Morgunblaðið - 21.10.1986, Blaðsíða 33
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1986
33
Urslitin eru mikil
traustsyfirlýsing
- segir Halldór Blöndal
Get ekki verið
annað en ánægður
með útkomuna
- segir Björn Dagbjartsson
„ÚRSLITIN eru mikil
traustsyfirlýsing, sem ég
mun reyna að standa undir,“
sagði Halldór Blöndal.
„Björn Dagbjartsson fékk
líka mjög afgerandi kosn-
ingu.“
„Eg vil nota þetta tækifæri
til að þakka þeim sem tóku þátt
í prófkjörinu og unnu að því -
það fór mjög prúðmannlega
fram.“
Hveraig lýst þér á að fá
Tómas í þriðja sætið?
„Tómas er kunnur baráttu-
maður. Hann hefur einarðar
skoðanir og er fylginn sér. Það
munar um að fá hann á listann.
Vigfús Jónsson á Laxamýri hélt
sínum hlut og er í fjórða sæti
sem áður.“
Áttu von á að Tómas komist
á þing?
„Samkvæmt síðustu kosning-
um hefði hann komist á þing
miðað við þau lög sem nú hafa
tekið gildi og því er góður mögu-
leiki á því að hann nái kosningu
ef við vinnum vel saman. Mér
finnst andrúmsloftið gott í kjör-
dæminu - ég verð var við mikinn
stuðning. Eg tel það mikið að
rúmlega þúsund manns skuli
taka þátt í prófkjöri sem einung-
is er bundið við flokksbundna
menn og ég tel að þessi listi sé
sterkur. Þess vegna er ég mjög
bjartsýnn á framhaldið,“ sagði
Halldór Blöndal.
Halldór Blöndal
„ÉG ER ánægður með út-
komuna - get ekki veríð
annað. Ég sagði einhvera
tima að ég ætti von á að við
Halldór fengjum góða út-
komu en réttara væri
kannski að segja að ég von-
aði það og mér sýnist þær
vonir hafa rætst,“ sagði
Björn Dagbjartsson.
„Ég þakka árangurinn góðum
stuðningsmönnum og sérstaklega
vil ég þakka fjölskyldu minni og
tengdafólki sem lagði mikla vinnu
fram.“
Nú kemur Tómas nýr inn á
listann. Hvernig lýst þér á það?
„Ég hef ekkert nema gott um
það að segja. Ég hef reyndar lengi
átt von á að hann myndi hafna í
þriðja sæti. Mér fannst það á
undirtektum. Þetta var val kjós-
enda og ég hlakka til samstarfsins
við Tómas.“
Björn sagði að skv. niðurstöð-
um síðustu kosninga og nýjum
kosningalögum hefði Sjálfstæðis-
flokkurinn fengið þijá þingmenn
„og mér virðist á bæjarstjómar-
kosningunum að við séum heldur
að bæta við okkur í kjördæmin
svo ég sé ekki annað að við getum
verið sæmilega bjartsýnir á að
þriðja sætið sé að minnsta kosti
brennheitt," sagði Bjöm.
Prófkjör Sjálfstæðismanna:
Halldór Blöndal hlaut
langflest atkvæði
HALLDÓR Blöndal, alþingismaður, hlaut
flest atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðismanna
í Norðurlandskjördæmi eystra vegna vænt-
anlegra alþingiskosninga. Halldór hlaut 919
atkvæði, þar af 654 í 1. sæti. Fimm fystu
sætin eru bindandi en í þeim eru Halldór
Blöndal, Björa Dagbjartsson, Tómas Ingi
Olrich, Vigfús B. Jónsson og Margrét Krist-
insdóttir.
Alls kusu 1074 í prófkjörinu og er það mjög
góð þátttaka - yfír 82%.
Bjöm Dagbjartsson, alþingismaður, varð í öðm
sæti með 849 atkvæði alls en 482 í 2.sætið. Tóm-
as Ingi Olrich, menntaskólakennari, varð í þriðja
sæti. Tómas hlaut 246 atkvæði í það sæti en 674
alls.
Vigfús B. Jónsson bóndi á Laxamýri varð í
fjórða sæti - fékk 132 atkvæði í það sæti en 576
atkvæði alls. í fímmta sæti varð svo Margrét
Kristinsdótti með 131 atkvæði í það sæti en 567
alls.
í sjötta sæti varð Stefán Sigtryggsson við-
skiptafræðingur með 441 atkvæði, Bima Sigur-
bjömsdóttir hjúkmnarfræðingur varð sjöunda með
272 atkævði og Tryggvi Helgason flugmaður lenti
í áttunda sæti með 93 atkvæði.
Er hæstánægður
með niðurstöðuna
- segir Tómas Ingi Olrich
„ÉG STEFNDI á eitt af þremur
efstu sætunum en mér var hins
vegar ljóst að ég átti enga
möguleika á að komast ofar
en í þriðja sæti. Ég náði því
sem ég stefndi að og er því
hæstánægður með niðurstöð-
una,“ sagði Tómas Ingi Olrich,
menntaskólakennari á Akur-
eyri, i samtali við Morgun-
blaðið.
Tómas sagðist alveg eins hafa
búist við að fá ekki þann fjölda
atkvæða sem hann hlaut og niður-
staðan hefði því komið sér gleðilega
á óvart. „Ég var undir það búinn
að fá verri útkomu," sagði hann.
Fólk hefur talað um Tómas sem
sigurvegara prófkjörsins en hann
sagðist ekki ilja dæma um það. „Ég
er ánægður með prófkjörið í heild.
Mér fínnst gott að þingmennimir
fengu góða kosningu því það styrk-
ir samstarfsgrundvöllinn eftir
prófkjörið."
