Morgunblaðið - 21.10.1986, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1986
Fyrsta þingrímman;
Þingdeild á rás tvö
Framsóknarþingmenn deila á fjármálaráðherra
FRAMSOKNARMENN
Hér ganga fjórir framsóknar-
menn i þingsal. Fremstir fara
Steingrimur Hermannsson, for-
sætisráðherra (sem raunar er
skroppin utan), og Jón Helgason,
landbúnaðarráðherra. Að baki
Jóns er Stefán Guðmundsson
(F.-Nv.) og á milli ráðherranna
er Þórarinn Siguijónsson (F.Sl.).
Það er komínn kosningatitringur í framsóknarmenn,
sagði Helgi Seijan (Abl.-Al.), þegar hann blandaði sér í
deilur stjórnarflokkanna, varðandi 27. grein frumvarps
til lánsfjárlaga, sem kveður á um, að aðflutningsgjöld
af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum skuli renna í ríkis-
sjóð, en í útvarpslögum eru þessar skatttekjur markaðar
Ríkisútvarpi. Rás 2 blandaðist inn í þessa umræðu, eins
og kemur fram í eftirfarandi fréttafrásögn.
Skerðingarákvæði
í öðrum kafla frumvarps til láns-
Qárlaga eru flórtán greinar sem
kveða á um að skatttekjur, sem
markaðar eru ákveðinni ráðstöfun
í öðrum lögum, skuli að hluta tii
eða öllu leyti renna í ríkissjóð. í
greinargerð með frumvarpinu seg-
ir; „í samræmi við markaða stefnu
í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið
1987, um skerðingu lögboðinna
framlaga, er nauðsynlegt að
ákvæðum hlutaðeignandi laga sé
breytt". Löng hefð er fyrir skerð-
ingu af þessu tagi í lánsfjárlögum.
I 27. grein frumvarpsins er kveðið
á um að tolltekjur af tilgreindum
vörum skuli renna í ríkissjóð í stað
sjóði RÚV.
Gagnrýni fram-
sóknarmanna
Frumvarp til lánsQárlaga kom
til framhalds fyrstu umræðu í efri
deild í gær. Þn'r þingmenn Fram-
sóknarflokks, Haraldur Ólafsson
(Rvk.), Davíð Aðalsteinsson (VI.)
og Jón Kristjánsson (Al.) létu í ljós
efasemdir um þetta skerðingar-
ákvæði og gagnrýndu orð fjár-
málaráðherra, sem féllu í fyrri
hluta umræðunnar, og þeir töldu
túlka vilja til sölu rásar tvö hjá
RÚV til einkaaðila.
„Hugmynd“ fjár-
málaráðherra
Þorsteinn Pálsson, fjármálaráð-
herra, sagði efnislega, að lítið
samræmi væri í því að þingmenn,
sem teldu ríkisútgjöld of mikil,
gagnrýndu viðleitni til þess að
beita ströngu útgjaldaaðhaldi, m.a.
tii að skapa ekki auknar skatt-
heimtuforsendur.
Við fyrri hluta umræðunnar
hefðu nokkrir þingmenn, einkum
úr stjómarandstöðu, gagnrýnt
skerðingu á framkvæmdafé RÚV,
sem fælist í 27. grein frumvarps
að lánsflárlögum. Hann hafi þá
sagt, að RÚV yrði að sæta út-
gjaldaaðhaldi að þessu leyti, eins
og aðrar ríkisstofnanir. Hann hafí
engar tiliögur gert um sölu rásar
tvö en hinsvegar slegið fram þeirri
hugmynd í umræðunni, að hugsan-
lega mætti losa um framkvæmdafé
með sölu rásar tvö, ef þörfín á slíku
fjármagni vægi það þungt í hugum
þingmanna.
Hörð rimma
Haraldur Olafsson (F.-Rvk.)
minnti á að RÚV bæri, samkvæmt
lögum, að reka tvær hljóðvarpsrás-
ir. Stendur til að flytja frumvarp
til breytinga á gildandi lögum um
söluna, spurði hann. Og ef sala er
fyrirhuguð á þá að selja stúdíóað-
stöðu eina sér eða dreifíkerflð með?
