Morgunblaðið - 27.11.1986, Blaðsíða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
Héðinn Gilsson
átti stórleik
- sanngjarn sigur FH-inga yfir Valsmönnum
„ÞETTA var mjög mikilvægur sig-
ur og óg er ánægður meö mfna
menn. Það er Ijóst að við verðum
með f toppbaráttunni og við
hlökkum til að takast á við Vfkinga
•t næsta leik,“ sagði Viggó Sig-
urðsson, þjálfari FH, eftir að lið
hans hafði unnið Val 23:21 í 1.
deild karia í handknattleik í Hafn-
arfirði í gærkvöldi.
FH er greinilega á uppleið og
vann sanngjarnan sigur í spenn-
andi og fjörugum leik. Valsmenn
byrjuðu betur og komust í 4:2, en
þá tóku FH-ingar Júlíus Jónasson,
aðalógnvald Vals, úr umferð, skor-
uðu næstu 6 mörkin og breyttu
stöðunni í 8:4 sér í vil. Eftir þetta
jafnaðist leikurinn og í hálfleik var
staðan 12:9.
Seinnr hálfleikur byrjaði eins og
sá fyrri endaði, en þegar staðan
var 13:11 kom góður kafli hjá leik-
mönnum FH, sem skoruðu 5 mörk
í röð og staðan 18:11 um miðjan
hálfleikinn.
Valsmenn minnkuðu muninn og
þegar tæp mínúta var eftir voru
FH-ingar aðeins einu marki yfir og
greinilega farið að gæta tauga-
veiklunar. En Stefán Kristjánsson
skoraði síðasta mark leiksins, þeg-
ar nokkrar sekúndur voru til leiks-
loka og tryggði FH tveggja marka
sigur, 23:21.
Júlíus Jónasson var langbestur
hjá Val þrátt fyrir að hafa verið í
strangri gæslu allan leikinn, en að
öðru leyti voru Valsmenn slakir og
varnarleikur þeirra hreint ömurleg-
ur á köflum.
Hjá FH var Héðinn Gilsson í
sérflokki og sýndi sannkallaðan
stjörnuleik. Magnús Árnason var
góður í markinu. Guðjón Árnason
og Pétur Petersen voru einnig
góðir, en lítið fór fyrir Þorgils Ótt-
ari Mathiesen, sem skoraði ekki
mark.
Mörk FH: Héöinn Gilsson 7, Óskar Ár-
mannsson 3/3, Pótur Petersen 3, Guöjón
Árnason 3, Stefán Kristjánsson 3, Gunnar
Beinteinsson 2. Óskar Helgason 2.
Mörk Vals: Július Jónasson 7/3, Þóröur
Sigurösson 4, Stefán Halldórsson 3, Geir
Sveinsson 2, Jakob Sigurðsson 2, Pálmi
Jónsson 1, Þorbjörn Guðmundsson 1,
Valdimar Grímsson 1. GA/S.G.
Víkingur í basli
Morgunblaðiö/Bjarni Eiríksson
• Héðinn Gilsson, FH, sýndi sannalaðan stjörnuleik með liði sínu
gegn Val. Hann skoraði 7 mörk og var allt í öllu.
1. deild kvenna:
VÍKINGUR átti i mestu erfiðleik-
um með Hauka í 1. deild karia í
handknattleik í gærkvöldi. Leikur-
inn fór fram í Hafnarfirði og unnu
gestirnir 24:23 eftir að staðan
hafði verið 13:10 þeim í vil í háif-
leik.
Þrátt fyrir sigur var þetta ekki
dagur Víkings. Haukar sýndu aftur
á móti allt annan leik en gegn FH
um helgina, börðust vel og þegar
5 mínútur voru til leiksloka var
staðan 21:21.
Mörk HAUKA: Sigurjón Sigurðsson 8/2,
Ágúst Sindri Karlsson 5, Árni Sverrisson
4, Ingimar Haraldsson 2, Pétur Guðnason
2, Helgi Harðarson 1, Gunnar Einarsson 1.
Mörk VÍKINGS: Árni Friðleifson 4, Guö-
mundur Guðmundsson 4, Bjarki Sigurðs-
son 4, Hilmar Sigurgíslason 4, Karl
Þráinsson 4/1, Siggeir Magnússon 3, Ein-
ar Jóhannesson 1.
