Morgunblaðið - 21.10.1986, Blaðsíða 56
STERKTKÐRT
Fannst látinn
í ókleifu gili
MAÐUR fannst látinn í ókleifu
klettagili í Borgarfirði eystri í
gær. Talið er að hann hafí hrap-
aði í gilinu, en maðurinn var einn
á ferð.
Maðurinn, sem var um fertugt,
fór að heiman á sunnudagskvöld til
að gæta að sauðfé. Þegar hann var
ekki kominn heim í gærmorgun var
hafín flölmenn leit og tóku þátt í
henni björgunarsveitin á staðnum,
hjálparsveit skáta á Egilsstöðum,
flokkar frá Seyðisfirði og víðar.
Ennfremur var leitað til Landhelgis-
gæzlunnar og var þyrla á leiðinni
austur er maðurinn fannst síðdegis
í gær í ókleifu gili. Björgunarmenn
urðu að láta sig síga niður til að
ná honum. Sigurður Helgason,
sýslumaður f N-Múlasýslu, stjórnaði
leitinni ásamt lögreglunni á Egils-
stöðum.
Maðurinn var ókvæntur. Ekki er
unnt að birta nafn hans að svo
stöddu.
Ellefu hlutu
bindandi
kosning’u
ELLEFU af fímmtán frambjóð-
endum í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins i Reykjavík fengu
helming gildra atkvæða og hlutu
bindandi kosningu gagnvart
kjörnefnd. Á kjörskrá voru
10.707, atkvæði greiddu 6.546
eða 61.1%, auðir seðlar og ógild-
ir voru 324.
Fjögur efstu sætin hlutu núver-
andi þingmenn flokksins í
Reykjavfk; Albert Guðmundsson,
Friðrik Sophusson, Birgir ísleifur
Gunnarsson og Ragnhildur Helga-
dóttir. í næstu flórum sætum urðu
Eyjólfur Konráð Jónsson, Guð-
mundur H. Garðarsson, Geir H.
Haarde og Sólveig Pétursdóttir.
Sjá nánar um úrslit prófkjörsins
og viðtöi á bls. 36, 52, 53, 54 og
55 og forystugrein.
ÁTVRfækk-
ar tegundum
á söluskrá
NÚ ERU uppi áform um að
fækka tegundum sem til sölu eru
hjá Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins fyrirtækið hefur í sölu.
„Þetta verður svipað og í deilda-
keppninni í fótboltanum, þær
tegundir. sem eru neðst á sölu-
lista á hveiju ári falla út og aðrar
koma inn í staðinn", sagði Hö-
skuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR,
í samtali við Morgunblaðið.
„Við erum með um 700 tegundir
af áfengi í sölu og þriðjungur þess
selst í minna magni en 500 flöskum
á ári“, sagði Höskuldur. „Þessar
tegundir mynda lager sem hreyflst
lítið og það getur t.d. verið óráðlegt
að geyma létt vín lengi, því sum
þeirra þola illa geymslu. Þá má
nefna það sem dæmi að við seljum
vodka frá 21 fyrirtæki, en ætlum
að hafa 8-10 tegundir framvegis.
Þetta ætti ekki að koma sér illa
fyrir viðskiptavini, því nú er hægt
að sérpanta þær tegundir sem menn
óska eftir."
Höskuldur sagði að ekki hefði
enn verið tekin ákvörðun um það
hvaða tegundir hyrfu af markaðin-
um og þessar breytingar kæmu
ekki til framkvæmda fyrr en í febrú-
ar.
ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Morgunblaðið/RAX
TF-JDL á lendingarstað á Miðdalsfjalli seint í gærkvöldl. Ljósin fjær
eru frá Laugarvatni og Selfossi. Vélin stöðvaðist á nokkrum metrum
og aftan við hana sjást för eftir hjól hennar og vængenda sem straukst
utan i hlíðina. Á innfelldu myndinni eru Björn Baldursson flugmaður
vélarinnar tíl vinstri og Axel Eiríksson.
tm
Slysalaus nauðlending
LÍTIL einkaflugvél, TF-JDL,
nauðlenti á Miðdalsfjalli fyrir
ofan Laugarvatn klukkan 14.50
í gærdag. Flugvélin er svo til
óskemmd og flugmaður og far-
þegi sluppu ómeiddir. Aðstæð-
ur á slysstað eru með þeim
hætti að með ólíkindum verður
að teljast að flugmaðurinn
skyldi geta lent vélinni
óskemmdri og siysalaust.
Tveir ungir menn voru í flugvél-
inni, Bjöm Baldursson flugmaður
sem er einn af eigendum vélarinn-
ar og Axel Eiríksson. Þeir vom á
leiðinni að Flúðum, en ætluðu að
fljúga yfir Miðdals§all í leiðinni.
