Morgunblaðið - 21.10.1986, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRBEXJUDAGUR 21. OKTÓBER 1986
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík
Prófkjör á að vera opið
öllum stuðningsmönnum
búsettum í Reykjavík
- segir Jón Magnússon
„ÞAÐ er ánægjulegt að svona
margir skuli hafa tekið þátt i
prófkjörinu," sagði Jón Magnús-
son sem er í níunda sæti að loknu
prófkjöri. „Hefði prófkjörið ve-
rið opið mundu helmingi fleiri
hafa tekið þátt í þvi en i þessu
lokaða prófkjöri. Vilji kjósenda
Sjálfstæðisflokksins hefði þá
komið mun skýrar fram.“
„Ég er sannfærður um að minn
árangur hefði orðið mun betri í
opnu prófkjöri vegna þess að ég
hef aðallega starfað á öðrum félags-
málavettvangi á undanfömum
árum en í Sjálfstæðisflokknum,"
sagði Jón. í próflq'öri fyrir alþingis-
kosningamar árið 1982 var hann
einnig í níunda sæti en vegna breyt-
inga á kjördæmaskipan telja menn
að 9. sætið sé nú baráttusætið og
sagði Jón að menn hefðu ekki getað
valið betri mann í það sæti. Hann
taldi prófkjör eiga rétt á sér áfram
ef þau væra opin eða að væra þau
lokuð þ.e. eingöngu fyrir flokks-
menn þá hefðu þeir einir rétt til
þátttöku sem væra raunveralegir
flokksmenn og greiddu árgjöld til
hans. „Staðreyndin er sú að innan
við helmingur þeirra sem era á
skrá og kjósa greiða árgjöld," sagði
Jón. Hann sagði að í opnu próf-
kjöri fengju stuðningsmenn sem
ekki vildu binda sig ákveðnum
flokki en vildu styðja hann við
næstu kosningar, tækifæri til að
að hafa áhrif á listann. Hann gagn-
rýndi hversu illa hefði verið staðið
að kynningu frambjóðenda innan
flokkskerflsins. Haldnir hefðu verið
þrír illa auglýstir fundir sem um
100 manns samtals mættu á.
Hefði viljað nafn
mitt ofar á listanum
- segir Rúnar Guðbjartsson
„MÉR er efst i huga að þakka kerfisbundnar hringingar eftir kjör-
þeim sem unnu fyrir mig, og
veittu mér atkvæði sitt. Að sjálf-
sögðu fór ég út í prófkjörsbar-
áttu til að komast inu á þing, og
hefði viijað sjá nafn mitt ofar á
listanum. Engu að sfður er ég
ánægður með listann, þingmenn-
irnir héldu sfnu og ný andlit
bættust f hópinn,“ sagði Rúnar
Guðbjartsson, sem hafnaði f 15.
sæti á lista flokksins f Reykjavík.
Rúnar sagðist f upphafl hafa orð-
ið fyrir vonbrigðum með útkomu
sína. Eftirá að hyggja væri útkoma
sfn þó vel viðunandi, þar sem 20%
kjósenda hefðu gefíð honum at-
kvæði sitt. „Ég kem inn í þennan
slag nærri óþekktur. Meðal stefnu-
mála má líka nefna andstöðu við
bjórinn og hvalveiðar, sem era ekki
beint í samræmi við tíðarandann í
dag. Þannig má segja að ég hafl
átt undir högg að sækja," sagði
Rúnar.
Kostnað sinn við þáttöku í próf-
kjörinu sagði Rúnar vera um
120.000 krónur. Hann hefði keypt
4 stórar auglýsingar í Morgun-
blaðinu, auk smærri auglýsinga.
Hann hefði ekki prentað bækling
og ekki hefði verið um að ræða
skrá. „Mér finnst þessi kostnaður
ekki ýkja mikill" sagði Rúnar. „
Persónulega tel ég raunar að aug-
lýsingamar hafl ekkert að segja.
En veret held ég að þetta sé fyrir
þingmennina sem þurfa að beijast
um sæti sín. Ég teldi eðliiegast að
þeir héidu sínum öraggu sætum,
en við hin berðumst um afganginn."
Rúnar Guðbjartsson
Hefði viljað sjá
þrjár konur í
fyrstu níu sætunum
- segir Sólveig Pétursdóttir
„MÉR finnst mínn árangur ótrú-
lega góður,“ sagði Sólveg
Pétursdóttir, sem varð áttunda í
prófkjörinu. „Ég held að fylgið
komi úr öllum stéttum flokksins
og endurspegli margvísleg sjón-
Dregið tjald á
milli mín og Alberts
- segir VilhjáJmur Egilsson
„Það er ljóst að það var dregið
tjald á milli mín og Alberts og
það er meginskýringin á því
hvetja útkomu ég fékk í próf-
kjörinu," sagði Vilhjálmur
Egilsson, sem varð í 11. sæti í
prófkjöri Sjálfstæðismanna í
Reykjavík.
lagði á sig geysimikla vinnu og því
verður ekki kennt um hvemig fór,“
sagði Vilhjálmur að lokum.
armið flokksmanna og ég
mótmæli þvi ekki að fjölskyldu-
tengs hafa örugglega hjálpað
mér.“
Sólveig sagði að velgengnin hefði
komið á óvart en ánægðust væri
hún með þá viðurkenningu sem í
henni fælist gagnvart ungum fram-
bjóðendum og konum. „Ég hefði
þó viljað sjá fleiri konur komast í
öragg sæti að minnsta kosti þijár
í fyretu níu sætin," sagði Sólveig.
