Morgunblaðið - 27.11.1986, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
Varahlutir
í vörubíla
Eigum alla varahluti fyrirliggjandi í Scania, Volvo,
Mercedes, Dodge, Bedford og Renault 310. Eigum
einnig varahluti í flestar gerðir Man-vörubíla.
Höfum einnig alla varahluti í vélar, gírkassa, mismuna-
drif, drifsköft, fjaðrir og felgur. Ný og notuð dekk í öllum
stærðum.
Höfum einnig hús á:
Volvo, Scania, Mercedes, Dodge, Bedford, Ford, Ren-
ault 310, Transcontinental og fleiri tegundir. Lokaðir
alúminíum kassar 4—10 metrar að lengd. Höfum kassa
og palla á tveggja og þriggja öxla bíla. Nýir og notaðir
vörubílar til sölu.
STAALING
Sími 0045 6 625300 - 0045 6 638277
Telex: 66 264 Exdyt
m<KVTM(
Helgarferðir
Amsterdam - verðfrá 14.180 kf.
)Rom verðfrá29.220kr.
\ París verðfrá 20,160 kl,
\ Hamborg „ _ ' verðfrá 17.960 kf.
(D Glasgow verðfrá 12.410 k
qj London verðfrá 13.175 kl*.
€ T
<X> Kaupmannahöfn ,. AnA1 verðfrá 16.980 kf.
Verö miöaö við tvo saman í gistingu með morgunveröi
VÖRUSÝNINGAR
----muAJí" KAUPSTEFNUR
VIÐSKIPTAFERÐIR
Umboó a Islandi fyrir
DINERS CLUB
VIÐ SKIPULEGGJUM FERÐIR
HVERT SEM ER í VERÖLDINNI.
INTERNATIONAL
OTKXVnt
FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARHUSINU HALLVEIGARSTIG 1.
SÍMAR 28388 - 28580
Láttu þér vaxa tré
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Halldóra B. Björnsson:
Þyrill vakir. Urval.
Hörpuútg-áfan 1986.
Þyrill vakir er úrval ljóða Hall-
dóru B. Bjömsson. Ljóðin eru öll
úr bókunum Ljóð (1949), Við sanda
(1968) og Jarðljóðum (1968).
Hér er á ferðinni smekklegt úr-
val. Halldóra B. Bjömsson var eitt
dæmi af mörgum um skáld sem
þróaðist frá sveitahagmælsku í það
að verða raunverulegt skáld sem
tók mið af því sem efst var á baugi
í ljóðlist. Þyrill vakir er þróunar-
saga. Aðeins fáein ljóð í fyrri hluta
bókarinnar geta talist meira en at-
hyglisverð, en þegar á bókina líður
fjölgar ljóðum sem ort em af kunn-
áttu og skáldlegum þrótti. A
Þjóðminjasafninu er til dæmis eitt
þeirra, hefðbundið ljóð um „hina
löngu horfnu konu“ sem þrátt fyrir
háttbundið form miðlar hugsun sem
í senn er gömul og ný: „En hver
veit nema finnist þér fávíslegt að
spyrja,/hvað fólst í þínu geði,/því
ég er máske arftaki allra þinna
sorga/og allrar þinna'r gleði?"
Astaljóðin órímuðu, Ef einhver
spyrði, Milli mín og þín, En sum
blóm ilma aðeins við snertingu og
Þessvegna, em vemlega góð ljóð.
Halldóra B. Björnsson
Ljóð sem ég hef alltaf haldið uppá
er Láttu þér vaxa tré. Þetta ljóð
er dálítil hvatning um að taka nú
eftir því sem lífíð hefur upp á að
bjóða, standa vörð um verðmæti
þess, bjartsýnt ljóð og vel ort.
Ljóðin nafnlausu sem Þyrill vakir
endar á em misjöfn, sum góð, önn-
ur síðri. Halldóra var nokkuð háð
gömlum viðhorfum og átti það til
eins og mörg skáld af hennar kyn-
slóð að leggja áherslu á að boða.
Þetta var arfur nítjándu aldar sem
var ekki auðvelt að losna við.