Ertu bjartsýnn á að þú komist
á þing?
„Við eigum góða möguleika á
að ná þriðja sætinu en ef það á að
gerast er ljóst að við verðum að
bæta við okkur fylgi."
Tómas bauð sig nú í fyrsta
skipti fram í prófkjöri vegna al-
þingiskosninga. Hann var spurð-
ur hvort hann ætti sér einhver
uppáhaldsmál i landspólitíkinni?
„Það er ljóst að fyrir mér em
stjómmál fyrst og fremst það að
skapa mannlífínu ákveðnar leik-
reglur og það fer eftir því hvemig
þær em hvemig atvinnulífíð og
kjaramálin ganga. Því verr sem
gengur að stjóma þessum málum
með einföldum hætti því meira vex
miðstýringin og þar af leiðandi fyr-
irgreiðslupólitíkin. Mjög miðstýrt
þjóðfélag hefur þess vegna tilhneig-
ingu til þess að ýta stjómmála-
mönnunum út í fyrirgreiðslupólitík.
Miðstýringin leiðir til þess að fyrir-
greiðslan verður eitt af aðalhlut-
verkum stjómmálamanna og það
er mjög miður."
Tómas sagði að ef hægt væri að
ráðast gegn miðstýringunni og
stýra efnahagsmálum með einfald-
ari hætti þá dreifðist vald sjálf-
krafa. „Svo má hugsa sér
meiriháttar valddreifíngu sem væri
stjómarfarslegs eðlis en ég álít hitt
Tómas Ingi Olrich
atriðið miklu meira virði - að fyrir-
tæki, hvar sem þau starfa, öðlist
meira Qárhagslegt sjálfstæði.
Hvetju þakkar þú þennan
árangur í prófkjörinu?
„Ég hafði með mér hóp manna
sem vann mjög vel og vann í raun
og veru hávaðalaust og af mikilli
tillitssemi og hófsemi við kjósend-
ur. í öðru lagi held % að það sé
ljóst nú að auglýsingamennska sem
fylgir prófkjörum er farin að ganga
út í öfgar. Auglýsingar em tvíeggja
vopn. Þær geta komið mönnum til
góða í vissum tilvikum en þær geta
líka orðið mönnum til tjóns og ég
er ekki í nokkmm vafa að auglýs-
ingaherferðin sem farin var fyrir
prófkjörið nú varð nokkram fram-
Er ekkí óánægður
- segir Vigfús B. Jónsson
„ÉG ER fyrst og fremst mjög
þakklátur þvi marga og góða
fólki sem kaus mig, studdi mig
og vann fyrir mig. Ég er ekki
ósáttur við þetta," sagði Vigús
B. Jónsson bóndi á Laxamýri.
Ertu ánægður með skipan
efstu manna á listann?
„Það er erfitt að segja um þetta.
Akureyri er voðalega sterk eining
í kjördæminu og það er hlutur sem
réði miklu. Ég hef ágætis álit á
Tómasi Inga Olrich en skal ekki
segja hvort hann er heppilegur
maður í baráttusæti - ég er ekki
viss um það. En þetta fór svona
og við því er ekkert að gera.“ Vig-
fús var í fjórða sæti listans við
síðustu kosningar og sagðist því í
raun halda sínu. „Ég er ekkert
óánægður, langt frá því. Ég er ekki
ósáttur við eitt eða neitt og þessi
niðurstaða breytir engu varðandi
mínar sannfæringar.Ég mun halda
áfram að styðja Sjálfstæðisflokkinn
og tek þessu vel,“ sagði Vigfús.
Vigfús B. Jónsson
bjóðendum til tjóns. í þriðja lagi
legg ég ríka áherslu á að það er
mikilvægt að undirbúa prófkjör -
og þá ekki bara mánuðinn áður en
prófkjör á sér stað. Maður þa að
kynna skoðanir sínar og láta fólk
fá það á tilfínninguna að þama sé
maður sem lengi hefur haft áhuga
á stjómmálum. Ég var ritstjóri ls-
lendings í eitt ár og það var mér
mikilvægt. Þar kynnti ég viðhorf
mín og reyndi að vanda til leiðara-
skrifa. Og ég fann að það hafði sín
áhrif í þessari baráttu, meiri áhrif
en margir telja. Nú, viðbrögðin við
því hvernig ég auglýsti benda til
þess að það hafí verið rétt ákvörð-
un. Ég auglýsti aðeins tvisvar og
hvatti þá Sjálfstæðismenn til að
taka þátt í prófkjörinu en auglýsti
ekki sjálfan mig.“
Hefði gjarnan vilj-
að vera svolítið
ofar á listanum
- segir Margrét Kristinsdóttir
„ÉG VARÐ fyrir vonbrigðum
með útkomuna - hefði gjaman
viljað vera svolftið ofar. En það
var við ramman reip að draga
þar sem svona öndvegisfólk var
f kjöri," sagði Margrét Kristins-
dóttir.
„Ég setti ekki steftiuna á ákveð-
ið heldur vildi gefa fólki kost á að
ákveða hvar það kysi mig - en
stefndi auðvitað ofarlega á listann."
Margrét sagðist vera mjög fegin
því að hún skyldi taka þátt í próf-
kjörinu „því þetta hefur verið
lærdómsríkur tími. Ég er ánægð
með þátttökuna því hún sýnir að
fólk hugsar um stjómmál og lætur
sig málin skipta."
Margrét sagði að sér litist vel á
listann. „Ég hefði auðvitað viljað
vera ofar en annars lýst mér vel á
hann. Vigfús hélt sínu en Tómas
er sigurvegari prófkjörsins. Hann
Margrét Kristinsdóttir
bar persónulegan sigur enda unnið
vel fyrir þvf og ég er sátt við hann.“