Morgunblaðið - 27.11.1986, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
Metsölublað á hverjum degi!
Áhrif B vítamínskorts eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson
Tegundir Bvítamína Einkenni á taugakerf i við skort á B vítamínum
Þíamín (B,) Kjarkleysi, þunglyndi, taugalömun
Ribóflavín (B?) Þunglyndi, skynvilla, vitfirring
Níasín Þunglyndi, skynvilla, vitfirring
Pantóbensvra Svefnleysi, persónuleikabreytingar
B6 vítamín Sinnuleysi, þunglyndí, svefnleysi
Fólasín Þunglyndi, rugl, minnistap
B12vítamín Sinnuleysi, mænu- og taugarýrnun, dauði
Bíotín Þunglyndi, sinnuleysi, svefnleysi
Eins og sjá má getur B-vítamínskortur valdiö ótrúleg-
ustu einkennum á taugakerfi. Sem betur fer er alvar-
leg B-vítamínvöntun úrsögunni á íslandi. En vægur
skortur er sennilega algengur. Úr mjólkurmat fáum við
milli þriðjungs og sjöttungs af mikilvægustu B-víta-
mínunum. Auk þess hefur kalkið, og fleiri steinefni
áhrif á taugakerfið. Og hvaðan fáum við 70%
kalksins? Gettu!
Helgi Hólm fyrrverandi landsliösmaöur og þjálfari ífrjálsum íþróttum:
’Það þarf sterkar
tauöar í startíð.
Drekktu mjólk!"*
Viðbúnir.tilbúnir.bang! (viðbragðsstöðu fyrir hlaup er hvertaug þanin til hins ítrasta. Par ræður
styrkur, jafnvægi og öryggi úrslitum. Helgi Hólm íþróttakennari og þjálfari veit lengra nefi sínu um
taugamar í startinu - og hvemig mjólk getur aukið andlegt og líkamlegt þrek.
Það þarf sterkar taugar í fleira en íþróttir. Yfirvegun og andleg vellíðan skiptir alla máli og rannsóknir
sýna að mataræði hefur ævinlega mikil áhrif á skaphöfn og geð. Aö minnsta kosti 20 bætiefni, - vítamín,
steinefni og aminósýrur - hafa margslungin áhrif á andlega líðan og skortur á þessum efnum bitnar oft
fyrst á taugakerfinu.
Mjólk er ein besta uppspretta bætiefna í daglegu fæði okkar. Úr mjólkurmat fáum við á milli
þriðjungs og sjöttungs af mikilvægustu B-vítamínum auk kalks og steinefna sem hafa mikil áhrif á
taugakerfið. Þess vegna er mjólk góð fyrir svefninn - og á morgnana - og um miðjan daginn!
I-'-
MJÓLKURDAGSNEFND
Aðalsteinn Bernharðsson, margfaldur
íslandsmeistari og landsliðsmaður í
frjálsum íþróttum, drekkur mikið af
mjólk. Þannig styrkir hann taugar og
bein og rennir styrkum stoðum undir
afrek sín á hlaupabrautinni.
Inga Rún
Vigfús-
dóttír
- Kveðjuorð
Fædd 26. september 1935
Dáin 3. nóvember 1986
3. nóvember síðastliðinn andaðist
á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum Inga
Rún Vigfúsdóttir. Banamein hennar
var krabbamein. Inga Rún er fyrst
úr hópi stúdenta MA 1958 að deyja
á sóttarsæng.
Inga verður bekkjarsystkinum
sínum minnisstæð fyrir margra
hluta sakir. Hún var tveimur árum
eldri en flestir í bekknum, — hafði
ferðast erlendis og unnið á skrif-
stofu. Þegar hún kom nítján ára inn
í hóp sextán ára bekkjarsystkina
þá fann hún til aldurs síns og sár-
móðgaði meðal annars bekkjarfé-
laga sína með því að segja að þeir
væru „krakkar á tyggigúmmístig-
inu“. Annars gleymdist þessi
aldursmunur fljótt, hún var svo
glaðlynd og starfssöm, og það sóp-
aði að þessari smávöxnu stúlku
hvar sem hún fór. Inga vakti líka
eftirtekt útlitsins vegna. Hún var
lítil og grönn, létt á sér og stælt
með geysimikið, rauðbrúnt, þykkt
hár, sem hún tók saman í tagl.
Þeir voru ófáir piltamir sem féllu
í þá freistni að grípa í þetta fallega
hár.
Inga var listræn, atorkusöm og
hugmyndarík í besta lagi og til
dæmis ætíð valin í hópa sem áttu
að sjá um skreytingar fyrir
skemmtanir og þess háttar. Hugur
hennar stóð líka til náms í listum.
Þannig fór að Inga Rún giftist úr
landi og settist að í Bandaríkjunum.
Þar lætur hún nú eftir sig eigin-
mann, John Garcia, og fjögur böm
á aldrinum 9—26 ára.
Síðast fengum við bekkjarfélag-
amir að sjá Ingu 1983 þegar hún
kom til Islands með eiginmanni
sínum og kom í hóp 25 ára stúd-
enta þegar þeir héldu hátíð í tilefni
afmælisins. Þá var hún enn eins
grönn og stælt og á menntaskólaár-
unum og sama skemmtilega stelp-
an.
Það er alltaf tómarúm eftir þegar
góðir vinir flytja úr landi og auðvit-
að enn tilfinnanlegra þegar fréttin
berst að vinurinn sem fór komi
ekki oftar í heimsókn. Meira er þó
misst fyrir nánustu ástvini.
Við vottum fjölskyldu og að-
standendum Ingu Rúnar í Banda-
ríkjunum og hér heima samúð
okkar.
Aðalsteinn Davíðsson
Höfðar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!