Davíð Aðalsteinsson (F.-Vl.)
taldi að stuðningur þingmanna við
frjálst útvarp á liðnu þingi hafí að
hluta til byggst á yfírlýsingum
ráðherra um uppbyggingu RÚV,
sem þjónaði landinu öllu, ekki að-
eins höfuðborgarsvæðinu. Um-
deildt ákvæði í frumvarpi að
lánsljárlögum fæli ekki í sér efnd-
ir á þessu fyrirheiti.
Jón Kristjánsson (F.-Al) sagði
að rás tvö næði ekki til landsins
alls. Stór svæði á Austurlandi
næðu ekki stöðinni. Nær væri að
gera stöðinni kleift að sinna þjón-
ustuhlutverki sínu við landið allt.
Eiður Guðnason (A.- VI.) sagði
RÚV svipt álíka tekjustofni og
Kvikmyndasjóði væri nú skenktur.
Greinilegt væri að þingmenn
Framsóknarflokks væru ekki sáttir
við framkomið stjómarfrumvarp
að lánsfjárlögum. Eiður sagði m.a.
að dreifíkerfi sjónvarps og rásar
tvö væri að hluta tii eitt og hið
sama. Þessvegna þurfi að liggja
ljóst fyrir, hvort dreifíkerfið væri
' inn í söluhugmyndum ráðherrans.
Hann taldi og vafa leika á því að
ijármálaráðherra hafí heimild til
eftirgjafar af innflutningsgjöldum
á lyklum (afrétturum) í tengslum
við Stöð 2.
Helgi Seljan (Abl-Al.) sagði
kosningatitring kominn í fram-
sóknarmenn. Þessar snemmbæru
deilur þeirra á stjómarfrumvarp
lofaði góðu um framhaldið í vetur.
Stjómarflokkamir væru þegar
teknir að bera ósætti sína inn í
þingsali. Hann tók að öðm leyti
undir gagnrýni á tekjuskerðingu
RÚV.
Sigriður Dúna Kristmunds-
dóttir (Kl.-Rvk.) sagði að rás tvö
hefði átt að þjóna fleiri starfs-
þáttum en dægurhljómlist. Hún
nefndi sérstaklega fræðsluútvarp,
sem þjóna hlyti stóm hlutverki í
skólamálum framtíðarinnar.
Kvennalistinn hafí og bent á út-
leigu á einhveijum tíma rásarinnar
til aðila, sem standa vilji að sjálf-
stæðri dagskrárgerð.
Þorsteinn Pálsson, fjármála-
ráðherra, lagði áherzlu á að
umrætt skerðingarákvæði væri
aðeins eitt af mörgum og hluti af
nauðsynlegu útgjaida- og um leið
skattheimtuaðhaldi. Hann hafí sett
fram hugmynd, að gefnu tilefni,
en ekki tillögu um möguleika á
söiu rásar tvö.
Ráðherra sagði að hér hafí þeir
verið háværastir sem harðast hafí
gagnrýnt fijálst útvarp. Varðandi
tolleftirgjöf á lyklum að Stöð 2
sagði ráðherra að rekstrarstaða
aðila, sem ættu í samkeppni að
þessu leyti, ætti að vera sem jöfn-
ust.
í stað fangelsunar:
Endurgj aldslaus
vinnuþjónusta
„Alþingi ályktar að skora á
rikisstjórnina að skipa nefnd
til að kanna, hvort endur-
gjaldslaus vinnuþjónustua I
þágu samfélagsins geti við
ákveðnar aðstæður komið í
stað afplánunar dóma í fang-
elsi og einnig orðið til þess
að gera skilorðsdóma mark-
vissari. Slík vinna yrði
samkvæmt nánari ákvæðum
laga og ákvörðunum ákæru-
valds og dómstóla".
Þannig hljóðar tillaga til þings-
ályktunar sem fímm þingmenn
Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram á
Alþingi: Kristín S. Kvaran, Salome
Þorkelsdóttir, Ámi Johnsen, Frið-
jón Þórðarson og Valdimar Ind-
riðason.
