Morgunblaðið - 27.11.1986, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
ÚTVARP / SJÓNVARP
Þá og nú
Þjóðveijar hafa greinilega sótt í
sig veðrið á sjónvarpssviðinu og
fáum við íslendingar að njóta þeirrar
framsóknar í ríkissjónvarpinu þar sem
í það minnsta þrír þýskir framhalds-
þættir gleðja augað þessa dagana:
Der Alte Sá gamli sem er á dagskrá
á fostudögum, Die Schwarzwaldklinik
eða Sjúkrahúsið í Svartaskógi sem er
á dagskrá á miðvikudögum og svo
hófst nýlega á þriðjudögum þáttaröðin
Die Welt der 30er Jahre eða Heimur-
inn fyrir hálfri öld. Að mínu mati eru
hér á ferð athyglisverðir sjónvarps-
þættir byggðir á traustum grunni
aldinnar menningarhefðar. Er gott að
hverfa til þessa menningarheims þá
Hollywoodfroðan keyrir úr hófi á
skerminum. Að vísu finnst mér síðast-
nefndi þátturinn: Die Welt der 30er
Jahre bera svolítinn svip af heimstyrj-
aldaþáttum BBC og er svo sem ekki
leiðum að líkjast en í þessum þáttum
bera þjóðveijamir stöðugt saman núið
og heiminn fyrir um það bil hálfri öld.
Sannarlega fróðlegur samanburður og
vafalaust gagnlegur til dæmis við
kennslu í sagnfræði á framhalds- og
háskólastigi. Er óskandi að þessi
þáttaröð rati inní bókasöfn skólanna
við hlið sagnfræðiritanna.
í síðasta þætti Die Welt der 30er
Jahre var sjónvarpsgeislanum beint
að lífínu í Bretlandi á kreppuárunum
og í Sovétríkjunum undir stjóm félaga
Stalíns. Finnst mér satt að segja alltaf
jafn merkilegt að skoða þann ofríkis-
mann er sveigði víðlendasta ríki heims
undir sinn stálvilja. Birtust í þættinum
athyglisverð myndbrot er sýndu rétt-
arhöld gegn rússneskum múnkum er
að sjálf sögðu voru allir drepnir og til
hvers? Arthur Köstler komst þannig
að orði í bókinni: Myrkur um miðjan
dag þá aðalpersónan félagi Rubashov
hafði verið dæmdur til dauða af skó-
sveinum Stalíns fyrir upplognar sakir.
Ég beygi kné mín fyrir landinu,fyrir
almúganum, fyrir þjóðinni allri..." Og
hvað svo? Hvað lá fyrir þessum alm-
úga- og þessari þjóð? I fjörutíu ár
hafði þjóðin verið rekin áfram yfir
eyðimörkina með hótunum og loforð-
um, með ímynduðum ógnum og
ímyndaðri umbun. En hvar var fyrir-
heitna landið?
Á sömu stundu og ógnir Stalíns-
tímans ertu skilningarvitin í Ríkissjón-
varpinu mættust þeir félagi Jón
Baldvin og félagi Svavar í Návígi hjá
Páli Magnússyni á Stöð 2. Tekist var
á um þá mikilsverðu spumingu hver
hneppir það hnoss að sitja í ríkisstjóm
undir forystu Jóns Baldvins. Ekki virt-
ist félagi Svavar hafa mikinn áhuga
á stjómarsetu undir forystu félaga
Jóns sem hann telur rígfastann í sögu-
legu faðmlagi við „viðreisnardraug-
inn“. Félagi Jón Baldvin sakaði hins
vegar félaga Svavar um að vera bund-
inn í báða skó af fortíðardraugum er
hann skilgreindi ekki nánar en virðast
sumir hverjir að minnsta kosti ættaðir
úr ríki félaga Stalíns.
Þunga byrði dragnast þeir félagam-
ir með og þó virtist mér nú félagi Jón
Baldvin öllu léttari á bámnni enda
fljótur að grípa álitleg hugmyndabrot
úr tískuhugmyndastefnum líðandi
stundar. Sannarlega ólatur maður Jón
Baldvin og kann þá list að setja fram
einfalda og auðskilda hugmyndafræði
er ætti að falla allri þjóðinni í geð því
þar er skeytt saman fíjálshyggjuhug-
myndafræði og jafnaðarstefnu þannig
að allir fá nokkuð fyrir sinn snúð hvar
(flokki sem þeir standa nema náttúru-
lega framsóknarmennimir blessaðir.