Þeir sögðu í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins á Miðdals-
flalli í gærkvöldi að vélin hefði
skyndilega misst afl á leiðinni inn
yfír ijallið. Þeir hefðu séð fram á
að hafa sig ekki yflr fjallið og þá
hafí aðeins verið um tvennt að
ræða, að snúa við eða reyna að
lenda. „Það var lítill tími til að
hugsa málið, þessir kostir komu
til skiptis upp í kollinn, en svo sá
ég skyndilega lendingarstað og
náði að lenda upp í móti brekku,"
sagði Bjöm. Hann viðkurkenndi
að þeir hefðu verið í mikilli
lífshættu og ef hann hefði tekið
hinn kostinn hefði að öllum líkind-
um farið verr.
Bjöm og Axel stigu út úr flug-
vélinni og gengu til byggða. Vom
þeir komnir niður að bænum Ket-
ilvöllum eftir 25 mínútur. Þar
sögðust þeir hafa fengið góðar
móttökur og dvalið ( besta yfír-
læti um daginn. Þaðan tilkynntu
þeir um slysið til Loftferðaeftir-
litsins. í gærkvöldi vom þeir að
reyna að finna leiðir til að koma
vélinni niður af fjallinu.
Lendingarstaður vélarinnar er
í þröngu dalverpi í svokölluðum
Húsadölum. Vélin hefur stöðvast
á nokkram metmm enda lenti
flugmaðurinn henni upp í móti
brekku. Heimamenn telja að þetta
sé eini staðurinn á fjallinu sem
hægt hefði verið að lenda flugvél-
inni óskemmdri, enda em gil og
stórgrýti þama um allt. Miðað við
þá þröngu stöðu sem flugmaður-
inn var kominn í hefði nauðlend-
ingin ekki getað tekist öllu betur.
TF-JDL er frönsk einshreyfils
flugvél af Jodel gerð. Hún er 4
sæta og em eigendur hennar
fímm menn í Mosfellssveit og
Reykjavík.
Viðskiptin við Sovétmenn
rædd í ríkissljóm í dag
Engir samningar um olíukaup verða gerðir
að svo stöddu segir viðskiptaráðherra
VIÐSKIPTl íslands og Sovétrlkj-
anna verða rædd á fundi ríkis-
stjórnar Islands í dag í ljósi þess,
að enn hefur tekizt að semja um
sölu á saltsíld til Sovétríkjanna.
Á þessum fundi verður tekin af-
staða til þess hvort sovézkum
stjórnvöldum verður send ein-
hver opinber orðsending varð-
andi viðskipti landanna. Matthías
Bjarnason, viðskiptaráðherra,
segir að ekki verði gengið frá
samningum milli þjóðanna um
olíukaup að svo stöddu, þó nefnd
héðan sé stödd í Moskvu til við-
ræðna um olíukaup.
Matthías Bjamason sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að hann hefði
í gær boðað sendiherra Sovétríkj-
anna hér á landi á sinn fund og
falið honum að koma þeim boðum
til stjómvalda sinna, að viðræðum
um saltsfld yrði haldið áfram, en
upp úr þeim slitnaði í síðustu viku.
Hann hefði lagt áherzlu á það, að
verð á niðurgreiddri sfld gæti ekki
talizt eðlileg viðmiðun í þeim við-
ræðum. Nær væri að miða við verð,
sem önnur markaðslönd greiddu.
Með þeim hætti gæfum við Sovét-
mönnum ekkert og þeir okkur ekki
heldur. Þórhallur Ásgeirsson, ráðu-
neytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu
og formaður olíuviðræðunefndar-
innar, hefur rætt við fu .rúa
Prodintorg, matvælainnkaupa-
stofnunar Sovétríkjanna, en þar
segjast menn enn ekki hafa heimild-
ir til kaupa á meira en 40.000
tunnum og á mun lægra verði en
í fyrra.
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að menn væm ekki
búnir að gefa upp alla von um að
samningar um sölu saltsfldar næð-
ust. Hins vegar væri engin ástæða
til bjartsýni í þeim efnum. Áfram
væri haldið að reyna að ná ein-
hveiju sambandi við Sovétmenn
vegna þessa. Aðspurður um hvort
vænta mætti einhverra sérstakra
viðbragða frá íslenzkum stjóm-
völdum vegna þessa, sagði Halldór
að of snemmt væri segja til um
það. Menn væm að reyna að gera
sitt bezta til að fá einhveija niður-
stöðu, en tíminn væri að renna frá
okkur. Þetta yrði sjálfsagt rætt á
fundi ríkisstjómarinnar og viðbrögð
yrðu metin þá í ljósi þeirra upplýs-
inga, sem lægju fyrir.