Morgunblaðið - 21.10.1986, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLABIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1986
t
Móöir mín og systir okkar,
INGA RÚNA (SIGRÚN) WARRICK,
fœdd Inólfsdóttir,
frá Morganton, North Carolina USA,
lést í Landspítalanum 18. október.
Michael Ingólfur Warrlck,
Ása Stfna Ingólfsdóttir, Þór Ingólfsson,
Ragnhlldur Einarsdóttir, Magnús Ingólfsson,
Ingólfur N. Ingólfsson, Hrafnhildur Ingólfsdóttir,
Eirlkur Ingólfsson, Sóley N. Ingólfsdóttlr.
t
Móðir mín og tengdamóöir,
GUÐRÚN ÞORVARÐARDÓTTIR,
Mávahlfö 32,
lést í Landspitalanum föstudaginn 17. þ.m.
Sverrlr Hermannsson,
Guðrún Jóhannesdóttir.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
SIGURÐUR G. THEODÓRSSON,
Háaleitisbraut 51,
andaöist f Landakotsspítala sunnudaginn 19. október.
Ásta Sigurðardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Sonur minn og bróöir okkar,
BRODDI MAGNÚSSON,
Bröttuhlfð 8,
Akureyri,
sem lést í Landspítalanum laugardaginn 11. október verður jarö-
sunginn frá Akureyrarkirkju I dag, þriöjudaginn 21. október kl.
13.30.
Siggerður T ryggvadóttir,
Erla Sveinsdóttlr,
Tryggvi Sveinsson,
Halla Magnúsdóttir,
Geir Magnússon.
t
Útför sonar míns, fööur okkar, tengdaföður og afa,
GUNNARS EYSTEINSSONAR,
Hólmgarði 46,
ferframfrá Fossvogskapellu miövikudaginn 22. október kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagiö.
Ögn Guðmundsdóttir,
Jódfs Gunnarsdóttir,
Jakob Gunnarsson,
Pétur Gunnarsson,
Hrafnkell Gunnarsson,
Kolbrún Gunnarsdóttir,
Jón Þór Friðvinsson,
Jóhanna L. Einarsdóttir,
Blrna Jónasdóttir,
Svanbjört Þorleifsdóttir,
Erling Sigurðsson
og barnabörn.
Minning:
Bjarni Guðjóns-
son listmálari
Fæddur 27. maí 1906
Dáinn 11. október 1986
Hvað er Hel -?
„Öllum líkn sem lifa vel
(MJ.)
Þannig lýsir skáldið Matt. Joch-
umsson viðhorfum sínum til lífs og
dauða og þannig mótast hugsanir
okkar, þegar við hugsum um þessar
miklu staðreyndir tilverunnar, sem
við viljum helst sjá í ljósi andlegra
sanninga, því að „eitt sinn skal
hver deyja", og loks verður það
hlutskipti allra að kveðja þennan
heim, þótt enginn viti þar dag eða
stund. Þessar hugsanir hafa vaknað
hjá mörgum, er fréttu lát Bjama
Guðjónssonar myndlistamanns, sem
lést þann 11. október sl. og verður
nú í dag kvaddur hinstu kveðju af
vandamönnum og vinum frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík.
Bjami Guðjónsson fæddist í Bæ
í Lóni í Austur-Skaftafellssýslu 27.
maí 1906 og voru foreldrar hans
þau hjónin Guðjón Bjarnason bóndi
og Guðný Sigmundsdóttir, bæði
ættuð úr Skaftafellssýslu og bjuggu
í Bæ til ársins 1934 er þau hættu
búskap og fluttu til Vestmannaeyja.
Bjami ólst upp hjá foreldrum
sínum í Bæ við almenn sveitastörf,
eins og þau tíðkuðust fyrri hluta
þessarar aldar. Hann sýndi snemma
óvenjulegan hagleik, og sem dreng-
ur bjó hann til ýmsa fallega hluti,
með vasahnífnum sínum, sem benti
ótvírætt til þess, að hann myndi
verða hagur í höndum, með vax-
andi þroska. Þetta varð til þess, að
hann hélt til Reykjavíkur 1925 til
náms í tréskurði hjá Ríkarði Jóns-
syni myndhöggvara, og síðar hjá
Agústi Sigurmundssyni myndskera,
en báðir voru þessir menn þjóð-
kunnir fyrir list sína. Vann Bjami
um fjögurra ára skeið á myndskurð-
arstofu Agústs, og vann þar að
ýmsum verkefnum í tréskurði og
teikningum, sem snertu þessa list-
grein.