Félagi Svavar virðist hins vegar hafa
gefíst upp á að sjóða saman hand-
hæga hugmyndafræði er kemst fyrir
í svo sem einni málsgrein og hentar
til að skjóta inn í sjónvarpsrabb enda
máski ekki á allra færi að snúa niður
fortíðardrauga á borð við félaga
Stalín. Það er helst í minni ágætu
heimabyggð þar sem félagi Stalín
hangir sums staðar enn uppá vegg
að menn hafa sigrast á fortíðinni. Og
svo má ekki gleyma þeirri ágætu trillu
Stalínbjörgu er dregur björg í bú.
Væri máski ekki úr vegi fyrir félaga
Svavar að ráða sig sumarlangt á þá
trillu. Spumingin er svo hvort nokkuð
fískaðist ef Jón Baldvin sæti við stý-
rið? Þorskurinn er lttt gefinn fyrir mas.
Ólafur M.
Jóhannesson
Rástvö:
Gesta-
gangur
Ragn-
heiðar
■■■■■ Hjá Ragnheiði
O"! 00 Davíðsdóttur
** verður gesta-
gangur í kvöld, en hún mun
fá Helga Daníelsson, yfír-
lögregluþjón hjá Rann-
sóknarlögreglu Ríkisins, í
heimsókn.
Helgi var um árabil einn
af snjöllustu knattspymu-
mönnum íslendinga og
hefur látið málefni
íslenskrar knattspymu
talsvert til sín taka.
Eflaust mun knattspym-
an verða ofarlega á baugi
í samtali þeirra Ragnheiðar
Helgi Daníelsson, rann-
sóknarlögreglumaður.
og Helga í kvöld. Einnig
verða rædd störf hans hjá
Rannsóknarlögreglunni, en
Helgi hefur einkum fengist
við mál sem tengjst ungl-
ingum.
Stöð tvö:
Frægð og fegurð
23±2
Á læstri dag-
skrá Stöðvar tvö
er bandaríska
kvikmyndin Rich and
Famous, eða „Frægð og
fegurð“, eins og hún nefn-
ist á íslensku.
Aðalhlutverkin í þessari
mynd, sem er bæði fyndin
og einlæg, leika þær stöllur
Jacqueline Bisset og
Candice Bergen. Myndin
lýsir vináttu þeirra í gegn-
um þykkt og þunnt í
tuttugu ár, en báðar fást
þær við ritstörf.
Margt ber til á leiðinni
áfram veginn, frægð,
frami, vonbrigði, ástaræv-
intýri og sorg, en allt er
þetta kryddað með inn-
byrðis samkeppni vin-
kvennanna, bæði á ritvell-
inum og í ástamálum.
Kvikmyndahandbókin
hrósar George Cukor (The
Philadelphia Story) sér-
staklega fyrir frábæra
leikstjóm og gefur mynd-
I inni fjórar stjömur af fímm
mögulegum.
Myndin er 117 mínútna
I löng.
Candice Bergen og Jacqueline Bisset.
UTVARP
FIMMTUDAGUR
27. nóvember
6.46 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin
— Páll Benediktsson,
Þorgrímur Gestsson og
Guömundur Benediktsson.
Fréttir eru sagðar kl. 7.30
og 8.00 og veöurfregnir
kl.8.15. Tilkynningar eru
lesnar kl. 7.25, 7.55 og
8.25.
7.20 Daglegt mál. Guömund-
ur Sæmundsson flytur
þáttinn.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Húsiö á klöppinni"
eftir Hreiðar Stefánsson.
Þórunn Hjartardóttir lýkur
lestrinum (4).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.36 Lesiö úr forystugreinum
dagblaðanna.
9.46 Þingfréttir
10.00 Fréttir
10.10 Veöurfregnir
10.30 Ég man þá tiö
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liönum
árum.
