Morgunblaðið - 18.10.1986, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986
31
Amnesty International:
Mannréttíndabrot í
meira en 100 löndum
London, AP.
MANNRÉTTINDASAMTÖKIN Amnesty International skýrðu svo
frá á miðvikudag, að þau hefðu fengið skýrslur um meint mann-
réttindabrot í 128 löndum á siðasta ári.
Um þetta er fjallað ítarlega í
skýrslu samtakanna fyrir sfðasta
ár. Náðu þessi mannréttindabrot
frá fangelsunum á mönnum í
Vestur-Evrópu, sem reynt höfðu
að komast hjá herþjónustu, til
fjöldamorða á óvopnnuðum borg-
urum í Afganistan og Sri Lanka.
Samtökin fordæma aftökur,
pyntingar, óréttlát réttarhöld og
geðþótta handtökur, sam fram eru
látnar fara í því skyni að koma í
veg fyrir pólitískt andóf. í skýrsl-
unni segir m. a., að 1,125 manns
að minnsta kosti hafi verið teknir
af lífi í 44 löndum í fyrra. Telja
megi hins vegar vfst, að þessi
tala sé í raun miklu hærri, þar
sem margar aftökur fari fram
með leynd.
Á meðal þeirra brota, sem talin
eru upp í skýrslunni, sem er 386
bls. að lengd, eru fjöldamorð Sov-
étmanna á þorpsbúum í Afganist-
an, hvarf um 200 manns í
Kóiumbíu, eftir að þeir voru hand-
teknir af hermönnum stjómarinn-
ar, fjöldaaftökur í írak, íran og
Kína og morð á tugum manna af
tyrkneskum uppruna í Búlgaríu.
Enda þótt talin séu upp í skýrsl-
unni meint mannréttindabrot í
80% af 159 aðildarlöndum Sam-
einuðu þjóðanna, þá er það talið
mjög uppörvandi í skýrslunni, að
komið hafi ffarn 1000 mannrétt-
indahópar á undanfömum árum
og þeim löndum hefur Qölgað, þar
sem löggjöf verið verið sett til að
bæta réttindi fanga.
Þréttan lönd í Vestur-Evrópu
era á listanum yfir mannréttinda-
brot. Þeirra á meðal er Spánn
vegna meintra pyntinga á fongum
úr hópi aðskilnaðarsinna Baska
og Bretland vegna ásakana um
morð, sem leyniþjónustan þar á
að hafa framið. Frakkland, Italía,
Noregur og Sviss era á listanum
vegna fangelsunar manna, sem
neitað hafa að gegna herþjónustu
af samvizkuástæðum.
Bandaríkin:
Hvaða Gorbachev?
Fullerton, Kalifomíu, AP.
PRÓFESSOR nokkur í Banda-
ríkjunum ákvað á dögunum að
athuga hve nemendur hans
þekktu vel til frægra manna í
sögunni, bókmenntum og at-
burðum líðandi stundar. Niður-
staðan var sú, að þeir þekktu þá
yfirleitt ekki en voru hins vegar
með stórstjörnur sápuóperanna
á hreinu.
Bandaríkin:
Alríkislögreglan
rannsakar LaRouche
Washington, AP.
Bandariska alríkislögreglan samtökum, sem séu viðriðin sam-
(FBI) hefur nú sankað að sér
tveimur vagnhlössum af gögnum
um hin ýmsu samtök hægri öfga-
mannsins Lyndon LaRouche og
ætlar að leggja megináherslu á
tilraunir samtaka hans til að
hindra framgang réttvísinnar
þegar reynt verður að fletta ofan
af þeim.
Henry Hudson saksóknari hefur
í tvö ár unnið að rannsókn málsins:
„Og það er kominn tími á að fletta
ofan af svikum og prettum samtak-
anna.“ Ríkisstjórnin lét í síðustu
viku ráðast inn í höfuðstöðvar
LaRouche í Virginíu-fylki og var
fjölda náinna samstarfsmanna
hans, fjársöfnunarmanna og ýms-
um fyrirtækjum og nefndum stefnt.
