Morgunblaðið - 27.11.1986, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
51
vera stærðarflokkaðar. Öll afbrigði
sem talin eru hæf til manneldis
geta verið í 1. flokki. Það eru neyt-
endur, sem ákveða hvaða afbrigði
seljast.
Gulrófur í 1. flokki skulu vera
jafnar að stærð og útlitsfallegar.
Þær mega ekki vera léttari en 200
grömm og ekki þyngri en 1 kg.
Gulrófur falla í 2. flokk ef þær eru
þyngri en 1 kg og léttari en 200
gr. Trénaðar rófur eru ekki hæfar
til manneldis.
Stefnt er að því að bragðprófa
kartöflur og gulrófur. Ef óbragð
flnnst af þessum garðávöxtum
soðnum þá eru þeir ekki hæfir í 1.
flokk. Þá mega kartöflur í 1. flokki
ekki detta í sundur við suðu eða
dökkna skömmu eftir suðu.
Merkingar á neyt-
endaumbúðum
Gerðir hafa verið sérstakir miðar
til að líma á neytendaumbúðir. Þar
eru upplýsingar um gæða- og
stærðarflokka, uppruna vörunnar
og pökkunardag. Afurðastöðvar
geta látið prenta þessar upplýsingar
á umbúðirnar og þá þarf aðeins að
bæta við pökkunardeginum. Skil-
yrðislaust verður að koma fram
heiti á kartöfluafbrigði, hvort sem
kartöflumar eru seldar lausar í
verslunum eða í umbúðum.
Eftirlit með gæðum
Gert er ráð fyrir að eftirlit með
sölu garðávaxta verði hert frá því
sem það er í dag. Þar sem verið
er að selja ómetnar kartöflur eða
gulrófur ber að sekta viðkomandi
aðila, sem er ábyrgur fýrir sölunni
og ennfremur er heimilt að gera
vöruna upptæka. Vitlausar og vill-
andi upplýsingar um vöruna leiða
til þess að þeir, sem ábyrgðina bera,
verða sektaðir.
Því miður hafa veruleg svik við
sjóðakerfi landbúnaðarins fylgt
frelsinu í sölu garðávaxta. Það má
fastlega gera ráð fyrir að þeir, sem
svíkjast um að greiða lögboðin gjöld
til sjóða landbúnaðarins, greiði ekki
til ríkis eða sveitafélaga af þessari
framleiðslu.
Það ber að greiða 1,10% af verði
garðávaxta í Búnaðarmálasjóð, til
Stofnlánadeildar er gjaldið 1%. Þá
kemur neytenda- og jöfnunargjald,
sem reiknast af heildsöluverðinu,
en það er 2%. Gjald til Framleiðslu-
ráðs er 0,25%. Það verður varla liðið
mikið lengur að framleiðendur og
verslunaraðilar standi ekki skil á
þessum gjöldum. Það ber að senda
skýrslur til Framleiðsluráðs um sölu
þessara afurða. Ef þær berast ekki
á tilskildum tíma ber Framleiðslu-
ráði að áætla söluna hjá þeim, sem
vanrækja að gera grein fyrir henni.“
Þrjár af afgreiðslustúlkum Krásar.
Nýtt bakarí Seljahverfi
NÝLEGA var opnað nýtt bakarí
í Seljahverfi, Krás sf. Það er til
húsa að Hólmaseli 2 í nýju 300
fm húsnæði. Húsið er frá upp-
hafi liannað með þarfir bakarís
fyrir augum.
Stefnt er að því að innan skamms
verði hægt að bjóða upp á búðar-
bakstur í nýjum ofni frammi í búð,
þar sem viðskiptavinir fá glæný og
heit vínarbrauð, formkökur ofl.
beint úr ofninum.
Bakaríið Krás er rekið af Bjarna
Friðfinnssyni og Ingólfi Sigurðs-
syni, sem er jafnframt bakarmeist-
arinn.
KCLLatex
TAKTU HLUTINA FÖSTUM TÖKUM
KCL Latex gúmmíhanskarnir eru
afar hentugir þar sem hreinlætið
er í fyrirrúmi.
Þeir eru þunnir en sterkir og verja
hendurnar gegn skrámum,
óhreinindum, sterkum efnum og
annarri óáran sem þær geta
komist í tæri við í daglegu
eldhúsamstri, við
hreingerningar o.þ.u.l.
KCL Latex hanskarnir eru búnir
sérstökum gripfleti í lófanum
sem gerir þér kleift að taka
hlutina föstum tökum.
Farðu vel með hendurnar þínar
- notaðu KCL Latex gúmmí-
hanska.
K.RICHTERhf
OOTT FÖLX
Hraðlán og
Launalán
V/fRZlUNflRBflNKINN
-uúuuvwteð pin.1
Tækifæristékkareikningur
...með allt í einu hefti!
Auðveld og hröð lánafyrirgreiðsla
Eigendur TT-reiknings eiga kost á
Hraðláni, að ákveðnu hámarki. Hrað-
lánið er tveggja mánaða víxill. Þetta lán
fæst afgreitt í afgreiðslu bankans án
milligöngu bankastjóra.
Ennfremur eiga TT-reikningseig-
endur kost á Launaláni, sem er
skuldabréfalán, að vissu hámarki.
Launalánið er til allt að átján mánaða
og er einnig afgreitt í afgreiðslu bank-
ans án heimsóknar til bankastjóra.
í þessu tvennu felst jafnt öryggi sem
tímasparnaður.