Morgunblaðið - 21.10.1986, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 21.10.1986, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRÍÐJÚDÁGUR 21. OKTÖBER 1986 Ife mrn fclk f fréttum Þetta er rammi úr kvikmynd, sem tek- in var skömmu eftir aldamót síðustu. Efri myndin er frá Harlem og er tekin snemma á fimmta ára- tugnum, en hin neðri er frá Rio de Janeiro árið 1972. Joan Jett í kvikmynd Joan Jett, sem skaust upp á I stjömuhimininn fyrir nokkrum árum með lagi sínu ILove Rock’n’- Roll, hefur nú verið fengin til þess | að leika eitt aðalhlutverk nýjustu I kvikmyndar Paul Schrader, Just Around the Comer to the Light of Day. í henni mun hún leika rokk- | stjömu, svo að hún ætti ekki að eiga í vandræðum með að setja sig í spor söguhetjunnar. Joan Jett. í Kongó dansa menn sérkenni- lega dansa, sem kallast ta masamba og ta masamba n’swalu og er talið að þeir dansar séu margra alda gamlir. í raun er þar um að ræða margar sömu hreyf- ingar og tíðkast í skiykkdansi. Sem sjá má á meðfylgjandi myndum er skrykkdansinn síður en svo nýtt fyrirbæri og lítil ástæða til þess að ætla að hann sé úr sögunni. Skrykkdans að fornu og nýju Koparstunga frá dögum Dicnkens sem sýnir tvo blá- menn skemmta sér og öðrum með skrykkdansi. Fyrir réttum þremur árum gekk yfir Vesturlönd enn eitt æðið, skrykkdansinn. Flest fólk komið yfir tvftugt hélt þó stillingu sinni, en íslands unga æska ham- aðist því meir, endasentist um gólfið, hoppaði og skoppaði og lét öllum illum látum. Ekki fór þó svo að skrykkdansinn yrði vinsæll samkvæmisdans, enda erfitt fyrir kynin að samlagst hvort öðru i atganginum. Enginn skyldi þó halda að skrykkdansinn sé eitthvert stund- arfyrirbrigði, sem hafi verið fundið upp, runnið sitt skeið og sé horfíð að eUífu, þvl öruggar heimildir eru til fyrir því að það hafi verið tíðkað í langan aldur. Ekki ómerkari maður en Charles Dickens veitti skrykknum eftir- tekt og reit um þennan sérkenni- lega dans í ferðabók sinni frá Ameríku. 60 ára ártíðar Houdinis minnst AÐDÁENDUR sjónhverfingamannsins Harry Houdini hyggj- ast koma saman næstu mánaðamót til þess að minnast hins látna meistara. Til þess að komast í enn nánara samband við Houdini hafa þeir skipulagt miðilsfund, ef ske kynni að hann guðaði á gluggann. Fyrir aðdáendunum fer teppabúðareigandi frá Massachusetts og hefur hann haft veg og vanda af hátíðahöldunum, sem fara munu ftam í Appleton, fasðingarbæ Houdinis. Til ártfðarinnar hefur verið boðið 150 gestum, þ.á.m. Tony Curtis, sem lék Houdini í kvikmynd, sem og manni sem varð vitni að því er Houdini var veittur áverkinn, semn dró hann til dauða. Aðrir, sem taka munu þátt í samkomunni eru áhugamenn um sögu sjónhverfinga, sjónhverfingamenn, þáttagerðarmaður fiá Public Broadcasting Service og frænka Houdinis, Marie H. Blood. Houdini eyddi dijúgum hluta ævi sinnar í að fletta ofan af dulspekingum og miðlum ýmiskonar. Sjálfur hafði hann reynt að ná sambandi við látna móður sína, en vegna þekkingar sinnar, sá hann brátt í gegn um lygavef þann er þeir spunnu. Gerði hann það því að föstum lið á sýningarskrá sinni að setja á svið sams konar pretti og miðlamir gerðu. - Telja því sumir að þó svo að Houdini biði handan móðunnar miklu myndi hann engu svara, enda hafa fyrri tilraunir engan árangur borið. Þeir sem trúa á mátt kosmfskra krafta láta þó engan bilbug á sér fínna og bíða þvf Allraheilagramessu (31. október) með eftirvæntingu, en þá fer fundurinn fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.