan er
sennilega sú sama í báðum sögum.
Norðmenn segja býsna góðir með
sig, að Rönning sem er nú liðlega
sextugur að aldri, sé mesti heims-
borgarinn í hópi norskra rithöfunda
og það má sjálfsagt til sanns vegar
færa í þessari bók, að hann er ákaf-
lega vel að sér, að því er bezt verður
séð um staðhætti. Hvort þanka-
gangur hans er heimsborgaralegri
en gengur og gerist áttaði ég mig
ekki á eftir þessari einu bók. Hann
hefur fengið ýmiss konar viður-
kenningu fyrir ritstörf sín seinni
árin. Hann hefur einkum skrifað
skáldsögur, og sent frá sér nokkur
smásagnasöfn. Á undan Husker du
Scobie kom Et Satans Spill, smá-
sögur fyrir tveimur árum.
Anker Rogstad: Ærens pris,
skáldsaga.
Útg. 1986.
HJÓN um sextugt, hann Norðmað-
ur og heitir Morten og hún Marion
ensk að uppruna eru að undirbúa
ferðalag til systra hennar í Eng-
landi. Þau rifja upp gamlar endur-
minningar sínar og þá kemur upp
í hugann sá atburður, þegar þau
fundu enska heiðursmerkið ...
skrítnar aðstæður þá og furðufugl-
ar, mennimir sem virtust hafa
tapað því. Marion og Morten ákveða
að taka heiðursmerkið með sér og
reyna að koma því til skila þótt
langt sé um liðið. Og þar með fer
að færast fjör í leikinn. Einhverjir
komast fljótlega á snoðir um að þau
hjónin eru að spyrja óþægilegra
spurninga — sem þau gera sér enga
grein fyrir að séu óþægilegar. Og
snuðra. Án þess að þau viti að þau
séu að snuðra. En svo fer að renna
upp fyrir þeim Ijós og þá láta þau
sig ekki muna um að fara í hlut-
verk leynilögregluhjónanna af hinni
mestu útsjónarsemi. Og leysa málin
að lokum og verður það að teljast
vel af sér vikið því að mikil eru
málin og flókin.
Bráðskemmtileg, hnyttin og læsi-
leg bók. Hjónin eru ljómandi
persónur af hálfu höfundar. Hins
vegar er seinni hlutinn í það lang-
dregnasta, svona unz kemur að
lokakaflanum. En þetta er mesta
sómaafþreying.