11.00 Fréttir.
/Z
11.03 Kvikmyndasöngleikir.
Annar þáttur: Sögulegt yfirlit
áranna 1967—1975.
Umsjón: Árni Blandon.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.46 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn — Efri árin
Umsjón: Anna G. Magnús-
dóttir og Guðjón S. Brjáns-
son.
14.00 Miödegissagan: „ör-
lagasteinninn" eftir Sigbjörn
Hölmebakk. SigurðurGunn-
arsson les þýöingu sina
(18).
14.30 ( lagasmiðju
Everts Taube.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn
Frá svæðisútvarpi
Reykjavíkur og nágrennis.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið
Stjórnandi: Sigurlaug M.
Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónskáldatími
Leifur Þórarinsson kynnir.
17.40 Torgiö — Menningar-
mál
Meðal efnis er fjölmiðlarabb
sem Bragi Guðmundsson
flytur kl. 18.00. Umsjón:
Óðinn Jónsson.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.40 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Guömundur
Sæmundsson flytur.
19.40 Að utan
Fréttaþáttur um erlend mál-
efni.
20.00 Á leið til Mekka
Þáttur f umsjá Aöalsteins
Bergdal og Lilju Guðrúnar
Þorvaldsdóttur. Gestur
þeirra er Sigríður Hagalín.
21.20 Sumarleyfi í skammdeg-
inu — Holland
Helga Ágústsdóttir segir frá.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Fimmtudagsumræðan
— Sérkennslan í skólakerf-
inu. Stjórnandi: Arnar
Björnsson.
23.20 Kammertónlist
a. Gítarkvartett ( E-dúr op.
2 nr. 2 eftir Joseph Haydn.
Julian Bream og félagar í
Bremona-kvartettinum
leika.
b. Píanókvintett í Es-dúr op.
44 eftir Robert Schumann.
Ronald Turini og Orcford-
kvartettinn leika.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
SJÓNVARP
FOSTUDAGUR
28. nóvember
17.55 Fréttaágrip á táknmáli
18.00 Litlu Prúðuleikararnir
(Muppet Babies). 19. þáttur.
Teiknimyndaflokkur eftir Jim
Henson. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
18.25 Stundin okkar
Endursýndur þáttur frá 23.
nóvemþer.
18.55 Auglýsingar og dagskrá
19.00 Spítalalíf
(M*A*S*H). Níundi þáttur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur sem gerist á neyðar-
sjúkrastöð bandaríska
hersdins í Kóreustriðinu.
Aðalhlutverk Alan Alda.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
19.30 Fréttir og veöur
20.00 Sá gamli
(Der Alte). 24. þáttur.
Þýskur sakamálamynda-
flokkur. Aðalhlutverk Sieg-
fried Lowitz. Þýðandi
Þórhallur Eyþórsson.
21.10 Rokkarnir geta ekki
þagnað
Greifarnir.
21.35 Þingsjá
Umsjónarmaöur Ólafur Sig-
urðsson.
21.50 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
22.20 Á döfinni,
22.35 Seinni fréttir
22.40 A götunni
(Blue Knight)
Bandarísk sjónvarpsmynd
frá 1973 sem hlaut Emmy-
verölaun á sínum tíma.
Höfundur sögunnar er Jos-
eph Wambaugh. Leikstjóri
Robert Butler. Aðalhlutverk:
William Holden og Lee
Remick. Söguhetjan er lög-
reglumaður í Los Angeles.
Hann er orðinn gróinn í
starfi en framinn lætur á sér
standa. Hann hugleiðir því
að hætta, ekki síst eftir að
hann kynnist fallegri konu
og vill festa ráð sitt. Þýð-
andi Reynir Harðarson.
00.20 Dagskrárlok.
STÖDTVÖ
FIMMTUDAGUR
27. nóvember
17.30 Myndrokk
18.30 Teiknimynd
19.00 fþróttir
Umsjón Heimir Karlsson.
20.00 Fréttir
20.30 Bjargvætturinn
(Equalizer).
Bjargvætturinn verður að
velja á milli þess að eyða
ótta Iftillar stúlku eða að fá
greidda gamla skuld.
21.15 Tíska
(Videofashion).