Ýmis sönnunargögn bendla
LaRouche sjálfan við svik en hann
hefur ekki verið sóttur til saka.
Saksóknarar segja að hann stjómi
særi til að hindra framgang réttvís-
innar.
Samtök LaRouche teygja anga
sína um allan heim. Við rannsókn-
ina hefur ljósi verið varpað á
einhver einkennilegustu samtök
heims. Þegar húma tekur Ieggjast
félagar LaRouche í símann og hrella
pólitíska andstæðinga sína. Að sögn
FBI reyndu félagar samtakanna að
beita alríkislögregluna mútum til
að losna undan rannsókn um svik
og undirferli.
VESTUR
ÞÝSKAR
TORPEMA
„Ég held, að nemendur nú á dög-
um séu jafri vel gefnir og áhuga-
samir og þeir vora fyrir 20 árum,“
sagði prófessorinn, Judith Remy
Leder, sem kennir ensku við Fuller-
ton-háskóla í Kalifomíu. „Þeir
fylgjast bara svo illa með því, sem
er að gerast nema það snerti þá
sjálfa."
Þótt 60% nemendanna hefðu
heyrt Gorbachevs getið, vissu fæst-
ir hver hann er, aðalritari miðstjóm-
ar sovéska kommúnistaflokksins og
leiðtogi Sovétríkjanna. Einn hélt
helst, að hann væri rithöfundur og
þrír, að hann væri ballettdansari.
Innan við helmingur kannaðist
við Geoffrey Chaucer, enska mið-
aldaskáldið og höfund „Sagnanna
frá Kantaraborg", Dante og „Víti“
hans og Desmond Tutu, biskup í
Suður-Afríku og friðarverðlauna-
hafa.
Aðeins 10% höfðu heyrt um Alex-
ander Hamilton, fyrsta íjármála-
ráðherra Bandaríkjanna, og það
þótt hann tróni á öllu tíum dollara
seðlum. 60% nemendanna vora hins
vegar ekki í neinum vafa um Eriku
Kane, einn leikarann í sápuóperanni
„Allir krakkamir mínir".
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ástóum Moggans!
Fulltrúadeildin
afgreiðir fjárlög
Washington, AP.
FULLTRÚADEILD Bandaríkja-
þings afgreiddi fjárlög ríkisins á
miðvikudagskvöld eftir áskorun
Ronalds Reagan, forseta, en áður
hafði sameiginieg nefnd beggja
þingdeilda lagt blessun sína yfir
frumvarpið, sem nú er komið til
Öldungadeildarinnar.
Fulltrúadeildin samþykkti fram-
varpið með 235 atkvæðum gegn
172. Hljóðar það upp á 576 millj-
arða dollara, en af þeirri upphæð
er varið 290 milljörðum til vamar-
mála og 13,3 milljörðum til aðstoðar
við önnur ríki. Er það 1,1 milljarði
dollara lægri upphæð en í fyrra og
2,1 miljarði lægri en Reagan for-
seti óskaði eftir. Samkvæmt
framvarpinu hljóta ísraelar 3ja
milljarða dollara hemaðar- og efna-
hagsaðstoð og Egyptar 2,3 millj-
arða.
Niðurstöðutölumar era þær
mestu, sem um getur. Deilur hafa
staðið um frumvarpið síðustu vik-
umar fjóram sinnum stefnt í
greiðsluþrot ríkissjóðs af þeim sök-
um. í fyrradag tókst hins. vegar
samkomulag í sameiginlegri nefnd
beggja þingdeilda um málamiðlun.
Samkvæmt henni verður lítið sem
ekkert úr víðtækum niðurskurði til
ýmissa innlendra málaflokka, sem
Hvíta húsið hafði gert tillögur um.