Best er Halldóra B. Bjömsson
þegar hún yrkir hvað einfaldast,
ljóð hennar verða raddir hjartans,
nakin en sterk. Eitt af nafnlausu
ljóðunum er svona:
Móðir
hverfa eins og fræ í jörð
auðmýkjast
týna sjálfri sér
stefna þó að björtu marki
vita sitt hlutverk
risa upp
ný
hrein
sigrandi
laufgað tré
Ljóð Halldóru em mörg hver
lífsjátningar. Þau krefjast þess af
okkur, lesendum hennar, að við
séum vakandi, lifum og fínnum til.
Annað nafnlaust ljóð má kalla til
vitnis um þetta:
Hvort sem það er bátur að koma að
blóm í varpa
ferð á heimsenda
vinur á leið úr fjarska
ljóð í geijun
ólesin bók
landið handan landsins
óskasteinn á lækjarbotni
blik í bamsauga
hlýjar kveðjur sveitafólksins
draumfarir næturinnar
eða hvað annað sem er
aðeins að þú hafir eitthvað að hlakka til
það er nóg
„...eru íslenzkar konur sjálf-
ar búnar að átta sig á að þær
eru jafnar karlmönmim?“
Békmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Svava Þórleifsdóttir, skólastjóri
frá Skinnastað, Guli i lófa fram-
tíðar, minningarrit.
Útg. Samband borgfiskra
kvenna og Hörpuútgáfan 1986.
Þessi bók er gefin út í tilefni af
því, að nýlega em liðin eitt hundrað
ár frá því Svafa Þórleifsdóttir fædd-
ist. Hún var mikill og merkur
frömuður í skóla- og uppeldismálum
á sinni tíð og langt á undan sinni
samtíð, hvað ótal mál snerti er til
framfara horfðu. Hún er kennd við
Skinnastað í Öxarfírði og þar fékkst
hún fyrst við kennslu, eftir að hafa
aflað sér tilskilinna réttinda. Síðar
varð hún skólastjóri og brautryðj-
andi á Bíldudal og síðan í aldarfjórð-
ung á Akranesi. Hún stjómaði þar
einnig kvöldskóla og líkast til ein
fárra kvenna, eða kannski sú eina,
sem hefur verið skólastjóri iðnskóla.
Roskin að aldri flutti hún til
Reykjavíkur og vann þá meðal ann-
ars í Kvenfélagasambandinu og var
í útgáfustjóm Húsfreyjunnar, og lét
aðskiljanleg málefni kvenna til sín
taka.
Svava Þórleifsdóttir
í þessari bók hefur verið safnað
saman ýmsum fróðleik um ævi og
starf Svöfu Þórleifsdóttur. For-
göngu um það hefur haft Samband
borgfirska kvenna en innan þess
sambands starfaði hún mikið, með-
an hún bjó á Akranesi. Minningar-
greinar um Svöfu skrifa Sigurður
Gunnarsson, Frímann Jónasson,
Þorsteinn frá Hamri, Sigríður Áma-
dóttir, Stefán Hjálmarsson, Herdís
Ólafsdóttir og Sigríður Thorlacius.
Þessar greinar em yfirleitt einkar
upplýsandi og fróðlegar og nokkuð
vel samræmdar, þannig að ekki
verður óhóflega mikið af endur-
teknum upplýsingum.
Síðan em birtir ýmsir fmmsamd-
ir kaflar eftir Svöfu, fáeinar
hugnæmar smámyndir, sem hún
hefur væntanlega hugsað sem smá-
sögur. Snoturlega gerðar.
Persónulega fannst mér mestur
akkur í erindum og greinum, sem
Svafa skrifaði um skóla- og uppeld-
ismál. Allar þær bera vitni miklum
skilningi og þekkingu á efninu og
ekki síður góðum og starfssömum
huga. Nefna má hugvekju hennar
um samstarf heimila og skóla,
vemdun tungunnar og kafli sem
kallaður er bömin og samferðafólk-
ið.
Að endingu em svo þýðingar á
smásögum eða þáttum eftir nokkra
skandinaviska höfunda, svo sem
Selmu Úagerlöf.
Þessi bók er kannski ekki beinlín-
is spennandi aflestrar, en hún er
læsileg og góð og stórfróðleg. Og
segir athyglisverða sögu af stór-
brotinni konu, sem vann mikið verk
á sviði skólamála og barðist ótrauð
fyrir bættri stöðu kvenna. Kvenna-
baráttan var sem sé hreint ekki
fundin upp af okkar kynslóð, þótt
við virðumst halda það margar.
H ™ h U SI ð; Kópavogi
Opið 10—19 virka daga,
laugardaga 10—16