Morgunblaðið - 27.11.1986, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
268. tbl. 72. árg.
FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Söngvakeppni EBU:
ísland
fjórða
i roðmni
Brussel, AP.
FULLTRÚI íslands í söngva-
keppni Sambands evrópskra
sjónvarpsstöðva (EBU) á næsta
ári verður fjórði í keppnisröðinni
og treður upp á eftir fulltrúum
Noregs, ísraels og Austurrikis.
Dregið var um keppnisröð þátt-
tökuþjóðanna í gær. Sandra Kim,
sigurvegari í keppninni í Bergen sl.
vetur, dró nöfn landanna í beinni
útsendingu vinsæls síðdegisþáttar í
belgíska útvarpinu.
Næstur á eftir fulltrúa íslands
treður belgíski fulltrúinn upp, þá
fulltrúar Svíþjóðar, Ítaiíu, Portú-
gals, Spánar, Tyrklands, Grikk-
lands, Hollands, Lúxemborgar,
Bretlands, Frakklands, Vestur-
Þýzkalands, Kýpur, Finnlands,
Danmerkur, írlands, Júgóslavíu og
Sviss.
Rauði krossinn
verðuráframí
Suður-Afríku
Jóhannesarborg', Reuter.
PIK Botha, utanríkisráðherra
Suður-Afríku, tilkynnti í gær-
kvöldi að fulltrúar Alþjóða
Rauða krossins (ICRC) fengju
áfram að starfa í Suður-Afríku
og hefði stjórnin fallið frá fyrri
ákvörðun um að banna starfsemi
samtakanna í landinu.
Botha sagði þessa ákvörðun hafa
verið tekna eftir að fram kom í við-
ræðum við forseta alþjóðanefndar
Rauða krossins að hann hefði verið
ósamþykkur því að reka fulltrúa
Rauða kross Suður-Afríku af árs-
fundi samtakanna í Genf í október
sl. Yfirvöld í Suður-Afríku höfðu
gefíð fulltrúum ICRC frest til 30.
nóvember til að koma sér úr landi.
Margir þeirra eru þegar famir úr
lándi.
AP/Símamynd
Réttarhöld hafin yfir Bokassa
Réttarhöld yfir Jean-Bedel Bokassa, fyrrum keisara Mið-Afríku-
lýðveldisins, hófust í gær í Bangui, höfuðborg landsins. Hann
er m.a. sakaður um fjársvik, fjöldamorð og mannát. Honum var
steypt árið 1979 þegar sannað þótti að hann hefði látið myrða
100-200 skólabörn, sem mótmælt höfðu því valdboði keisarans
að þau skyldu klæðast sérstökum skólabúningi, sem fyrirtæki
I eigu hans framleiddi.
Edwin Meese:
Fleiri viðriðiiif
greiðslurnar
til skæruliða
Waahington, AP. Reuter.
EDWIN Meese, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær
að fleiri væru viðriðnir peninga-
greiðslur til Contra-skæruliða en
aðeins þeir John Poindexter, sem
sagði af sér starfi öryggisráð-
gjafa Bandaríkjaforseta, og
Oliver North ofursti, aðstoðar-
maður hans.
„Það verður ekki liðið að Po-
indexter og North verði gerðir að
blórabögglum. Það áttu fleiri aðild
að því að koma peningunum, sem
Iranir greiddu fyrir bandarísk vopn,
inn á leynireikning Contra. Þeir
verða leitaðir uppi og afhjúpaðir.
Þeir verða látnir gjalda gjörða sinna
og sóttir til saka ef um lögbrot reyn-
ist að ræða,“ sagði Meese.
Hann sagði að ekkert hefði kom-
ið fram sem benti til að aðrir af
nánustu samstarfsmönnum Reag-
ans hefðu haft vitneskju um málið.
Demókratar á þingi leggja hins
vegar lítinn trúnað á það og sagði
Bill Bradley öldungadeildarmaður
frá New Jersey t.d. að ef forsetinn,
starfsmannastjóri Hvíta hússins
(Donald Regan) eða yfirmaður
leyniþjónustunnar (William Casey)
hefðu ekkert vitað um greiðslurnar
til Contra væru þeir sekir um stór-
kostlega vanrækslu í starfi.
Dómsmálaráðuneytið í Sviss til-
kynnti í gær að það væri ékki
ólöglegt að leggja peninga, sem
Iranir hefðu greitt Bandaríkjunum
fyrir vopn, inn á reikning skærulið-
anna.
Vestrænir sendifulltrúar sögðu í
gær að greiðslumar til Contra-
skæraliða væra áfall fyrir Banda-
ríkjaforseta og stefnu hans í
málefnum Nicaragua. Sandinistar
hefðu ástæðu til að gleðjast því
málið yrði að öllum líkindum til að
styrkja stöðu þeirra út á við.
Reagan var yfirheyrður
um vopnasendingamar
Nefnd kannar hlutdeild Þjóðaröryggisráðsins
Washington, AP. Reuter.