@nlinenlal®
Betri barðar allt árið
Hjólbarðaverkstæði
Vesturbæjar
Ægissíðu, sími 23470.
T3ílLamcitt:cu)utLnn.
%^-ia.ttisgötu 12-18
M. Benz 230 CE '82
Gullsans. 2ja dyra. beinskiptur, centrallæs-
ing, o.m.fl.
Subaru 1800 4x4 1984
Rauður (Hi Roof), aflstýri, rafmagn i
rúðum, ekinn 80 þ. km. Verð aöeins
400 þ.
Escort 1100 3ja dyra '86
Ekinn 4 þ. km. V. 380 þ.
BMW 525i '83
Glæsilegur bíll. V. 670 þ.
Mazda 929 ST. ’81
Aflstýri o.fl. V. 250 þ.
Toyota Tercel 4x4 '83
Ekinn 69 þ. Gott eintak. V. 380 þ.
BMW 520 *79
Beinsk. V. 260 þ. (skipti).
Citroén GSA Pallas '82
Ágætt eintak, 18 mán. gr.kjör.
Subaru 4x4 Sedan '80
Ekinn 64 þ. V. 230 þ. Góð kjör.
Toyota Corolla GL '82
Vínrauður, ekinn 45 þ. V. 260 þ.
Honda Accord EX '85
Beinsk., m/öllu. V. 580 þ.
Subara Hatchback 4x4 '83
Ekinn 33 þ. km. 2 dekkjagangar.
V. 380 þ.
Toyota Hi Lux 4x4 '80
Hvítur, fíberhús. V. 380 þ.
Subaru 4x4 '83
Rauður. Ekinn 28 þ. V. 510 þ.
Fiat Regata 100S '85
Ekinn 8 þ. Sólluga o.fl. V. 410 þ.
Toyota Corolla DX '86
Ekinn 6 þ. km. V. 410 þ.
SAAB 900 Gl 5 dyra '82
Blásans., góður bíll. V. 335 þ.
Kaupendur ath!
Willy’s JC5 Renegade 1977
Svartur, 8 cyl. með 4ra hólfa blönd-
ungi. Krómfelgur o.m.fl. senv prýöir
bílinn. Verö 395 þ.
Höfum talsvert úrval góðra
bíla á 12—18 mán. greiðslu-
kjörum.
Skákmeistari kvenna:
Sigraði í
fjórða sinn
Moskvu, AP.
MAYA Chiburdanidze varð í gær
heimsmeistari kvenna i skák í
fjórða sinn þegar jafntefli varð
í 13. skákinni í einvíginu við
löndu hennar, Yelenu Akhmylov-
skaya. Allar 16 skákirnar verða
tefldar en Maya hefur nú átta
vinninga gegn finun Yelenu.
Reglum samkvæmt þarf heims-
meistarinn aðeins að halda jöfnu til
að tapa ekki titiinum en þær skák-
konumar ætla að ljúka við allar
skákimar. Chiburdanidze er frá
Grúsíu en skákkonur þaðan hafa
borið ægishjálm yfir aðrar í hálfan
annan áratug. Hún varð fyrst
heimsmeistari 17 ára gömul þeg-ar
hún sigraði Nonu Gaprindashvili,
sem einnig er frá Grúsíu.
LOFT
PRESSUR
HAGSTCTT
VERD
GREiDSLUKJÖR
o
MARKAÐSÞJÓNUSTAN
SKIPHOLTI 19-105-REYKJAVÍK-S.26911
ÚTVEGUM VEL
MEÐ FARNA
þýska, enska
og japanska bíla
á mjög góðu staðgreiðsluverði frá Þýskalandi. Ath.: Árs-
ábyrgð á öllum bílum frá okkur. Einnig bíla frá Ameríku
á frábæru verði. Ath.: Dollarinn er alltaf að lækka.
Frúin hlær í betri bíl