Morgunblaðið - 27.11.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
Verð á freðfiski hækkar í Bretlandi:
Rúmlega 54% verðmæta-
aukning það sem af er árínu
VERÐ á íslenskum freðfiski á
Bretlandsmarkaði hækkaði í gær
um allt að 10% miðað við sterl-
ingspund. Ýsa og þorskur
hækkuðu um 8% til 10% og flat-
fiskur á bilinu 6% til 8%. Að sögn
Sigurðar Markússonar, fram-
kvæmdastióra Sjávarafurða-
deildar SIS, hefur verðmæta-
aukning á freðfiski á
Bretlandsmarkaði numið rúm-
lega 54% á fyrstu 10 mánuðum
þessa árs, miðað við sama tíma-
bil í fyrra.
Sigurður sagði að á vegum dótt-
urfyrirtækis SIS í Bretlandi, Iceland
Seafood Ltd., hefðu verið flutt út
til Bretlands á fyrstu 10 mánuðum
ársins 1985 samtals 6.890 tonn af
freðfiski, en samtals 8.090 tonn á
fyrstu 10 mánuðum þessa árs, sem
er 17,4% aukning í magni. Árið
1985 fengust 544 milljónir króna
fyrir fiskinn (cif), en á þessu ári
840 milljónir, sem er 54,4% verð-
mætaaukning. Sagði Sigurður að
þessa þróun mætti rekja til aukinn-
ar eftirspumar á Bretlandsmarkaði
eftir bæði ferskfiski og freðfiski.
Ástæður væru fyrst og fremst þær,
að afli í Norðursjó hefði brugðist
að nokkru, afli á Noregsmiðum
hefði verið mun minni en áætlað
var og að minna hefði verið flutt
inn af fiski frá Kanada, sem staf-
aði af miklum verðhækkunum og
aukinni eftirspum á Bandaríkja-
markaði.
Að sögn Sigurðar hafa orðið
nokkarar hækkanir á þessu ári í
Bretlandi en frá því í janúar sl.
hafa þorskflök með roði hækkað
um 29% til 34%, roðlaus þorskflök
hækkað um 26% til 32%, ýsuflök
með roði um 12% til 14% og roð-
laus ýsuflök um 8% til 10%.
Ástæðuna fyrir minni hækkun á
ýsu en þorski á þessu ári sagði Sig-
urður vera þá, að ýsa hefði hækkað
talsvert rétt fyrir síðustu áramót.
Verðhækkanimar í gær em
nokkuð mismunandi eftir stærðar-
flokkum, en verð á algengustu
pakkningum ýsu og þorsks er eftir
hækkanimar í gær: Þorskflök með
roði 117 krónur kílóið, roðlaus
þorskflök 132 krónur, ýsuflök með
roði 126 krónur og roðlaus ýsuflök
138 krónur kflóið. Hér er um að
ræða cif-verð.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
urðu samsvarandi hækkanir á freð-
fiski hjá sölufélagi SH í Bretlandi,
Icelandic Freezing Plants Ltd., nú
í vikunni.
Matthías Bjamason sam-
gönguráðherra og Jósep
Motzfeldt, samgönguráð-
herra Grænlendinga, í
móttöku sem haldin var á
Keflavíkurflugvelii í gær í
tilefni af opnun flugleiðar
á milli Narsarsuaq og Kaup-
mannahafnar með miili-
lendingu í Keflavík. Að baki
þeirra má sjá Sigurð Helga-
son, forstjóra Flugleiða og
Pétur Thorsteinsson sendi-
herra
Ný flugleið á milli Narsarsuaq og Kaup-
mannahafnar með millilendingu í Keflavík
GRÆNLANDSFLUG í sam-
vinnu við Flugleiðir hefur
opnað nýja flugleið á milli
Narsarsuaq og Kaupmanna-
hafnar með millilendingu í
Keflavík, en i febrúar sl. hófst
flug á vegum Grænlandsflugs
á milli Reykjavíkur og Nuuk.
Grænlandsflug hefur heimild
fyrir flugleiðinni, en Flugleiðir
leggja til vélar og flugmenn. Lagt
er af stað frá Kaupmannahöfn á
miðvikudögum, millilent í
Keflavík og haldið þaðan til Nars-
arsuaq. Haldið er af stað frá
Narsarsuaq sama dag og flogið
til Kaupmannahafnar með milli-
lendingu í Keflavík.
f . -m
Hlemmur:
Ráðist á lögreglu
HÓPUR unglinga réðst á lög-
regluþjóna í biðstöð strætisvagna
við Hlemm í gær.