AP/simamynd
• Frá leik Bayer Uerdingen og Barcelona f Krefeld i gærkvöldi. Atli
og félagar máttu þola tap gegn sterku tiði Spánverja.
Evrópukeppnin:
Uerdingen
steinlá
Frá Jóhanni Inga Gunnarsayni, fróttamanni
ATLI Eðvaldsson og félagar f
Uerdingen báru allt of mikla virð-
ingu fyrir Barcelona í Evrópu-
keppni félagsliða f gærkvöldi og
töpuðu 2:0.
Leikurinn var frekar leiðinlegur
á að horfa og skapaðist engin
stemmning á meðal áhorfend-
anna, sem voru 30 þúsund. Mikið
var um baráttu á miðjum vellinum,
Uerdingen náði aldrei að byggja
upp sóknarleik og átti varla mark-
tækifæri, en Barcelona beitti
skyndisóknum og voru Hughes og
Lineker nærri því að skora í fyrri
hálfleik.
Roberto Fernandez skoraði
Morgunblaðslns f V-Þýskalandl.
fyrra mark Barcelona á 76. mínútu.
Hörkuskot hans utan vítateigs fór
í stöng og inn. Þremur mínútum
síðar skoraði Hughes eftir auka-
spyrnu. Knötturinn fór yfir Atla,
Hughes stökk hæst og skallaði i
markið af stuttu færi.
Barcelona var nær því að skora
þriðja markið en Uerdingen að
komast á blað og máttu heima-
menn þakka fyrir að tapa ekki með
meiri mun, þrátt fyrir að Herget
léki með. Svo virðist sem Uerding-
en eigi erfitt uppdráttar gegn
spænskum liðum, en í fyrra féll lið-
ið úr keppninni eftir tap gegn
Atletico Madrid.
FH og Fram á toppnum
FH og Fram sigruðu bæöi í leikj-
um sínum f 1. deild kvenna í
handknattleik í gærkvöldi og eru
á toppnum. Fram vann Val 22:20,
en FH vann KR 15:13. Þá vann
Stjarnan Ármann 35:17.
Leikur Vals og Fram var jafn,
en Valsstúlkurnar voru betri í fyrri
hálfleik og höfðu þá tveggja marka
forystu, 12:10. Framarar skoruðu
5 fyrstu mörkin í seinni hálfleik,
en Valsarar gáfust ekki upp og
Inter Milan
vann í Prag
í gærkvöldi voru leikirnir í 16 liða
úrslitum Evrópukeppni félagsliða
f knattspyrnu leiknir. Inter Milan
vann f Tékkóslóvakíu og Spartak
Moskava átti f erfiðleikum heima.
Inter Milan vann Dukla Prag
1:0 í Tékkóslóvakíu að viðstöddum
30 þúsund áhorfendum. Tékkarnir
sóttu meira í leiknum, fengu nokk-
ur góð marktækifæri, en vörn
ítalanna var þétt fyrir og Walter
Zenga var vel á verði í marki Int-
er. Alessandor Altobelli skoraði
eina mark leiksins á 18. mínútu.
Leikmenn Inter lögðu áherslu á að
halda fengnum hlut og það tókst.
Spartak Moskva vann FC Tyrol
frá Áusturríki 1:0. Andrei Rudakov
skoraði á 22. mínútu.
Dundee United vann Hadjuk
Split frá Júgóslavíu 2:0. Leikurinn
fór fram í Skotlandi og skoruðu
McNally og John Clark mörkin.
Rangers og Borussia Mönc-
hengladbach gerðu 1:1 jafntefli í
Glasgow. lan Durrant skoraði fyrir
Rangers á 14. mínútu, en Uwe
Rahn jafnaði á 44. mínútu. Ran-
gers sótti og sótti, en lánið lék
ekki við Skotana.
Torino vann Beveren 2:1 á ít-
alíu eftir markalausan fyrri hálfleik.
Heimamenn áttu meira í leiknum,
Antonio Comi skoraði úr víta-
spyrnu á 47. mínútu og Ezio Rossi
skoraði með skalla á 58. mínútu.
En Brian Fairclough minnkaði
muninn á 84. mínútu og nægir
Beveren að vinna seinni leikinn 1:0
til að komast áfram.
