Morgunblaðið - 24.09.1986, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986
37
= HEÐINN =
VELAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
getrluna
VINNINGAR!
5. leikvika — 20. sept. 1986
Vinningsröð: X2X-21 2-X1 1-21 1
1. vinningur: 11 réttir,
kr. 83.580,
10733 45854(6/10)(2/11) 102185(6/10)+ 128904(6/10)
12697(1/10)+ 99596(6/10) 128157(6/10) 200297(12/10)
2. vinningur: 10 réttir,
kr. 2.286,-
157 7619 14428 46601 57006 125631+ 201252
722 8302 15325* 47055 57198* 125664+ 207191
985 8741 16318+ 47599 57426 125667+ 207194*
1031 9308+ 40408 51532* 57491+ 126422 542518
1322 9634 41289 51793 58603 127413* Úr 4. viku:
1720 9670 41457 52498 58412* 127881+ 10874
1721 10890+ 41487* 54094 58633* 128016 45523
1853 11238 42533+ 54664 59096 128329 55858
3268 11765 42546+ 55251 60429+ 128615
3395+ 11766 43061 55470 95309* 128896
4268 12194 44030 56638 98036 129007
4438 12986 44524 56677 10127 130157*
7549 14352 45112 56796* 100689 130190+
* = 2/10 Kœrufrestur er til mánudagslns 13. okt. 1986 ki. 12.00 á hádegi
íslenskar Getraunir, íþróttamiðstöðinni v/Sigtún, Reykjavík
Kœrur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöö fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í
Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kserur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvisa stofni eða senda stofninn og fullar
upplýsingar um natn og heimilisfang til Islenskra Getrauna fyrir lok kærufrests.
lnnilegar þakkir sendi ég öllum þeim sem
glöddu mig og sýndu mér hlýhug á 70 ára
afmœli mínu þann 19. ágúst sl. GuÖ blessi
y u öll. Ragnheiður Aðalsteinsdóttir,
Halakoti.
Damson og Mandel í Algjört klúður.
Algjört klúður
eftir Edwards
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
AJgjört klúður (A Fine Mess).
Sýnd í Stjörnubíói. Stjömu-
gjöf: ★ ★ Bandarísk. leik-
stjóri og handritshöfundur:
Blake Edwards. Framleið-
andi: Tony Adams. Tónlist:
Henry Mancini. Kvikmynda-
taka: Harry Stradling. Helstu
hlutverk: Ted Danson, Howie
Mandel, Richard Mulligan,
Stuart Margolin, Maria Conc-
hita Alonso, Jennifer
Edwards og Paul Sorvino.
Blake Edwards gerði einhverjar
skemmtilegustu gamanmyndir
síðasta áratugar þegar hann end-
urlífgaði myndir sínar um Bleika
pardusinn frá sjöunda áratugnum
í dýrðlegri samvinnu við Peter
Sellers. Þeir væru sjálfsagt enn
að gera Pardusmyndir ef Sellers
hefði ekki látist langt um aldur
fram, en síðan þá hefur Edwards
gert brandaramyndir eins og
„10“, S.O.B., Victor/Victoria og
Micki and Maude með misjöfnum
árangri. Victor/Victoria er hans
besta mynd á þessu tímabili en
Julie Andrews og Dudley Moore
hafa skipst á að fara með aðal-
hlutverkin í myndum hans. í sinni
nýjustu, Algjört klúður (A Fine
Mess), sem sýnd er í Stjömubíói,
skiptir Edwards algerlega um
andlit og fær frægar bandarískar
sjónvarpsstjörnur til að leika aðal-
hlutverkin, þ.e. Ted Danson
(Staupasteinn) og Howie Mandel
(St. Elsewhere). /
Þeir leika vini sem ætla sér að
græða á veðreiðasvindli mafíós-
ans Toni Pazzo (Paul Sorvino) en
kauðalegir útsendarar hans (Rich-
ard Mulligan (Löður) og Stuart
Margolin) komast á snoðir um það
og upphefst þá eltingaleikur sem
endar í dæmigerðu edward-ísku
hafaríi. í kynningu með myndinni
segir að Edwards hafi ætíð haft
mikið dálæti á þeim Stan Laurel
og Oliver Hardy en þessi hrifning
hans kemur fram í bófunum sem
Mulligan og Margolin leika. Þeir
leggja sig í framkróka við að
herma eftir þeim Gög og Gokke
og tekst það bærilega.