Síðla árs 1930 kvæntist Bjarni
Sigríði G. Þorláksdóttur frá Vík í
Mýrdal, og settust þau að í Vest-
mannaeyjum, þar sem Bjami setti
upp vinnustofu, og vann þar að iðn
sinni. Auk þess kenndi hann handa-
vinnu og teikningu, bæði við
gagnfræðaskólann og við iðnskól-
ann í Vestmannaeyjum.
A þessum áram gerði hann
marga fallega listmuni, sem fóra
víða auk þess gerði hann brjóst-
myndir af ýmsum borguram í
Vestmannaeyjum, er þóttu vel tak-
ast, var Bjami talinn í hópi efnilegri
ungra mjmdlistarmanna á þessum
áram. Varð þetta til þess, að hann
fékk smá styrk frá Alþingi til utan-
farar til að kynna sér tréskurðarlist,
og dvaldi hann þá í Kaupmanna-
höfn í nokkra mánuði.
Vora útskomir listmunir þá mjög
í tísku, og sömuleiðis var mikið að
því gert, að skreyta húsgögn með
sérstökum útskurði.
Smíðisgripir Bjama vora yfirleitt
í þjóðlegum stíl, og þá oft stuðst
við fyrirmyndir frá fyrri tímum,
þótt notagildið væri nú annað en
áður. Nú vora t.d. askar ekki leng-
ur notaðir sem matarílát, heldur
sem listmunir, til skrauts á heimil-
um og svo var reyndar um marga
aðra búshluti, sem áður vora í fastri
daglegri notkun og höfðu á sér
handbragð hagleiksmanna frá fyrri
tímum. Var Bjarni einmitt að hasla
sér völl á þessU sviði og fór vel af
stað. Ennþá liðu þó nokkur ár í
Vestmannaeyjum, áður en Bjami
fór að kenna þess sjúkleika, sem
lamaði starfsþrek hans og varð
honum fjötur um fót jafnan síðan.
Vegna þessa . heilsubrests þoldi
hann lítt að stunda tréskurð en fór
að fást meira við teikningar og
málaralist og myndamótun.
Bjami fluttist til Reykjvíkur
ásamt fjölskyldu sinni 1967. Böm
þeirra era tvö, Sverrir iðnaðarmað-
ur, er býr með Guðbjörgu Jóhanns-
dóttur frá Vestmannaeyjum, og
Sjöfn, húsmóðir í Reykjavík, gift
Hermanni Jónssyni, úrsmíðameist-
ara.
Bjami Guðjónsson var maður
hógvær í framkomu, og hlédrægur
og af þeim ástæðum var hann
t
Útför __
ÞÓRSTEINS BJARNASONAR,
Holtsgötu 16,
fer fram frá Dómkirkjunni miövikudaginn 22. október kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeir sem vildu minnast hans láti
Blindravinafélag Islands eöa aðrar hjálparstofnanir njóta þess.
Vegna aöstandenda,
Sigríður Bjarnadóttir.
t
Minningarathöfn
RAGNHEIÐAR BRYNJÓLFSDÓTTUR,
Ijósmóöur,
Suðurgötu 24,
Sauðárkróki,
fer fram í Fossvogskapellu miövikudaginn 22. okt. kl. 13.30.
Útförgeröfrá Sauöárkrókskirkju, laugardaginn 25. okt. kl. 14.00.
Brynjólfur Dan, Kolbrún Hauksdóttir,
Emilia Lárusdóttir og systklni hinnar látnu.
t
Þökkum inniiega samúö og hlýhug við andlát og jarðarför móöur
okkar, tengdamóður og ömmu,
VALGERÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Sörlaskjóli 58.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki, hjúkrunarfólki og læknum
Öldrunardeildar I, Hátúni 10 b, fyrir frábæra umönnun og hlýju.
Fyrir hönd vandamanna,
Sigrún S. Waage, Hróðmar Gissurarson,
Gunnar Reynir Antonsson, Steinunn Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Bálför
BENEDIKTS SIGURJÓNSSONAR,
fyrrverandi hæstaréttardómara,
verður frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 23. október kl. 13.30.