„Baráttan hefur verið erfíð en
drengileg og ég efast um að ég
mundi vilja taka þátt í öðra próf-
kjöri. Kostnaður og vinna er
óhemjuleg og ég held að prófkjör
endurepegli ekki alltaf vilja flokks-
manna. Það er því tímabært að
endurekoða þetta fyrirkomulag."
Jón Magnússon
Sólveig Pétursdóttir
Vilhjálmur Egilsson
Bessí Jóhannsdóttir
María E. Ingvadóttir
Stefndi á öruggt
sæti á listanum
- segir María E. Ingvadóttir
„Ég varð fyrir nokkrum
vonbrigðum, þar sem ég
stefndi á öruggt sæti og það
Hann sagði að ef talin væru
saman atkvæði sín og atkvæði þau
sem Albert Guðmundsson fékk í
1. sæti væri nærri lagi að það
næði heildaratkvæðamagninu í
prófkjörinu. „Ég vil óska þeim til
hamingju sem náðu árangri. Þetta
er dómur q'álfstæðismanna í
Reykjavík, en mín skoðun er sú að
listinn hefði orðið sterkari með ann-
an mann í fyrsta sætinu,“ sagði
Vilhjálmur.
Hann sagðist ekkert hafa við
regiumar í prófkjörinu að athuga.
„Eg vil þakka öllu því fólki sem
hjálpaði okkur í prófkjörinu. Það
Sjálfstæðismenn ekki
vaxnir út úr kvótakerfinu
- segir Bessý Jóhannsdóttir
„LISTTNN kemur vel út - fyrir
þá sem ientu I 8 efstu sætunum.
Sjálf er ég að sjálfsögðu ekki
ánægð með mína útkomu," sagði
Bessý Jóhannsdóttir sem hafnaði
í 13. sæti í prófkjörinu. Aðspurð
sagðist hún ekki geta dæmt urn
hvað ylli þessari niðurstoðu.
„Fylgi við mig er sennilega ekki
meira, og sjálfsagt skiptir miklu
að ég hef verið talin heldur
hægra megin í flokknum,“ sagði
Bessý.
„Hlutur kvenna f þessu prófkjöri
er nákvæmlega eins og ég bjóst
við. Sjálfstæðismenn era ekki ennþá
vaxnir út úr kvótakerfinu," sagði
Bessý. Hún sagðist jafnan hafa
verið fylgjandi prófkjöram, teldi
þau stuðla að eðlilegri endumýjun
á framboðsiistanum. „Núna fór
auglýsingastríðið út í algjöra vit-
leysu. Jafnvel þótt sýnt hafí verið
fram á að ekki er bein fylgni á
milli Qölda auglýsinga og atkvæðis-
magns, geta frambjóðendur ekki
sleppt því að auglýsa. Okkur er
stilit upp við vegg, og á endanum
lendum við í vítahring."
Bessý sagðist fylgjandi því að
ekki yrði viðhaft prófkjör fyrir allar
Alþingiskosningar. Stundum kæmi
betur út að láta kjarkmikla kjör-
nefiid um að stilla upp lista.
Aðspurð hvort hún gæti hugsað sér
að gefa aftur kost á sér í próflq'öri
flokksins, sagðist Bessý ekki geta
sagt fyrir um framtíðina. Hún
kvaðst vilja þakka sínum sínum
stuðningsmönnum fyrir, og færa
átta efstu mönnum ámaðaróskir,
þó sérstaklega Sólveigu Péturs-
dóttur.
tókst ekki hjá mér. En í kosn-
ingum verður maður að vera
tilbúinn til þess að taka bæði
sigri og ósigri," sagði María
E. Ingvadóttir, sem varð í 10.
sæti í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík.
„Ég hefði gjaman viljað sjá
fleiri konur í efstu sætunum. Mér
sýnist að ennþá sé við lýði sá
hugsunarháttur hjá kjósendum,
að setja eina eða tvær konur á
framboðslista til þess að gera
skyldu sína. Það er engan vegin
nógu gott. Ef til vill megum við
nokkuð vel við una samt sem
áður. í upphafí kosningabarátt-
unnar talaði formaður flokksins
um að þijár konur í efstu níu
sætunum væri þokkalegur árang-
ur, en nú eru þrjár konur í tíu
efstu sætunum. Eg vona einung-
is að listinn verði sigurstrangleg-
ur í komandi kosningum, “ sagði
María E. Ingvadóttir einnig.