Morgunblaðið - 27.11.1986, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
45
Magnús Einars-
son — Minning
Fæddur 13. marz 1906
Dáinn 19. nóvember 1986
Við lát Magnúsar Einarssonar
riQast upp minningar bemskuára
minna, sem hann átti þátt í að gera
litrík og skemmtileg. Við áttum
heima í sama húsi á Hverfísgötu
102 A þar til ég var 7 ára, og var
ég þá heimagangur hjá þeim Magga
og Fanneyju, heimili þeirra var mér
sem annað heimili.
Maggi var sérstaklega bamgóður
og hafði einstaka hæfíleika til að
lifa sig inn í barnshugann. Sérstak-
lega minnist ég jólanna og áramót-
anna á heimili þeirra. Maggi gekk
með okkur kringum jólatréð og
söng með okkur, og á gamlárskvöld
var hann með okkur úti í glugga
að horfa á flugeldana, og líkti eftir
þeim með tilheyrandi hljóðum og
hreyfingum svo allt fékk á sig sér-
stakan ævintýraljóma. Sú tilfinning
sem þessu fylgdi gleymist aldrei og
líða aldrei áramót án þess að ég
hugsi til þessa tíma, og er eins og
ég finni ilminn af jólasmákökum
og heitu súkkulaði hjá Fanneyju
frænku.
Þær vom líka ófáar ferðimar,
sem þau tóku mig með í gamla jepp-
anum upp í sumarbústað, og kunni
ég vel að meta að fá_ að vera þar
með dætmm þeirra, Osk, Jónu og
Þóm, sem vom mér sem eldri syst-
ur.
Alltaf hefur verið gott að koma
til Fanneyjar og Magga, og þegar
ég fór að koma þangað með mín
eigin böm hrifust þau af leik og
glettni Magga, því alltaf var hann
óþreytandi að skemmta krökkun-
um.
Með þakklæti og virðingu
minnist ég hans.
Góður Guð styrki Fanneyju
frænku mína og ástvini þeirra.
Jóna Andrésdóttir
HJOLBARÐA
HEKLA HF
Laugavegi 170-172 Simi 28080 695500
------------ak s
GOODYEAR
ULTRAGRIP2^^H
VEITIR FULLKOMIÐ
ÖRYGGI í
VETRARAKSTRI
Goodyear vetrardekk
eru gerð úr sérstakri
gúmmíblöndu og með
munstri sem gefur
dekkinu mjög gott
veggrip. Goodyear
vetrardekk eru hljóðlát
og endingargóð.
\
TROMPIÐ ER
TRYGGING
iMé
w
Það er góð trygging í TROMP reikningnum, hann
er verðtryggður, óbundinn og hefur auk þess
grunnvexti. Þú getur alltaf lagt inn, alltaf tekið
út. Vextir eru lagðir við höfuðstól 2var á ári.
Treystu TROMP reikningnum, hann er góð
trygging. TROMP reikningurinn er einungis
í Sparisjóðnum.
\
* SPARISJÓÐIRNIR