I greinargerð segir efnislega að
það að sitja í fangelsi sé ekki
n
Stuttar þingf réttir
Fundir vóru í báðiun þing-
deildum í gær. í efri deild fór
drýgstur hluti fundartímans í
fyrstu umræðu um stjórnar-
frumvarp að Iánsfjárlögum,
samber aðra frétt hér á þing-
síðu. Eiður Guðnason (A.-Vl)
mælti fyrir frumvarpi um
frídag sjómanna. í neðri deild
vóru og nokkur lagaf rumvörp
til fyrstu umræðu:
* Jóhanna Sigurðardóttir
(A.-Rvk) mælti fyrír frumvarpi
til breytinga á bamalögum, sem
hún flytur ásamt Guðrúnu
Helgadóttur (Abl.-Rvk.). Frum-
varpið gerir ráð fyrir að „valds-
manni sé heimilt að úrskurða
að lífeyrisdeild Tiyggingarstofn-
unar ríkisins greiði framlög
vegna menntunar og starfsþjálf-
unar bams ef meðlagsskyldur
aðili er ekki lengur á lfí eða ef
að öðmm ástæðum reynist
ókleift að innheimta framlög...,
svo og vegna bama örorku- og
ellilífeyrisþega sem bamalífeyris
hafa notið, skv. 14. gr. laga um
almannatryggingar".
* Gunnar G. Schram (S.-
Rn.) mælti fyrir frumvarpi til
laga um umboðsmann Alþingis,
sem hann flytur ásamt fleiri
þingmönnum Sjálfstæðisflokks.
Fmmvarpið er endurflutt. Það
gerir ráð fyrir embætti umboðs-
manns er „hafi það hlutverk að
styðja menn til þess að ná rétti
sínum í skiptum við stjómvöld,
koma í veg fyrir að menn séu
beittir rangindum af hálfu opin-
berra aðila og stuðla þannig að
bættri opinberri sljómsýslu...".
* Málmfríður Sigurðar-
dóttir (Kl.-Ne.) mælti fyrir
frumvarpi um lífeyrisréttindi
heimavinnandi húsmæðra.
Fmmvarpið gerir ráð fyrir því
að heimavinnandi húsmæður,
sem em í minna en hálfu starfi
utan heimilis, skuli öðlast aðild
að Söfnunarsjóði lífeyrisrétt-
inda. Skal ríkissjóður greiða
mánaðarlegt iðgjald til sjóðsins
er nemi 6% af 26.680 kr. vegna
hverrar heimavinnandi húsmóð-
ur.
Kristín S. Kvaran
mannbætandi. í annan stað sé erf-
itt fyrir fanga að koma aftur út í
samfélagið. í þriðja lagi líði oft
langur tími frá því að dómur fellur
unz afplánun hefst. Tilgangur refs-
ingar á að vera tvennskonar: að
koma í veg fyrir að aðrir bijóti af
sér og að hinum dæmda lærist að
haga sér í samræmi við lög og
reglur samfélagsins. Úrræði af þvi
tagi, sem tillagan geymir, hafí víða
reynst vel með öðmm þjóðum.
Flutningsmenn segja sum brot
þess eðlis að óhjákvæmiiegt sé að
viðkomandi afpláni dóm í fangelsi.
Það eigi við þegar almannahags-
munir krefjist slíks og þegar lífi
sé stefnt í voða. Brot af öðmm
toga, svo sem auðgunarbrot, séu
hinsvegar þesseðlis, að hægt sé
að koma við samfélagsþjónustu
sem refsingu.
„Eitt af gmndvallaratriðum þess
að samfélagsþjónsta nái tilgangi
sínum er að hún sé innt af hendi
utan venjubundins vinnutíma,
þannig að viðkomandi geti jafn-
framt stundað almenna vinnu. Að
mati flutningsmanna yrði það aðal-
lega líknarfélög, svo og bæjar- og
sveitarfélög sem gætu rutt braut
þeirri samfélagsþjónustu sem þing-
sályktunartilagan gerir ráð fyrir“,
segir í greinargerð.
Framsókn:
Tveir kvenþingmenn
Þingflokkur framsóknar-
manna er eini þingflokkurinn
sem ekki getur státað af kven-
þingmanni. Nú hefur hinsvegar
heldur betur hlaupið á snærið
hjá framsóknarmönnum. Þing-
flokkinn skipa þessa dagana
tvær konur, að austan og vest-
an, varaþingmenn, sem leysa
tvo ráðherra flokksins af hólmi
þingstarfanna.
* Guðrún T ryggvadóttir,
varaþingmaður Framsóknarflokks
í Austurlandskjördæmi, er mætt
til þings í íjarveru Halldórs Ás-
grímssonar, sjávarútvegsráðherra.
* Magðalena Sigurðardóttir,
annar varaþingmaður Framsóknar
í VestQarðakjördæmi, leysir
Steingrím Hermannsson, forsætis-
ráðherra, af hólmi þingstarfa, í
fjarveru hans erlendis.