Morgunblaðið - 21.10.1986, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.10.1986, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1986 +i KIENZLE TIFANDI TÍMANNA TÁKN KIENZLE ALVORU ÚR MEÐ VÍSUM DÆLUR úr ryðfríu stáli • 1 og 3ja fasa. • Til stýringar á vatnsrennsli. • Einstök gæöi, góö ending og fágaö útlit. = HÉÐINN = VÉLAVERSUUN, SÍMI 24260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER ESAB Rafsuðutæki vír og fylgihlutir Nánast allt til rafsuðu. Forysta ESAB ertrygging fyrirgæðum og góðri þjónustu. Allartækni- upplýsingar eru fyrirliggjandi ísöludeild. = HEÐINN = VÉLAVERSLUN, SELJAVEGI 2, SÍMI24260 ESAB Hefur klifið öll fjöll yfir 8.000 metrum Katmandu, Nepal, AP. ÍTALSKI fjallagarpurinn Reinhold Messner varð fyrsti maður sögunnar til að sigr- ast á öllum fjöllum, sem eru yfir 8.000 metra há er hann kleif Lhotse-tindinn í Hima- layafjöllunum í fyrradag. Messner klifraði öll ijöllin 14, sem um ræðir, án þess að hafa með sér súrefni og eykur það mjög á afrek hans. Fyrir aðeins þremur vikum komst Messner á tind Himalaya- ijallsins Makalu, sem er 8,463 metra hátt. Messner er 41 árs og hefur stundað fjallgöngur í röska tvo áratugi. Fyrsta áttaþúsund metra fjallið sem hann kleif var Nanga Parbat (8.125 metrar) í Pakistan. Hann kleif fjallið árið 1970. Sjö tindanna, sem um ræðir, eru í Himalayafjöllum og fímm í KarakorumQöllunum á landa- mærum Kína og Pakistan. Tind- amir í HimalayaQöllunum eru Everest (8.848 metrar), Kan- * lMÉÍÉla£Éfc& AP/Símamynd SAS-þotan umflotin kvoðu, sem slökkviliðsmenn dældu yfír hana, þegar hún staðnæmdist utan brautar eftir nauðlendingu á Kastrup-flugvellinum i Kaupmannahöfn á sunnudagsmorgun. SAS-þota nauðlenti á Kastrup Kaupmannahöfn, AP. FJÓRIR farþegar slösuðust þegar DC-9 þota frá SAS nauðlenti á Kastrup-flugvellinum í Kaup- mannahöfn stuttu eftir flugtak þaðan. Atvikið átti sér stað á sunnudagsmporgni. Flugvél- in var á leið í áætlunarflug til Amsterdam. Skömmu eftir flugtak urðu flugmennimir varir bilunar í hliðar- stýri og sneru til baka. í lendingarbruninu seigði flugvélin smám saman út af flugbrautinni og brotn- aði nefhjól þá undan henni. Alls voru 108 menn um borð í flugvélinni. Margir þeirra hlutu smáskrámur en fjórir hlutu alvarlegri meiðsl og beinbrot. * Israel: hchenjungha (8.586), Dhaulagiri (8.167), Makalu (8.463), Lhotse, Cho-oyu, Xixapangma (8.046). Hefur Messner klifið Everest, hæsta Qall heims, tvisvar eða frá sitthvorri hliðinni. Tindamir í Karakorum-fjöllum, sem hann hefur klifíð, em K-2 eða Godwin Austen (8.611), Nanga Parbat (8.125), Gasherbrum (8.068), Gasherbmm II (8.035) og Broad Peak (8.040). Yitzhak Shamir sver embættiseið Jerúsalem, AP. YITZHAK Shamir sór í gær embættiseið forsætisráðherra Svefnleysi varð maimi að aldurtila Boston, AP. LÆKNAR hafa nú fengið ýmsar vísbendingar um það hvemig sá hluti heilans starfar, sem hjálpar fólki að falla í svefn, eftir að ítali nokkur lét lifið af svefnleysi. Algengt er að menn eigi erfítt að hermanna sið.“ með svefn, en það heyrir til und- antekninga að svefnleysi dragi menn til dauða. ítalinn lést níu mánuðum eftir að fyrstu einkenni kómu í ljós og gat hann undir það síðasta ekki fest svefn allan sólarhringinn. Þegar hann var allur komust læknar að því að þeim hluta heil- ans, sem nefnist þalamus, hafði hrakað mjög. Hefur verið leitt að því getum að þessi hluti heilans gegni stóru hlutverki hvað svefn varðar. í skýrslu Dr. Elio Lugaresi og starfsbræðra hans við læknahá- skólann í Bologna, sem birtist í læknatímaritinu New England Joumal of Medicine fyrir skömmu, sagði að maðurinn hefði ætíð sof- ið fímm til sjö klukkustundir á nóttu og lagt sig hálfa klukku- stund um miðjan dag. Smátt og smátt fór maðurinn að þjást af svefnleysi. í upphafí festi hann svefíi tvær