Morgunblaðið - 24.09.1986, Blaðsíða 47
f
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986
47
Af
ungum
herra;
manni
með
gulrót
Scanorma heitir skandinaviskt
tímarit, sem dreift er ókeypis
til farþega í öllum vélum SAS-
flugfélagsins og hefur því, eins
og gefur að skilja, töluverða út-
breiðslu. í sumarhefti tímaritsins
er m.a. fjallað um norræna mynd-
listarsýningu í Málmey, undir
fyrirsögninni „Masters From the
North", „Meistarar frá norðinu".
Eini íslendingurinn, sem getið
er um í greininni er listmálarinn
Helgi Þ. Friðjónsson og fylgir stór
mynd af einu verka hans, kopar-
stungu í lit, er ber heitið „Ungur
herramaður með gulrót".
Segir greinarhöfundur, Bo
Nilsson, að þessi mynd Helga
beri þess glöggt vitni, hvemig
íslensk nútímalist hafi skotið rót-
um á grunni gamallar menningar
og vísar til frásagnarhefðar ís-
lendingsagnanna til samanburðar.
COSPER
1. verðlaun í samkeppninni er lokkur úr hári Rod Stéwarts
og 2. verðlaun 100 þúsund krónur.
ry sa
ZZ
keypti
köttinn
í sekknum
Zsa Zsa Gabor ætti að vera
farin að kunna fótum sínum
forráð þar sem eiginmenn eru
annars vegar, a.m.k. er konan
búin að eiga nógu marga slíka
um dagana. Eitthvað hefur hún
þó séð athugavert við þá alla,
því hún er nú komin með þann
áttunda upp á arminn. Þar með
er Zsa Zsa víst ekki komin á
endastöð í leit sinni að hinum
fullkomna eiginmanni, því
fregnir herma að hún hafí keypt
köttinn í sekknum og vel það,
þar sem hinn vestur-þýski
„fursti" Frederik von Anhalt er.
Zsa Zsa hefur sumsé komist að
því, sér til mikillar skelfingar,
að furstatitill eiginmannsins er
aðkeyptur, sjálfur hefur makinn
setið í fangelsi fyrir fjársvik og
furstahöllin reyndist, þegar til
átti að taka, vera tveggja
herbergja íbúðarkytra á annarri
hæð í leiguhjalli í Miinchen.
Það þarf víst enga forvitra til
að segja til um það, að þetta
hjónaband verður tæpast mjög
langlíft, enda brúðurin vönd að
virðingu sinni og sjórinn fullur
af öðrum fískum. Er því ekki
við öðru að búast en að Zsa Zsa
losi sig við þennan ódrátt hið
snarasta og fari að svipast um
eftir alvöru fursta.
REYKJANESKJORDÆMI
Auglýst eftir
framboðum til
prófkjörs í
Reykjaneskjördæmi
Prófkjör um val frambjóöenda á lista Sjálfstæöisflokksins við
næstu alþingiskosningar í Reykjaneskjördæmi fer fram laugar-
daginn 1. nóvember 1986.
Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti:
1) Framboð flokksbundins einstaklings, er kjörgengur mun
verða við næstu alþingiskosningar og sem minnst 20
en mest 30 félagsmenn sjálfstæöisfélaganna í Reykja-
neskjördæmi standa að. Enginn flokksmaður getur staðið
að fleirum en sjö slíkum framboðum.
2) Kjörnefnd er heimilt að bæta við frambjóðendum til við-
bótar þeim, sem bjóða sig fram samkvæmt 1. tl., enda
séu þeir flokksbundnir.
Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs samkvæmt
fyrsta töluliö hér að framan. Framboðum ásamt mynd og
stuttu æviágripi viðkomanda skal skilað til kjörnefndar laugar-
daginn 4. október 1986 milli kl. 10 og 12 fyrir hádegi í
Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1 (3. hæð), Kópavogi.
Atkvæðisrétt í prófkjörinu hafa:
a) Allir fullgildir félagsmenn sjálfstæðisfélaganna í kjör-
dæminu, sem þar eru búsettir og náð hafa 16 ára aldri
á prófkjörsdaginn.
b) Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem eiga kosn-
ingarétt í kjördæminu og undirritað hafa inntökubeiðni
í sjálfstæöisfélag í kjördæminu fyrir lok kjörfundar.
c) Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem eiga kosn-
ingarétt í kjördæminu og undirrita stuðningsyfirlýsingu'
við Sjálfstæðisflokkinn samhliða þátttöku í prófkjörinu.
KJðraefnd kj&rdwm Isráðs
SJálfef ðleflokkeln* I Roykjanoskjðrdaeml.
1-2-3
Lotus 1-2-3 er sambyggt kerfi töflureiknis, graflk-
forrits og gagnasafnskerfis. Það er fyrst og
fremst ætlaö fyrir áætlanagerð og tölfræöi úr-
vinnslu hvers konar.
Lotus 1-2-3 er söluhæsti töflureiknirinn I Banda-
ríkjunum, en takmarkanir kerfisins við með-
höndiun annarra stafrófa en þess enska, hafa
hamlaö vinsældum þess utan Bandarlkjanna.
Nýjungar i þessari útgáfu eru m. a.:
— Fullkomin meðhöndlun á
Islenskum stöfum
— Betri nýting á minni
— Hraðvirkari
— Nokkrar nýjar aðgerðir
Efni námskeiðsins:
— Kynning á Lotus 1-2-3
— Útreikningar
— Uppsetning reiknillkana
— Notkun llnurita,
stöplarita og skífurita
— Gagnavinnsla og fyrirspurnir
— Forritun
— Útprentun Leiðbemandi er
— Tenging við önnur kerfi Magnús Ingi Óskarsson,
skólastjóri Tölvuskóla
Stjórnunarfélags íslands.
Timi: 16 Klst. 29., 30. sept. 1. og 2. okt., kl. 13.30—17.30.
Námskeiðið er einnig fyrir notendur eldri útgáfu
kerfisins. —-rrriTír -
Stjórnunarfélag
Islands
Ananaustum 15 - Simi: 6210 66
ir