Groningen vann Victoria
Guimaraes frá Portúgal 1:0 og
skoraði Kock eina mark leiksins,
sem fram fór í Hollandi, á 5.
mínútu.
Gautaborg gerði góða ferð til
Belgíu og vann Ghent 1:0. Jary
Rantanen skoraði á 64. mínútu.
Stjörnunni boðið
til Júgóslavíu
STJARNAN, Garðabæ, féll úr Evr-
ópukeppni bikarhafa í handknatt-
ieik f sfðustu viku, en forráða-
menn mótherjanna, Dinos
Slovan, hrifust af leik liðsins og
buðu félaginu að taka þátt í
sterku móti f Ljubljana f ágúst á
næsta ári.
„Dinos Slovan hefur árlega und-
anfarin 6 ár haldið 6-8 liða mót
með þátttöku liða frá Júgóslavíu
og Þýskalandi. Innbyrðisleikir okk-
ar á dögunum urðu til þess að
Stjörnunni var boðið á mótið
næsta ár," sagði Jón Ásgeir Ey-
jólfsson, formaður Handknatt-
leiksdeildar Stjörnunnar, við
Morgunblaðiö.
„Fjárhagslegt tap varð á þátt-
töku okkar í Evrópukeppninni að
þessu sinni, en við höfum eignast
nýja vini og teljum það mikinn
ávinning að fá þetta boð. Keppnin
verður á undirbúningstímabilinu
fyrir næsta íslandsmót og ef við
þiggjum boðið, kemur hún okkur
örugglega til góða auk þess sem
strákarnir geta farið 'stutt sum-
arfrí í leiðinni."
þegar 10 mínútur voru eftir var
staðan 17:16 fyrir Fram. Fjórum
mínútum síðar hafði Valur jafnað
19:19, en þá skoruðu Framarar
þrjú mörk í röð og unnu 22:20.
Guðrún Kristjánsdóttir, lands-
liðskona úr Val, meiddist í leiknum
og verður frá í einhvern tíma. Ein-
ar Sveinsson og Aðalsteinn
Örnólfsson dæmdu öll smáatriði
Fram í hag.
Mörk VALS: Erna Lúðviksdóttir 6/2,
Katrín Frederiksen 5, Soffía Hreinsdóttir
4, Guðrún Kristjánsdóttir 2, Rósbjörg
Jónsdóttir 2, Harpa Siguröardóttir 1.
Mörk FRAM: Guðríður Guðjónsdóttir
7/3, Arna Steinsen 4/1, Ingunn Bernódus-
dóttir 4, Margrét Blöndal 3, Jóhanna
Halldórsdóttir 3, Súsanna Gunnarsdóttir
1.
FH sigraði KR
FH byrjaði vel í Hafnarfirðinum
og var yfir í hálfleik 9:4. Seinni
hálfleikur var mun jafnari,
KR-stúlkurnar söxuðu á forskotið,
en urðu að sætta sig við tveggja
marka tap, 13:15.
Sigurbjörg Sigþórsdóttir var
best hjá KR og skoraði 6 mörk,
en Rut Baldursdóttir skoraði 7
mörk fyrir FH og þar af 5 úr víta-
köstum.
Einstefna hjá
Stjörnunni
Stjarnan vann Ármann 35:17 í
Höllinni eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 14:11. Eins og tölurnar
gefa til kynna var sigurinn öruggur
pftir jafnan fyrri hálfleik.
Erla Rafnsdóttir var atkvæða-
mest hjá Stjörnunni og skoraði 13
mörk. Margrét Theódórsdóttir og
Guðný Gunnsteinsdóttir skoruðu 6
mörk hver. Ellen Einarsdóttir,
Bryndís Guðmundsdóttir og
Margrét Hafsteinsdóttir skoruðu 4
mörk hver fyrir Ármann.
KF/ÁS
Staðan
Staðan í 1. daild karlo er nú þessi:
Vikingur 6 5 0 1 139-126 10
Breiðablik 5 4 1 0 118-104 9
FH 6 4 0 2 158-131 8
KA 8 3 1 2 135-142 7
Fram 5 3 0 2 120- 97 6
Valur 6 3 0 3 166-143 6
Stjarnan 4 2 0 2 105-105 4
KR 6 2 0 4 116-137 4
Haukar 6 1 0 5 126-162 2
Ármann 6 0 0 6 126-149 0