Morgunblaðið - 27.11.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
27
Ágreiningiir um túlkun yfirlýsingar ríkisstj órnarinnar frá 1983:
Eru lán Húsnæðisstofnunar
250—400 milljónum of há?
UMRÆÐUR og ágreiningur um túlkun ákvörðunar rikisstjórnar ís-
lands frá þvi í ágúst 1983 hefur að undanförnu komið upp á
yfirborðið i fjölmiðlum. Deilt er um hvort ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar um 3% lækkun lánskjaravísitölunnar í september 1983 hafira.
Hjá þeim kom fram að lánskjaravísitalan myndi hækka um 8,1%
þann 1. september. Mikill vilji hefði verið fyrir því innan ríkisstjórn-
arinnar að lækka fjármagnskostnað og taka upp nýjan grundvöll
til útreiknings lánskjaravisitölu þá þegar, en frá því hafi verið horf-
ið af lögfræðilegum ástæðum fyrst og fremst. Þeir sögðu að nýja
lánskjaravisitalan tæki gildi 1. október en ríkisstjórnin hefði þó
ákveðið að ganga til móts við húsbyggjendur og námsmenn með
þeim hætti að nýja lánskjaravísitalan gilti strax gagnvart þeim og
yrði því 5,1% í stað 8,1% i september. Jafnframt myndi ríkissljómin
beina þeim tilmælum til lífeyrissjóða að þeir hefðu sama hátt á
húsnæðislánum sínum.
Félagsmálaráðherra tilkynnti
stjóm Húsnæðisstofnunar ríkisins
um þessa hækkun á eftirfarandi
hátt: „Félagsmálaráðuneytið til-
kynnir hér með stjóm Húsnæðis-
stofnunar ríkisins, að þrátt fyrir
ákvörðun og tilkynningu um að
lánskjaravísitala fyrir september-
mánuð 1983 skuli hækka um 8,1%,
hefur ríkisstjómin ákveðið að til-
svarandi álag á lán, veitt úr
Byggingasjóði ríkisins, skuli aðeins
nema 5,1% fyrir september 1983.
Menntamálaráðherra sendi hlið-
stætt bréf til Lánasjóðs íslenskra
námsmanna og tilmæli svipaðs eðlis
vom send til lífeyrissjóðanna.
Eftir einhverjar bréfaskriftir við
félagsmálaráðuneytið ákvað Hús-
næðisstofnun að lækka afborgun
þess eina láns við stofnunina sem
var með gjalddaga í septembermán-
uði 1983. Var það svokallað
framkvæmdalán vegna ijölbýlis-
húss sem byggt var í nafni Bygg-
ingasamvinnufélags Reykjavíkur að
Neðstaleiti 6—8. Lánasjóður
íslenskra námsmanna mun hafa
óskað skýringa menntamálaráðu-
neytisins en aldrei fengið svar og
ekkert gert frekar í málinu. Þá
hefur enginn lífeyrissjóður lækkað
húsnæðislán sín, samkvæmt því
sem Morgunblaðið kemst næst.
Jóhann Einvarðsson aðstoðar-
maður félagsmálaráðherra sagði í
samtali við Morgunblaðið að þessi
ákvörðun hafi einungis gilt fyrir þau
lán sem komu til greiðslu í septemb-
er 1983. Vísaði hann á Húsnæðis-
stofnun ríkisins um nánari útfærslu
á málinu. Sigurður E. Guðmunds-
son framkvæmdastjóri Húsnæðis-
stofnunar ríkisins sagði að
Húsnæðisstofnun hefði framkvæmt
ákvörðun ríkisstjómarinnar ná-
kvæmlega á þann hátt sem til hefði
verið ætlast. Breyting hefði verið
gerð á því eina láni sem á gjald-
daga hefði verið í september, en
það var framkvæmdalán vegna 17
íbúða fjölbýlishúss. „Þetta var búið
mál af okkar hálfu og hefur því
ekkert verið skoðað síðan. Nú hefur
aftur á móti komið upp sú skoðun
að ríkisstjómin hafi verið að taka
ákvörðun um nýja lánskjaravísitölu
sem áfram ætti að standa. Ég lít
svo á að okkar skilningur hafi verið
réttur enda framkvæmdum við
málið í fullu samráði við félags-
málaráðuneytið," sagði Sigurður.
Bjami Bragi Jónsson aðstoðar-
bankastjóri Seðlabanka íslands
telur að í samþykkt ríkisstjómar-
innar hafi ótvírætt falist ákvörðun
um nýja lánskjaravísitölu gagnvart
verðtryggðum lánum Húsnæðis-
stofnunar og námslánum og þar
með stofni lánanna frá þeim tíma
að telja. „Með tilliti til aðdraganda
yfirlýsingarinnar og aðstæðum þeg-
ar hún var kynnt er ekki hægt að
skilja hana öðm vísi en þessi
ákvörðun ætti að koma öllum til
góða. Hann sagði að leitað hefði
verið álits Seðlabankans á þessu
máli og hefði umsögn bankans ve-
rið á þennan veg. Húsnæðisstofnun
hefði hins vegar ekkert gert með
það og hefðu lán Húsnæðisstofnun-
ar ekki breyst í samræmi við yfirlýs-
ingu ríkisstjómarinnar á sínum
tíma.
Stefán Ingólfsson deildarstjóri
hjá Fasteignamati ríkisins áætlar
að höfuðstóll verðtryggðra lána
Húsnæðisstofnunar ríkisins sé
250—400 milljónum hærri í dag en
hann væri ef lækkun lánskjaravísi-
tölunnar um 3% í september 1983
hefði verið látin gilda til frambúðar.
PRÓFKJÖR
ÁSIU Ragnheði
í Annað Sætið
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir er
landsþekkt fyrir farsœl
störf að fjölmiðlun og
ferðamólum.
Fylkjum okkur um Ástu
Ragnheiði í 2. sœti í
prófkjöri Framsóknar-
manna í Reykjavík
29.-30. nóvember.
Stuðningsmenn.
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
OTRULEGA
LÁGT VERE>
kr. 17.800 staðgreiðsla
Afborgunarskilmálar
TVEGGJA DYRA
KÆLI- OG FRYSTISKAPAR
Samt. stærö: 275 I.
Frystihólf: 45 I.
Hæö: 145 sm. Breidd 57 sm.
Dýpt: 60 sm.
Vinstri eöa hægri opnun
Fullkomin viögeröa-
og varahlutaþjónusta.
VISA
Heimilis- og raftækjadeiid.
HEKIAHF
LAUGAVEG1170-172 SlMI: 695550
EINSTÖK
ln*fi4»]ÉÉ
B R Æ Ð U R N l_R
ORMSSONHF
Lagmúli 9 ISI 8760 128 Reykjavík, Isiand