21.40 Eltingarleikur
(CHASE).
Bandarísk kvikmynd frá
CBS-sjónvarpsstöðinni.
Ung stúlka flytur aftur heim
að loknu laganámi. Hún
hyggst nýta sér menntun
sina og þjálfun úr stórborg-
inni, en því er ekki vel tekiö
af öllum. Aöalhlutverk er
leikið af Jennifer O'Neill og
Richard Farnsworth.
23.10 Frægð og fegurð
(Rich and Famous).
Bandarisk kvikmynd frá
1981 með Candice Bergen
og Jacqueline Bisset í aðal-
hlutverkum. Liz og Merry
eru æskuvinkonur. Liz vinn-
ur bókmenntaverölaun á
unga aldri, en þegar Merry
getur gert sér vonir um
sömu verðlaun eftir margar
bækur (og misjafnar) fer að
slást upp á vinskapinn.
00.40 Guðfaðirinn er látinn
(The Don Is Dead).
Bandarísk kvikmynd frá
1973 með Anthony Quinn
f aðalhlutverki. Myndin fjall-
ar um innbyrðis deilur
þriggja mafíufjölskyldna í
stórborg einni í Bandarikjun-
um. Myndin er ekki við
hæfi barna. Endursýnd.
02.15 Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
27. nóvember
9.00 Morgunþáttur i umsjá
Kristjáns Sigurjónssonar og
Sigurðar Þórs Salvarssonar.
Meöal efnis: Barnadagbók
i umsjá Guöriðar Haralds-
dóttur að loknum fréttum
kl. 10.00, tónleikar helgar-
innar, Matarhornið, tvennir
tímar á vinsældalistum og
fjölmiðlarabb.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist i
umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Hingaö og þangað um
dægurheima með Inger
Önnu Aikman.
15.00 Djass og blús
Vernharður Linnet kynnir.
16.00 Tilbrigði
Þáttur i umsjá Hönnu G.
Sigurðardóttur.
17.00 Hitt og þetta
Stjórnandi: Andrea Guð-
mundsdóttir.
18.00 Hlé
20.00 Vinsældalisti rásar tvö
Gunnlaugur Helgason kynn-
ir tíu vinsælustu lög vikunn-
ar.
21.00 Gestagangur
hjá Ragnheiöi Daviðsdóttur.
22.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00 Arja
Þáttur um finnsku söng-
konuna Örju Saijonmaa í
umsjá Sigurðar Skúlasonar.
24.00 Dagskrárlok
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30-18.30 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1
18.00-19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni -
FM 96,5
Má ég spyrja? Umsjón:
Finnur Magnús Gunnlaugs-
son. M.a. er leitaö svara við
spurningum hlustenda og
efnt til markaöar á Markaðs-
torgi svæðisútvarpsins.
r989
FIMMTUDAGUR
27. nóvember
06.00—07.00 Tónlist í morg-
unsárið.
Fréttir kl. 7.00.
07.00—09.00 Á fætur með
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður litur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 8.00 og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur öll uppáhaldslög
hlustenda, gömul og ný.
Tapaö fundið, opin lína,
mataruppskrift og sitthvaö
fleira.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Harðar-
dóttur.
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjast með þvi
sem fielst er í fréttum, sqgja
frá og spjalla við fólk.
Flóamarkaöurinn er á dag
skrá eftir kl. 13.00.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar siðdegispoppiö og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson i Reykjavík
síödegis. Hallgrimur leikur
þægilega tónlist, lítur yfir
fréttirnar og spjallar við fólk
sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—20.00 Tónlist með
léttum takti.
20.00—21.30 Jónina Leós
dóttir á fimmtudegi. Jónína
tekur á móti kaffigestum og
spilar tónlist eftir þeirra
höfði.
21.30—23.00 Spurningaleikur
Bylgjunnar. Bjarni O. Guð-
mundsson stýrir verðlauna
getraun um popptónlist.
23.00—24.00 Vökulok. Frétta-
menn Bylgjunnar með
fréttatengt efni og Ijúfa tón
list.
24.00—01.00 Inn í nóttina
með Bylgjunni. Ljúf tónlist
fyrir svefninn.