REAGAN Bandaríkjaforseti og
helztu ráðherrar hans voru allir
yfirheyrðir í rannsókn dóms-
málaráðuneytisins á vopnasöl-
unni til írans, að sögn háttsetts
fulltrúa í ráðuneytinu. Voru þeir
spurðir í þaula á heimilum sínum
eða skrifstofum um síðustu helgi
og stjómaði Edwin Meese, dóms-
málaráðherra, sjálfur yfirheyrsl-
unum.
Reagan skipaði i gær þriggja
manna nefnd til að rannsaka fram-
kvæmd vopnasölusamningsins og
þátt Þjóðaröryggisráðsins í málinu.
Ráðið hefur verið sagt hafa átt
frumkvæðið að leynisamningunum
og stjómað vopnaflutningunum.
Dan Howard, talsmaður Hvíta
hússins, sagði að nefndinni hefði
verið gefnar frjálsar hendur um
Þriðja Parkinson-lögmálið kynnt í Ósló:
Leiðindi eru mesta
meinið í vestræn-
um samfélögum
ÓhIó, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunbladsins.
CYRIL N. Parkinson, prófessor, sem kunnur er um heim allan
fyrir Parkinson-lögmálið, er nú staddur í Ósló og I gær setti
hann fram þriðja lögmál sitt, lögmálið um sjálfvirknina. Er inntak-
ið í þvi, að „afleiðingin af aukinni vélvæðingu og sjálfvirkni í
vestrænum samfélögum er almenn leiðindi".
Það var Ragnar S. Halldórsson, mál sitt og lagði mikla áherslu
Símamynd/Verdens Gang
Prófessor Cyril N. Parkins (t.v.) og Ragnar Halldórson, for-
stjóri ISAL. Myndin var tekin í Osló í gær.
Simamynd/Verdens Gang.
forstjóri íslenska álfélagsins, sem
fékk sagnfræðinginn, rithöfund-
inn, blaðamanninn og háðfuglinn
Parkinson til að koma til Óslóar
en Ragnar er einnig stjórnarfor-
maður í Sambandi norrænna
álverksmiðja. Á fundi sambands-
ins í gær kynnti Parkinson þetta
á, að sér væri full alvara með
því. Útskýringamar og dæmisög-
umar, sem hann kom með máli
sínu til stuðnings, vöktu þó oft
mikla kátínu meðal fundarmanna.
„Mesta meinið, sem nú hijáir
Vesturlönd, er leiðindi. Menn era
meðhöndlaðir eins og vélar og
þeir era æ meir famir að haga
■ sér og hugsa eins og vélar. Við
lifum í leiðinlegum heimi fjölda-
framleiðslunnar,“ sagði Parkin-
son. „Áður flýði fólk tilbreytingar-
leysi hverdagslífsins með því að
leita á náðir áfengis, tóbaks og
fjárhættuspils en nú hafa hávað-
inn (popptónlistin), hraðinn
(kraftmiklir bílar og vélhjól) og
eiturlyf komið í staðinn."
Parkinson telur það helst til
ráða, að ungt fólk læri aga og
að engum sé gert að vera alltaf
við leiðinleg og sjálfvirk störf. Þá
vill hann, að þegar skólagöngu
Ijúki verði allir að vinna í tvö ár
í þágu samfélagsins án annarra
launa en vasapeninga.
rannsókn málsins og hún fengi að-
gang að öllum gögnum, sem það
kynnu að varða. Henni væri ætlað
að kafa til botns í öllum þáttum
vopnasölumálsins. Nefndina skipa
John Tower, fyrram öldungadeild-
armaður frá Texas, Edmund
Muskie, fyrram utanríkisráðherra,
og Brent Scowcroft, sem var örygg-
ismálaráðgjafí Geralds Ford, fyrr-
um Bandaríkjaforseta.
Eftir að hafa tilkynnt skipan
nefndarinnar héldu bandarísku for-
setahjónin til Kalifomíu í fjögurra
daga leyfi en í dag ganga í garð
almennir frídagar vegna þakkar-
gjörðar til Guðs í Bandaríkjunum.
Ekki er búizt við að öldur lækki
næstu daga vegna frídaganna.
Þingleiðtogar úr röðum demókrata
hóta nú að knýja í gegn lagabreyt-
ingar til að skerða vald Þjóðarör-
yggisráðsins. Vilja þeir að það verði
aðeins forsetanum til ráðgjafar en
því bannað að stuðla að og standa
í leynilegum aðgerðum á borð við
vopnasöluna til Iran.
Kölnarblaðið Express sagði í gær
að bandarískir ráðherrar hefðu
reynt að fá ríkisflugfélagið Luft-
hansa til að flytja vopn til írans
um ísrael. Þegar félaginu hafi verið
neitað um skýringar á því hvers
vegna ekki mátti koma fram á
farmbréfum hver varan væri hefðu
stjómendur þess synjað erindinu.
Talsmenn flugfélagsins sögðust
hins vegar ekki kannast við að reynt
hefði verið að fá félagið til vopna-
flutninganna.
Sjá ennfremur fréttir á bls. 30.