Annars eru þær sjónvarps-
stjörnur sem maður kannast við
í myndinni, þ.e. Danson og Mullig-
an, lítt frábrugðnir því sem þeir
eru/voru í sjónvarpsþáttunum
sínum. Danson er óforbetranlegt
kvennagull sem fyrr og Mulligan
er gersamlega absúrd fæðingar-
hálfviti. Aðrir leikarar eins og
Paul Sorvino, Howie Mandel og
Maria Conchita Alonso fara vel
með sínar innantómu en oft
spaugilegu Edwardstýpur sem
hjálpa til við að vera algjört klúð-
ur að sárasaklausri skemmtun
fyrir þá sem á annað borð hafa
gaman af Blake Edwards.
Tvítug japönsk stúlka með áhuga
á tónlist, kvikmyndum o.fl.
Midori Tomooka,
Miyamoto Seikei,
5-65 lchome, chuo-machi,
Nakasu-shi,
Oita 871,
Japan.
Sautján ára japönsk stúlka.
Erika Abe,
2648-64 Muramatsu Tokai,
Nakagun Ibaraki,
319-11 Japan.
Enn er hitastillta bað-
blöndunartækiðfrá
Danfoss nýjung fyrir
mörgum. Hinirsemtil
þekkjanjótagæða
þeirraogundrast
lágaverðið.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2.REYKJAVIK
NÝR
FROTTESLOPPAR
Stuttir - síðir. Fjöldi lita. Með og án
' hettu. Verð frá 1.795.
lympíi
Laugavegi 26, s. 13300 — Glæsibæ, s. 31300
Reiðhjóladans
enna-
vinir
OG FULLKOMNARI
OFNHITASTILLIR
FRÁ DANFOSS
BMX meistaramir (RAD). Sýnd
í Regnboganum. Stjörnugjöf:
★
Bandarísk. Leikstjóri: Hal
Needham. Handrit: Sam Bera-
ard og Geoffrey Edwards.
Tónlist: James Di Pasquale.
Helstu hlutverk: Bill Allen, Lori
Loguhlin, Ray Walston, Jack
Weston, Bart Conner, Talia
Shire.
Ef marka má grein sem birtist
í nýlegu hefti bandaríska vikurits-
ins Time gengur yfir della í
Ameríku þessa dagana sem er
einskonar breikdans á hjólum —
reiðhjólum. Allt í einu hafa menn
fundið það upp að hægt er að
dansa við reiðhjólið sitt á lystileg-
an hátt og hrífa m.a. með því
gellumar. Eða eins og eitt við-
talsefnið í Time-greininni segir
óhátíðlega: „Þetta er ágæt aðferð
til að ná sér í stelpu".
Gru Jones (Bill Allen) notar
þessa lystilegu en hættulegu að-
ferð með góðum árangri í nýjustu
mynd Hal Needhams (The Smok-
ey and the Bandit, The Cannon-
ball Run), BMX meistaramir
(Rad, sem þýðir á máli reiðhjóla-
breiksins að vera góður í grein-
inni). Gru er ansi góður reiðhjóla-
breikari og vinnur hug og hjarta
Christian (Lori Loghhlin) á dans-
gólfínu á menntaskólaballinu og
þarf ekki að taka það fram að
þau dansa saman á reiðhjólunum
sínum. Hefðbundin skólaböll em
greinilega að verða púkó.
En svo fær Cru alvörutækifæri
til að sýna hvað í sér og hjólinu
Rétt val á
sjálfvirkum
ofnhitastillum
heldur orkukostnaöi
í lágmarki.
Leitið ráða
hjá okkur.
hans býr þegar halda á meirihátt-
ar BMX-hjólamót í smábænum
hans. Þangað flykkjast allir bestu
BMX-meistarar heimsins að reyna
með sér í íþrótt sinni en það eru
auðvitað aðeins tveir sem skipta
máli, Cm og aðalkappinn Bart
Taylor (Bart Conner). Taylor er
stjómað af feitum, ríkum bisness-
manni, er Jack Weston leikur
mjög vel, sem á allt undir því að
hann vinni og er því óþægur ljár
í þúfu Cm. En af því það er Need-
*JR-
Atriði úr BMX-meisturunum.
ham sem leikstýrir þarf ekki að
spyija að leikslokum. Og þvert á
við það sem gengur og gerist í
bíómyndum þessa dagana tekur
skúrkurinn tapinu eins og sannur
íþróttamaður svo allir vinna að
lokum.
Needham er heppinn að hafa
reiðhjólabreikið til að lappa uppá
slappa sögu og barnalegan leik-
inn. Þær em með ólíkindum list-
imar sem ungmennin framkvæma
á hjólunum sínum líkt og ekkert
sé þeim ómögulegt. Krakkar ættu
að geta haft gaman af þessu.
Fullorðnir verða bara að dansa
upp á gamia mátann.