Morgunblaðið - 27.11.1986, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
Jónas Ingimundarson og Krístinn Sigmundsson með nýju plötuna
sem nefnist Ljóðaperlur.
Hljómplata með
Kristni og Jónasi
LJÓÐAPERLUR nefnist ný
hljómplata með söng Kristins
Sigmundssonar og píanóleik Jón-
asar Ingimundarsonar,. sem
bókaútgáfan Örn og Örlygur
hefur gefið út í tilefni tuttugu
ára afmælis síns.
Þetta er þriðja platan með söng
Kristins sem bókaútgáfan sendir frá
sér og að ósk útgefanda voru valin
lög til flutnings eftir þijú íslensk
ljóðskáld, þá Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi, Halldór Laxness og
Hannes Hafstein. Lögin við Ijóðin
eru eftir Markús Kristjánsson, Pál
ísólfsson, Karl Ó. Runólfsson, Sig-
valda Kaldalóns, Jón Ásgeirsson,
Jakob Hallgrímsson, Gunnar Reynir
Sveinsson, Þórarinn Guðmundsson,
Áma Thorsteinsson og Sveinbjöm
Sveinbjömsson.
Ljóð Davíðs Stefánssonar eru:
Minning, Hrosshár í strengjum,
Vögguvísa, Litla kvæðið um litlu
hjónin, Allar vildu meyjamar eiga
hann, Nirfíllinn, Hirðinginn,
Mamma ætlar að sofna og Hamra-
borgin.
Ljóð Halldórs Laxness em: Maí-
stjaman, Hjá lyngri móðu, Vorvísa,
Bráðum kemur betri tíð, Ég er brott
frá þér bemska og Vor hinsti dagur
er hniginn.
Ljóð Hannesar Hafsteins eru:
Áfram, Valagilsá og Sprettur.
Ljóðaperlumar voru hljóðritaðar
í Hlégarði sl. sumar. Upptöku ann-
aðist Halldór Víkingsson. Skurður
var unnin hjá Tape One en pressun
hjá Alfa. Umslag vann Sigurþór
Jakobsson en ljósmyndatöku Guð-
mundur Ingólfsson.
Ljóðaperlur er einnig fáanleg á
snældu.
Michael Voslensky ræðir um
leiðtogafundinn í Reykjavik
DR. MICHAEL S. Voslensky,
prófessor í MUnchen, flytur
erindi á ensku og svarar fyrir-
spurnum á hádegisfundi, sem
Samtök um vestræna samvinnu
(SVS) og Varðberg halda sam-
eiginlega í Átthagasalnum í
Hótel Sögu laugardaginn 29.
nóvember. Salarkynni verða
opnuð klukkan tólf. Fundurinn
er aðeins opinn félagsmönnum
og gestum þeirra.
Umræðuefni dr. Voslenskys er:
Leiðtogafundurinn í Reykjavík.
1. Hver vom hin raunverulegu
ágreiningsefni?
2. Hin tvö kerfí: Hið opna, banda-
ríska þjóðfélag og hið lokaða,
sovéska þjóðfélag. Er hægt að
bera þau saman? Sé svo, þá hvem-
ig?
Dr. phil. Arnór Hannibalsson, dós-
ent við Háskóla Islands, kynnir
ræðumann í upphafí fundar.
Voslensky er höfundur hinnar
Michael Voslensky.
heimsfrægu bókar um herrastétt-
ina í Sovétríkjunum, „Nómenklat-
úra“, og er nú forstöðumaður
Sovétrannsóknastofnunarinnar í
Miinchen, en áður var hann m.a.
Arnór Hannibalsson.
framkvæmdastjóri Afvopnunar-
máladeildar Sovézku vísinda-
akademíunnar og starfsmaður
Heimsfriðarráðsins.
(Fréttatilkynning).
Hafralækjarskóli í Aðaldal:
Verður kennsla felld
niður á mánudaginn?
- bílstjórar fá ekki greidd laun
15. bindi af „Aldnir hafa orðið“
FIMMTÁNDA bindið af „Aldnir
hafa orðið“ eftir Erling Davíðsson
er komið út hjá Skjaldborg hf. á
Akureyri.
Þau sem frásagnir eiga í þessu bindi
em Elín Stefánsdóttir húsfreyja og
Ijósmóðir að Miðfelli í Hreppum,
Finnlaugur Pétur Snorrason frá
Syðri-Bægisá í Öxnadal, Helga
Gunnarsdóttir verkakona á Akureyri,
Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur í
Reykjavík, Jóhann Ámason í
Rammagerðinni á Akureyri, Sigurður
Elíasson iðnrekandi í Kópavogi og
Þórarinn Vigfússon skipstjóri á
Húsavík.
Með þessum 15 bókum em sögu-
menn Erlings orðnir 105 talsins og
segir í fréttatilkynningu frá Skjald-
borg að auk þess að vera skemmtileg-
ar aflestrar em merkar heimildir um
ættfræði, atvinnusögu, þjóðhætti,
sagnfræði og margt fleira í bókunum.
BÍLSTJÓRAR, sem sjá um að aka
nemendum til og frá Hafralækj-
arskóla í Aðaldal hafa ákveðið
að leggja niður störf ef þeir fá
ekki greidd laun sem þeir eiga
inni. Sigmar Ólafsson skólastjóri
segir að ákvörðun verði tekin á
'næstunni um hvort skólahald
verði þá fellt niður.