til þijár klukkustundir á nóttu. „Tveimur mánuðum síðar gat sjúklingurinn aðeins sofíð eina klukkstund á nóttu og oft og tíðum röskuðu draumfarir svefn- friði hans,“ skrifuðu læknamir. „Þá settist hann á rúmstokkinn, stóð teinréttur á fætur og heilsaði Frásögnin heldur áfram: „Þeg- ar ættingjar vöktu sjúklinginn kvaðst hann hafa dreymt að hann væri viðstaddur krýningu. Þremur mánuðum eftir að fyrstu einkenn- in komu í ljós gat sjúklingurinn ekki sofíð eðlilega og draumurinn sótti ákafar að honum." Maðurinn var látinn á sjúkra- hús. Þegar hann var einn á stofu sinni féll hann f mók. Mál hans var óskiljanlegt, hann hélt ekki áttum og var þess ekki umkominn að leysa einföldustu verkefni. Læknar gáfu honum svefntöfl- ur af ýmsum gerðum, en þær höfðu engin áhrif. Heilsu sjúkl- ingsins hrakaði. Hann fékk hitasótt og lungnabólgu, sem ekki var unnt að lækna með lyQum. Níu mánuðum eftir að fyrstu ein- kenni komu í ljós lét maðurinn lífíð. Svefnleysi af þessu tagi gengur í ættir í fjölskyldu mannsins. Tvær systur hans hafa látist af sjúk- dóminum og margir aðrir ættingj- ar hans í þijá ættliði. í ritstjómaigrein í áðumefndu tímariti segir dr. Manfred L. Kamovsky við Harvard háskóla að skýrslan ýti undir vonir um að komast megi að því hvaða prótín valdi slíkum sjúkdómi. ísraels. ísraelsþing samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta traustsyfirlýsingu við stjórn hans. Shamir flutti ræðu af þvi tilefni og hét áframhaldandi bar- áttu gegn Palestínuskæruliðum í Líbanon. honum tókst að sigrast á verð- bólgunni, sem er um 16% á þessu ári en var 445% árið 1984. Þá kall- aði Peres flestalla hermenn Israela heim frá Líbanon á síðasta ári og mæltist sú ráðstöfun vel fyrir. Shamir tók við af Shimon Peres, sem sagði af sér sem forsætisráð- herra þann tíunda þessa mánaðar. Valdaskipti þeirra Shamirs og Peres fóru fram samkvæmt samkomulagi sem þeir gerðu er samsteypustjóm Likud-bandalagsins og Verka- mannaflokksins var mynduð árið 1984. Yitzhak Shamir er 71 árs gam- all og hefur hann gegnt stöðu utanríkisráðherra frá árinu 1980. Þegar Menachim Begin sagði af sér sem forsætisráðherra árið 1983 tók Shamir við því embætti og gegndi því í tæpt ár. Stjómmálaskýrendur telja að ísraelar muni taka upp harðari stefnu í utanríkismálum nú þegar Shamir hefur tekið við embætti for- sætisráðherra. Hann hefur lofað að stuðla að frekara landnámi ísraela á þeim svæðum sem þeir unnu af Jórdönum árið 1967. Shimon Peres var vinsæll forsæt- isráðherra einkum sökum þess að í ræðu sinni á þingi í gær sagði Shamir að ísraelar myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að koma í veg fyrir að skæmliðar Palestínu- manna hreiðruðu um sig í Líbanon. Kvaðst hann einnig telja að samn- ingaviðræður ísraela og Palestínu- manna gætu rutt braut í átt til friðar á þessu stríðsþjáða svæði. Þegar Shamir hafði lokið ræðu sinni steig Shimon Peres óvænt í ræðu- stólinn og ámaði hinum nýja forsætisráðherra heilla í starfi. Bandaríkin: Skírlífið tekur við af lauslætinu Ottinn við alnæmið veldur breyttri kynhegðan Chicago, AP. KYNHEGÐAN Bandaríkja- manna er að breytast vegna óttans við alnæmið. Segja banda- rískir læknar nú, að líklegt sé, að sjúkdómurinn nái hámarki innan fimm ára. Læknar spá því, að alnæmissjúkl- ingum í Bandaríkjunum Qölgi hratt á næstunni og verði um 30.000 um næstu áramót. „Sjúkdómurinn er farinn að hafa veruleg áhrif innan allra greina læknisfræðinnar og á öllum sviðum þjóðlífsins," sagði dr. Alan Tice, einn af höfundum nok- kurra greina um alnæmi I síðasta hefti af tímariti bandarísku lækna- samtakanna. Talið er, að 500.000 til 1,7 millj- ón Bandaríkjamanna hafí komist í snertingu við alnæmisveiruna og sérfræðingar spá því, að um áramót 1“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.