Morgunblaðið - 21.10.1986, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 21.10.1986, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1986 47 Cindy Lauper á hvíta tjaldið Cindy Lauper, sem nú siglir hraðbyri upp vinsældalistana með lagið sitt True Colours, hefur undirritað samning við Wamer Brothers um að leika í nokkrum kvikmyndum. Ekki er vitað hversu stór hlutverk er þar um að ræða eða hvaða mótleikara hún fær. Cindy Lauper. Vigdís p í Róm Sem kunnugt er var frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ís- lands, boðið að flytja setningarræðu á sjötta alþjóðamatvæladegi Mat- væla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í Róm. Myndin sýnir Vigdísi við komuna til stofnunarinnar sl. fímmtudag og var það framkvæmdastjóri FAO, Eduardo Souma, sem tók á móti forsetanum og bauð hana vel- komna. Gjaldkerarnir rétta hólkana yfir borðið ftast er bankagjaldkerum illa ^Jvið byssur, enda standa þeir yfírleitt vitlausu megin við hlaupið þegar þeir kynnast skotvopnum. í Harrisburg ( Illinois er þessu þó öfúgt farið, því þar rétta gjald- keramir viðskiptavinum bankans byssur í vexti. í Bandaríkjunum tíðkast það gjama að bankar verðlauni við- skiptavini sína með gjöfum ýmis- konar og fær fólk þá allt frá nafnmerktum pennum upp í glæsi- bifreiðar. í bankanum í Harrisburg hefúr það hins vegar tíðkast í þijú ár að viðskiptavinimir fái byssur að launum fyrir innistæðueignina. Talsmenn bankans segja að frá því að bankinn tók þessa viðskipta- hætti upp hafi viðskiptavinum hans fjölgað og innistæður aukist vem- lega. Málum er þannig háttað að hafí maður tiltekna upphæð á bundnum reikningi í sex mánuði eða lengur fær maður hólkana að launum. Binditfminn fer eftir upp- hæðinni. COSPER N J Ó T I Ð DÖNSK KVÖLD Á RIC6HD0S JAZZMEN í kvöld, þriðjudaginn 21. október, mun danska jass- hljómsveitin RICARDOS djassa fyrir gcsti Borgarinnar, eins munu dönsku súperstjömumar HALRICKS og GULLÝ HANNA koma fram. Miðvikudagur 22. október. Danskajasshljómsveitin RICARDOS ásamt HALRICKS og GULLÝ HÖNNU. Fimmtudagur 23. október. Danska hljómsveitin RICAR- DOS ásamt HALRICKS og GULLÝ HÖNNU. HúsiA opið frá kl. 20—01.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.