Morgunblaðið - 24.09.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986
31
Nýr vöruflutningabíll Guðmundar Benjamínssonar
Stykkishólmi:
Nýr vöruflutninga-
bíll bætist í f lotann
BIFREIÐAR eru nú mest notaðar til vöruflutninga til Stykkishólms
og nágrennis. Guðmundur Benjamínsson hefur nú tvo stóra bíla til
að annast þessa þjónustu og hefur verið nóg að gera til þessa enda
starfræksla mikil og þjónusta í Stykkishólmi.
Nú hefur Guðmundur fengið sér hann nú að útbúa bflinn fyrir slát-
einn vöruflutningabíl í viðbót. Hann urtíð. Mun hann með þessum bfl
er af gerðinni Benz, sex hjóla og annast alla eða meirihluta þeirra
16 tonna. Þennan bíl hyggst Guð- flutninga sláturfjár sem hér fara
mundur nota til fjárflutninga fyrir fram.
sláturhúsið í Stykkishólmi og er Árni
aDaimmD
MEÐAL EFNIS:
Iðnaðarfiúsnæði breytt í íbúðir
Þannig býr Agla Marta
Þurrabúð í Grindavík gerð að
sumarbústað
Sérstæð húsgögn frá
París
Þannig varð Undraland til
Almanak garðeigandans
Öðruvísi skrifstofuhúsnæði
þótl forsíðan sé öðruvtsi en þú átl
að venjast. Hús &1H íbýli er nefnúega ekkert venjulegt blað.
ÞÚ FÆRÐ HÚS & HÍBÝLI
Á NÆSTA BLAÐSÖLUSTAÐ
ÁSKRIFTARSÍMINN ER 83122.
Jóhannes G. Marías-
son — Minning
Fæddur 10. september 1894
Dáinn 15. september 1986
Þessar örfáu línur eru skrifaðar
til minningar um afa minn, Johann-
es Gísla Maríasson. Hann fæddist
í Vatnadal í Súgandafirði 1894 og
bjó lengst af á Suðureyri við Súg-
andafjörð.
Fyrstu verulegu kynni mín af afa
voru þegar hann, amma og lang-
amma fluttu ásamt mér og mömmu
á Leifsgötuna í Reylqavík árið
1966. Afi var fróður og ólatur við
að innræta litlum 5 ára kút góða
siði. Hann kenndi mér að tefla og
spila. Síðar meir þegar ég kom
dauðþreyttur heim úr fótbolta á
kvöldin, eyddum við oft löngum
stundum í stjórnmálaumræður eða
spjölluðum um íslendingasögumar.
Hann var vel að sér í hinum fjöl-
breytilegustu málefnum. Eins var
með ömmu mína, hana Gústu. Eru
mér sérstaklega minnisstæðir
morgnamir er hann vakti mig í
skólann og morgunmaturinn þá til-
búinn á borðinu. Var hann þá löngu
vaknaður. Ég naut sem sé þeirrar
gæfu að hafa afa og ömmu á heimil-
inu.
En lítill stubbur vex úr grasi.
Afi og amma fluttu á Hrafnistu
eftir 15 ára búskap á Leifsgötunni.
Árið 1985 lést amma mín. Vakti
þá afi yfir henni síðustu vikumar
þótt níræður væri orðinn. Gísli afi
var hress og kátur allt þar til þrem
dögum fyrir andlátið, er hann fékk
heilablóðfall. Með vísukomi því er
hér fylgir vil ég þakka afa fyrir
allar samverustundir á liðnum árum
og megi guð geyma hann.
Lækkar lífdaga sól.
Lðng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
feginn hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá
(Höf. Herdís Andrésdóttir)
Gísli Sveinsson
Leiðréttíng
í ffétt um gerð kórmyndar í
Háteigskirkju í Morgunblaðinu í
gær, misritaðist nafn sóknarprests-
ins, séra Tómasar Sveinssonar.
Beðizt er velvirðingar á pessu.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
8træti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3
erindi og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildif ef sálmur er
birtur. Meginregla er sú, að
minningargreinar birtist undir
fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfféttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel ffá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
VETRARNAMSKEIÐ
HEFST 29. SEPT.
LIKAMSRÆKT OG MEGRUN
fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum.
FRAMHALDSFLOKKAR
Þyngri timar, aðeins fyrir vanar.
t n uEm
KERFI i f RÓLEGIR TÍMAR fyrir eldri konur eða þær sem þurfa að fara varlega.
M jl r
hAEROBIC J.S.B.
Okkar útfærsla af þrektímum með góðum teygjum. Hörku púl- og svitatimar
fyrir ungar og hressar.
MEGRUNARFLOKKAR
4x i viku fyrir þær sem þurfa og vilja missa aukakilóin núna.
Morgun- dag- og kvöldtímar,
sturta — sauna — Ijós.
Allir finna flokk við
sitt hæfi hjá JSB
Innritun hafin.
Suðurver, sími 83730.
Hraunberg sími 79988.
LIKAMSRÆKT
JAZZBALLETTSKÓLA
BÁRU