í Hafralækjarskóla em 108 nem-
endur á aldrinum 7-15 ára og
Ný unglingabók
eftir Andk és Indriðason
stærsta hluta þeirra er ekið daglega
í skólann, en um 25 em í heimavist
eða búa í næsta nágrenni. „Skólan-
um, sem og öðmm skólum í kjör-
dæminu hefur ekki borist
endurgreiðsla frá rikinu á akstur-
kostnaði" sagði Sigmar „bílstjórar
hafa ekki fengið greitt fyrir októb-
ermánuð og em því ekki tilbúnir
að halda akstrinum áfram.“
Bílstjóramir, sem em að sögn
Sigmars 5 talsins, hafa sent frá sér
svohljóðandi bréf: „Við undirritaðir
skólabílstjórar við Hafralækjar-
skóla sjáum okkur tilneydda til að
stöðva akstur skólabama frá og
með 29. nóvember n.k. vegna þess
að greiðslur hafa enn ekki borist
fyrir oktobermánuð. Þar sem það
er orðin regla en ekki undantekning
að greiðsla kemur ekki á umsömd-
um tíma er ljóst að eitthvað róttækt
verður að gera í þessu máli.“
Sigmar fékk bréfíð í hendurnar
og segist hafa boðsent það til
fræðslustjóra umdæmisins. Hann
sagði að sveitaryfirvöld hefðu af-
tekið að leysa þessi mál, bankalán
hefðu verið slegin fyrir launa-
greiðslum mars og apríl þar sem
greiðslur bámst ekki, og enginn
vilji væri til að slá lán í þriðja sinn.
Erlingur Davíðsson.
ÚT ER komin hjá Máli og menn-
ingu unglingabókin Enga stæla!
eftir Andrés Indriðason. Þetta er
sjálfstætt framhald af bók Andrés-
ar Bara stælar! sem kom út í
fyrrahaust.
í frétt frá Máli og menningu
segir:
„Enga stælaígerist í unglinga-
vinnunni sumarið eftir 8. bekk. Þar
púla þau í sólskininu Jón Agnar, Lilli
himnastigi og Ragnhildur (þessi sem
slagar hátt upp í Ungfrú heim). Jón
Agnar og Ragnhildur fá það verkefni
að mála yfír ósóma sem Lilli hefur
skrifað á skólavegginn meðan verk-
stjórinn var að horfa á annað, og þá
verða þau af tilviljun vitni að því að
brotist er inn í skólann þeirra. I kjöl-
farið fylgir æsispennandi eltingaleik-
ur sem þó verður stundum
gráthlægilegur, því krakkamir eiga
ekki eingöngu í höggi við þjófa held-
ur leynifélagið Svörtu hauskúpuna
líka.“
Enga stæla er 140 bls., unnin að
öllu leyti í Prentsmiðjunni Odda hf.
Brian Pilkington gerði kápumynd.
Framsóknarflokkurinn í Norðurlandi vestra:
Páll í 1. sætið o g
Stefán í 2. sætið
Andrés Indriðason
PRÓFKJÖR framsóknarflokks-
ins í Norðurlandi vestra fór fram
sl. sunnudag og tóku 2.408 þátt.
Kosningarétt höfðu 17 ára og
eldri, búsettir í kjördæminu.
Frambjóðendur voru fimm og
kosið var bindandi kosningu í
þijú efstu sætin.
Páll Pétursson, alþingismaður,
varð í fyrsta sæti. Hann hlaut 1.132
atkvæði í fyrsta sætið og 502 í
annað sætið, alls 1.332,8 stig, en
vægi atkvæða í annað sætið gilda
40% miðað við fullt vægi fyrsta
sætis. Stefán Guðmundsson, al-
þingismaður, hlaut 987 atkvæði í
fyrsta sætið og 344 í annað sætið,
alls 1.124,6 stig. í þriðja sæti varð
Sverrir Sveinsson, Siglufirði. Hann
hlaut 121 atkvæði í fyrsta sætið
og 486 atkvæði í annað sætið, en
þar sem hann hlaut ekki 40% af
heildarþátttöku fékk hann ekki
annað sætið metið upp til bindandi
kjörs. Elín R. Líndal, Lækjarmóti í
Vestur-Húnavatnssýslu, fékk 114
stig alls og Guðrún Hjörleifsdóttir,
Siglufirði, 16 stig.
wEA/ny
TURBO PC 640K
Wendy PC, 640K RAM,
70% braðvirkari.
Klukkutíðní skiptanleg 4.77 og 8MHz
Tvö diskadrif 360K hvort
Prentaratengi og samskiptatengi,
Ijóspennatengi (parallel og serial tengi)
Rauntímaklukka á korti
100 hnappa JME lyklaborð
Gulur eða grænn TTL skjár að vali
Hercules samhæft skjákort,
(720 x 348 punktar)
Dos 3.1 stýrikerfi
Ritvís ritvinnsluforrit/Editor
m mzm
Verð aðeins
kr. 54.457.-
Greiðslukjör.
WENDY TURBO PC, IBM PC samhæfð tölva á frábæru verði
Fyrir IBM PC
samhæfðar tölvur
er nú til eitt mesta
forritasafn f heimi,
fyrir smærri
atvinnurekstur,
nám, ritvinnslu,
tengingu við
jaðartæki og fl.
Skiphotti 9 s: 24255 & 622455