Morgunblaðið - 27.11.1986, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
Hvað er í kassanum?
Þegar félagar hittast vantar
oft leiki til að fara í. Hérna er
ein hugroynd.
í þessum leik notið þið stóran
pappakassa. Á botn kassans gerið
þið gat, sem ekki má vera stærra
en svo að rétt aðeins sé hægt að
smeygja hendinni inn í.
Þegar leikurinn byijar hefur
einn úr hópnum verið sendur
fram. Á meðan fínna hinir nokkra
hluti sem lagðir eru í kassann
(athugið að setja ekki of marga
hluti í einu).
Sá sem fór fram er nú kallaður
inn og má setja hendina í gatið á
kassanum. Með því að koma við
hlutina á hann að reyna að fínna
út og segja hvaða hlutir eru faldir
í kassanum.
Varið ykkur á að nota odd-
hvassa og beitta hluti. Annars eru
lítil takmörk fyrir því hvaða hluti
er hægt að setja í kassann. Þið
getið t.d. notað skó, bolla, kart-
öflu, hárbursta, hanska, lítinn bíl
o.fl. ofl.
Góða skemmtun.
Vissir þú
Fyrir aldamótin ákváðu þeir í Englandi að hámarkshraði
bíla mætti ekki vera meiri en 7 km á klukkustund. Til þess
að tryggja að ekki yrðu slys á fólki var maður látinn ganga
á undan bílnum með rauðan fána.
Hvaðan komu bréfin?
Síðast fékk barnasíðan bréf frá átta stöðum. Nú eru bréfin
frá fimm stöðum. Getið þið fundið út frá hvaða stöðum
bréfin eru? Stöfunum hefur verið ruglað. Reynið að raða
þeim saman og sendið svörin til barnasíðunnar.
Kökurnar hennar Gerðu
Gerða ci sniðug og skemmti-
leg stelpa. Henni finnst hún geta
margt. Hérna er skemmtilegt
kvæði um hana Gerðu eftir
Valdimar V. Snævarr.
Hún Gerða þóttist kunn’að baka kökur;
ég kveða vil um bakstur hennar stökur. —
Hjá mömmu sinni mjólk hún fékk og hveiti
og makaði svo stóra plötu’í feiti.
Svo hrærði’hún deig og hnoðaði það lengi
og hreykin var og sagði’að vel sér gengi.
svo breiddi’hún út og bjó til kökur smáar, -
já, bömin góð, þær voru ekki fáar.
Hún raðar þeim á plötuna með prýði
og puntar þær með mauki úr eplahýði,
Myndagáta
17
Svarið við Myndagátu 16 var
yddari. Ekki höfðu allir rétt svar
við henni en úr réttum svörum
drógum við nöfn írisar og Daní-
els Tosti úr Engjaselinu í
Reykjavík.
Nú fáum við Myndagátu 17.
Hún er ekki mjög erfíð, en horf-
ið samt vel á hana áður en þið
svarið svo þið séuð alveg viss
um hvað er á myndinni.
Svörin sendið þið svo til
Bamasíðunnar. Heimilisfangið
er
Bamasíðan
Morgunblaðinu,
Aðalstræti 6,
101 Reykjavik.
En mamma æ á umgenpina lítur.
Nú eldhúsbakkur, sem var mjallahvítur
var málaður úr mauki’og plöntufeiti
og makaður úr sírópi og hveiti.
En Gerða úti lék sér nokkuð lengi
við litla bróður sinn og fleiri drengi.
Er inn hún kom, að ofninum hún stekkur,
en undrandi til baka strax hún hrekkur.
„Nei, mamma, - þær eru allar eins
og klessa, -
og allar hvítar, — nú er ég bara hlessa!"
En mamma segir „Var það svona vina?
Þú ferður að læra betur aðferðina!"
Þið, litlu stúlkur, mömmu trúa megið:
Hún mamma setur ger í kökudeigið,
og þær sem baka, allar ættu að vita:
á ofninn má ei gleyma að setja hita!“
Já, þannig fór fyrir henni Gerðu.
Nú læra allir krakkar eitthvað í
matreiðslu, ekki bara Gerður og
Gunnur heldur líka Gíslar og
Guðjónar!
Kannski fáið þið að taka þátt í
jólabakstrinum sem byijar e.t.v. í
næstu viku!
og allt saman hún inn í ofninn setur — f
og út svo hleypur, fljótast sem hún getur.
En mamma kallan „Vantar ekkert vina?“
„Nei, - vita máttu: ég kann aðferðina.
Eg fer nú út, - þær hljóta bara’að bakast.“
Þá brosti mamma: „Skyldi það nú takast?“
J V
Gangbrautarmerki
Rauði karlinn
Græni karlinn
Guðjón og
Gunnhildur
Guðjón fann út að hann ætti
að nota gangbrautir til að fara
yfír götur, samt ætlar hann að
muna að gá vel að bílum áður en
hann fer yfír. Gunnhildur og Guð-
jón höfðu fundið út að það voru
allskonar merki sem notuð voru
í umferðinni og fannst þeim gam-
an að fylgjast með og læra að
þekkja merkin. Gangbrautar-
merkin voru tvennskonar, bæði
viðvörunarmerki sem erþríhym-
ingur og leiðbeiningarmerki sem
er femingur.
Nú hafa þau Gunnhildur og
Guðjón líka lært að nota gang-
brautarljós. Ef þau vilja fara yfír
götuna hjá ljósunum eiga þau að
ýta á ákveðinn takka og bíða síðan
þangað til rauði karlinn fer og
grænn karl kemur í staðinn. Þá
fyrst mega þau ganga yfir. En
þau urðu að læra að líta samt sem
áður til beggja hliða til að vera
alveg örugg! Sumir bílstjórar
stoppa ekki alveg strax við göngu-
ljós!!
^ -O *