Fanney Stefánsdóttir,
Stefán Benediktsson,
Guðmundur Benediktsson,
Sigurjón Benediktsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar
föður okkar, afa og langafa,
JÓHANNESAR GfSLA MARÍ ASSONAR
frá Súgandafirði.
Hansfna Jóhannesdóttir,
Hreinn Jóhannesson,
Herdís Jóhannesdóttir
og barnabörn.
minna þekktur sem listamaður en
efni stóðu til. Áhugamál hans vora
flest á hinu listræna sviði. Þegar
heilsa hans leyfði lét hann t.d. fáar
listsýningar fram hjá sér fara, og
hafði ánægju af því að blaða í lista-
verkabókum hinna miklu meistara.
Hann var drengur góður, hafði gott
samband við böm sín, systkini sín
og fjölskyldur. Sjaldan var hann
glaðari á efri áram, en þegar honum
vora sagðar fréttir frá hinni svip-
miklu og fögra æskusveit hans
austur í Lóni. Nú er ekki lengur
búið í Bæ, þar sem hann á æskuár-
unum gekk um garða.
Þegar Bjama er minnst og hann
kvaddur verður það ekki gert, nema
þess sé líka minnst, hve Sigríður,
kona hans, stóð traust og öragg
við hlið hans á langri samleið og
bar byrðamar með honum, og
fylgdist með áhugamálum hans,
þegar allt lék í lyndi, og sýndi hina
mestu þolinmæði og umburðar-
lyndi, þegar á móti blés.
Við, sem vorum tengd Bjama
fjölskylduböndum, munum jafnan
minnast hans sem góðs drengs, sem
f engu vildi vamm sitt vita. Við
blessum minningu hans, biðjum
honum fararheilla og ástvinum hans
öllum vemdar og styrks í störfum
og lífi.
Óskar J. Þorláksson
Bjami fæddist í Bæ í Lóni, sonur
hjónanna Guðjóns Bjamasonar og
Guðnýjar Sigmundsdóttur. Hann
elst upp í þessu fagra og tilkomu-
mikla umhverfi við algeng sveita-
störf, en það kemur fljótt í ljós að
þau eiga ekki alls kostar við hann.
Það er eitthvað sem dregur hann
meira að smíðum og að skera út
og gera myndir með blýanti og
pensli. Hann er hagur vel og vand-
virkur við alla hluti sem hann fæst
við og 19 ára gamall heldur hann
til Reykjavíkur í tréskurðamám hjá
Ríkarði Jónssyni listamanni.
Það kemur fljótt í ljós hvað hann
er listhneigður og á gott með að
teikna og skera út og fær því fljót-
lega vandasöm verk að vinna. Hjá
Ríkarði er hann í rúmt ár en lýkur
námi hjá Ágústi Sigmundssyni tré-
skurðarmeistara og hjá honum
vinnur hann svo í nokkur ár. Hann
fær styrk til náms á Listaakademí-
unni í Kaupmannahöfn og kemst
þar strax inn og er þar nærri hálft
annað ár. Einbeitir sér að náminu,
teiknar og módelerar alls konar
hluti, fyrirsætur og annað sem skól-
inn hafði upp á að bjóða. Eftir að
heim kemur heldur hann áfram að
skera út alls konar muni fyrir fólk
sem það gefur í tilefni merkra tíma-
móta hjá hinum og þessum.
í Reylqavík kynnist hann konu
sinni, Sigríði Þorláksdóttur frá Vík
í Mýrdal, sem er þá við nám í
Kvennaskólanum. Þau gifta sig og
byija þar búskap. Hann setur þar
upp vinnustofu og hefur á köflum
sæmilegt að gera. Kemst í kynni
við Baldvin Bjömsson gullsmið og
listamann og áttu þeir ýmislegt
sameiginlegt í list sinni sem lyfti
þeim báðum aðeins upp úr hvers-
dagsleikanum og milli þeirra var
góður kunningsskapur.
Skömmu fyrir stríðið er hann
smíða- og teiknikennari við Gagn-
fræðaskólann hér í Eyjum. Enn-
fremur hafði hann kennt teikningu