Lögregluþjónamir, sem voru þrír
saman, voru kvaddir að Hlemmi
síðdegis til að koma unglingum út
úr húsinu. Höfðu unglingamir verið
með óspektir og læti við aðra gesti
biðstöðvarinnar. Þegar lögreglan
kom á vettvang brugðust ungling-
amir ókvæða við málaleitan um að
yfirgefa staðinn og réðust á lög-
regluþjónana. Einn þeirra tognaði
mjög illa á fingri og annar var hár-
reyttur svo iililega að stór hárflygsa
var rifin af höfði hans. Þeir ungling-
ar sem verst létu vom teknir og
fengu þeir sem aldur höfðu til þess
gistu hjá lögreglunni um nóttina.
Keflvíkingar vilja kísilmálm-
verksmiðju við Helguvík
Keflavík.
MIKILL áhugi er nú hjá bæjar-
stjórn Keflavíkur fyrir byggingu
og reksturs kísilmálmverksmiðju
við Helguvík. Mál þetta var kynnt
fyrir alþingismönnum Reykja-
neskjördæmis er þeir komu í
heimsókn til Keflavíkur á föstu-
daginn var.
Vilhjálmur Ketilsson bæjarstjóri
í Keflavík sagði í samtali við Morg-
unblaðið að að vísu væri búið að
binda með lögum byggingu kísil-
málmverksmiðju við Reyðarfjörð,
en ljóst væri að það þætti í dýrara
lagi að reisa verksmiðjuna þar til
að það borgaði sig. „Við viljum því
benda ráðamönnum á þennan val-
kost,“ sagði Vilhjálmur ennfremur.
í lauslegri greinargerð sem Al-
menna verkfræðiskrifstofan hefur
gert um aðstæður í Helguvík um
stóriðjuver af millistærð segir m.a.:
Fullyrða má að aðstæður í Helguvík
fyrir millistórt stóriðjuver eru með
þeim bestu sem gerist hérlendis.
Til staðar verði innan tveggja ára
mjög góð hafnaraðstaða, hagkvæm
og hentug byggingarlóð, nægjan-
legt vatn í næsta nágrenni verk-
smiðjusvæðisins og tenging við
orkuveitukerfi landsins væri auð-
veld. Mikið og gott vinnuafl væri
fáanlegt í nágrannasveitarfélögum
sem eru í innan við 10 km fjarlægð
frá hugsanlegri verksmiðju og þar
búi um 12.000 manns. Þá er bent
á að í Keflavík og nærliggjandi
sveitarfélögum sé þróaður þjón-
ustuiðnaður til staðar.
- BB
Forval Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík:
Um 200 nýir félagar
gengu í flokkinn
FRESTUR tU þess að gerast félagi í Alþýðubandalaginu í Reykjavík
fyrir forval flokksins sem verður á morgun og sunnudag, rann út
kl. 22 í gærkvöldi, 60 klukkustundum áður en kjörfundur ópnar, og
þá höfðu samkvæmt upplýsingum flokksskrifstofunnar um 200 nýir
félagar gengið í Alþýðubandalagið. Fyrir voru í Alþýðubandalags-
félaginu í Reykjavík nálægt 1.300 manns.
Samkvæmt upplýsingum flokks-
skrifstofunnar í gærkvöldi, þá var
nokkuð stöðugt streymi nýrra fé-
laga með inntökubeiðnir sínar á
flokksskrifstofuna í gær, og mestur
var straumurinn f gærkveldi. Var
bæði að einstakir umsækjendur
kæmu með inntökubeiðni sína, og
að frambjóðendur skiluðu inn inn-
tökubeiðnum nýrra félaga. Að
þessu sinni sækja mun færri um
inngöngu, en fyrir forval vegna
borgarstjómarkosninga í fyrra, en
þá sóttu um 400 manns um inn-
göngu í flokkinn.
Forvalið verður á morgun og
sunnudag og eiga samkvæmt þessu,
um 1.500 manns rétt á þátttöku í
forvalinu.