Morgunblaðið - 27.11.1986, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
49
MUNIÐ KAFFIHORNIÐ
Við bjóðum foreldrunum
kaffi og börnunum djús.
Opið mánud.-föstud.
kl. 10-1830
laugard. kl. 10-16
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 108 Reykjavík. Sími 686650.
lífshátta.
3. Fundur í félagi áfengisvarna-
nefnda í Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýslu beinir þeirri áskorun til
einstaklinga, félagasamtaka, fyr-
irtækja, veitingahúsa og opinberra
aðila, að leggja sérstaka áherslu
á veitingar óáfengra drykkja í
samkvæmum sínum.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
Aðalfundur félags áfengisvarnarnefnda
í Snæfellsness og Hnappadalssýslu
Stykkishólmi.
AÐALFUNDUR áfengisvarna-
nefnda í Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu fyrir árið
1986 var haldinn í hótel Stykk-
ishólmi laugardaginn 22.
nóvember sl.
Á fundi þessum mætti Árni Ein-
arsson starfsmaður áfengisvarn-
arráðs og flutti erindi um þróun
áfengismála í landinu á síðastliðn-
um árum, hvað áunnist hefði og
eins að hvetju væri mest nauðsyn
að keppa.
I máli hans kom fram að nefnd
sú sem undanfarin ár hefír unnið
að tillögum um opinbera stefnu-
mörkun í áfengismálum, er að
ljúka störfum, og mun senn skila
sínum tillögum til ríkisstjómarinn-
ar.
Mikil vinna liggur að baki þess-
um tillögum og margir hafa unnið
að þeim og er meðal annars kom-
ið inn á meðferðarmál, forvamar-
starf og innflutning og tilbúning
áfengis svo eitthvað sé nefnt.
Ámi sagði að nú væri undir
Alþingi og ríkisstjóm komið hver
framvinda þessa máls verður.
Miklar umraeður voru um vanda
þann sem landi og þjóð stendur
af áfengisneyslu landsmanna og
hvemig mætti vetja þjóðina áföll-
um. Það kom fram í tali manna
að þrátt fyrir að vandinn sé vax-
andi venga notkunar ólöglegra
fíkniefna, þá sé vandinn vegna
áfengisneyslu ennþá alvarlegri.
Daginn fyrir fundinn hélt Ámi
fræðslufund með kennurum
Gmnnskólans og nemendum 7.,
8. og 9. bekkja.
Lýsti Ámi því yftr að sá fundur
hefði verið mjög jákvæður og
væri viss um að hann væri upphaf
að einhvetju meira. Þá fór fram
stjómarkjör og vom kosnir í aðal-
stjóm Guðmundur Karl Ágústsson
sóknarprestur í Ólafsvík, formað-
ur, Ámi Helgason Stykkishólmi,
ritari, Stefán Jóhann Sigurðsson
Ólafsvík, meðstjómandi.
Arni
Tillögur:
Félag áfengisvamanefnda í
Snæfellsness- og Hnappadalssýslu
hvetur Alþingi og ríkisstjóm til
að taka til umijöllunar álit nefndar
um mörkun opinberrar stefnu í
áfengismálum. Fundurinn telur að
þessu máli verði að hraða ef ta-
kast á að draga úr neyslu áfengis,
skv. tilmælum heilbrigðisstofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna.
2. Fundur í félagi áfengisvama-
nefnda í Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýslu hvetur ijölmiðla til að
vanda umflöllun sína um ávana-
og fíkniefnamál og veita sem
traustastar og málefnalegastar
upplýsingar. Með tökum sínum á
þessum málaflokki fá fjölmiðlar
miklu um það ráðið hver árangur
verður í baráttunni móti neyslu
skaðlegra efna og væntir nefndin
að fjölmiðlar skilji sína miklu
ábyrgð á mótun heilbrigðra
4. Fundur í félagi áfengisvama-
nefnda í Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýslu fagnar árangri af
baráttu þeirra fjölmörgu aðila sem
unnið hafa að reyklausu umhverfi
og minnkandi tóbaksnotkun meðal
landsmanna, og hvetur til að gera
enn betur og jafnframt tóbakið
burt úr þjóðfélaginu.
ELDHUSINNRETTING SEMk
ALLIR GETA EIGNAST
STANDARD eldhúsinnréttingin erlausnin fyrirþá sem viija
fallega, einfalda og ódýra innréttingu. Ekki nóg með það,
heldur er alltaf hægt að bæta við hana þegar buddan leyfir.
Þó STANDARD eldhúsinnréttingin sé eins ódýr og raun
ber vitni er í engu slegið neittafþeim ströngu gæðákröfum ■
sem við gerum til allra okkar innréttinga.
Kynntu þér hagkvæmni STANDARD eldhúsinnréttinganna
og þú verður standandi hissa. Verð: Kr. 23.735,-
íre
H(
ASÖM
refjarík fæða er öllum nauðsynleg og flestir íslendingar
neyta hennar ekki sem skyldi. ALPEN er framleitt
samkvæmt gamalli svissneskri uppskrift, sem í eru aðeins
vönduð hráefni og holl. Ef þú vilt neyta
trefjaríkrar fæðu, reyndu þá ALPEN,
enginn morgunmatur bragðast betur.
RETTA LEIÐIN UPP A MORGNANA