Morgunblaðið - 16.12.1986, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
TIL JOLAGJAFA
Pennasett • Pennastatíf • Töfl • Servíettur • Leikspil •
Vönduö tréleikföng • Kertaglös • Kerti • Óróar •
Allar jólabœkurnar • Hnattlíkön • Jólakort • Spil •
Jólaskraut • Slaufur og boröar • Skrifborösmottur •
Merkimiöar • Jólapappír • Skjalatöskur •
O.m.m. fl
Meö nyjungarnar og nœg bílastœöi
Siðumula 35 — Simi 36811
Hvernig merkir þú
j ólaböggulinn?
eftir Guðjón B.
Baldvinsson
Á þessari jólaföstu berast heimil-
um landsins jólamerkimiðar ásamt
smábréfi frá sjálfseignarstofnun-
inni SKJÓL, sem er að reisa
umönnunar- og hjúkrunarheimili
við Kleppsveg hér í borg. Óþarft
er, góðir lesendur, að riíja upp hve
langir biðlistamir eru yfir fólk sem
bíður umönnunar og hjúkmnar, fólk
sem þrotið er að heilsu eftir langan
starfstíma innan samfélagsins okk-
ar.
Umhverfisvernd
Þetta er nokkurskonar tízkuorð,
en er víðfeðmt, nær yfir marga
þætti mannlífsins. Það er ekki bara
peningalykt eða óhollar sýrur og
gufur sem spilla andrúmslofti og
jörð, heldur ekki síður tregða við
að skoða í eigin barm og leita þess
neista, sem einn gefur lífinu gildi,
þ.e. mannúðarinnar, fómarviljans
sem leiðir af kærleika, tilfinningu
fyrir samhygð með samferðafólk-
inu.
Hraðferð okkar um lífsstigu gef-
ur okkur ekki tíma til að beita
huganum að hlutskipti annarra,
nema að mjög takmörkuðu leyti.
Kapphlaupið umhverfis kökuna,
sem til skipta kemur í þjóðfélaginu,
heltekur svo einstaklingana, að þeir
taka ekki eftir samferðafólkinu eða
hrinda því frá sér í grófri sér-
hyggju og af fávisku. Þetta er illa
sagt gagnvart þeim sem muna
aðra.
Og sem betur fer þarf ekki að
minna alla á þá, sem höllum fæti
standa í lífsbaráttunni. Jafnvel eru
til dýravinir, sem beijast góðri bar-
áttu fyrir því að í gangi sé dýraspít-
ali, þar sem fótbrotin kisa getur
notið aðhlynningar, og að það séu
til dvalarheimili fyrir hunda. Og
fjölmargir eru þeir, sem gefa fugl-
unum þegar jörð frýs eða jarðbönn
verða vegna snjóa.
Þegar nú mannkindin horfir svo
samúðarfullum augum til dýranna,
hversu miklu fremur skyldi hún þá
ekki líta til sinnar eigin tegundar?
Eða er sjálfsbjargarhvötin svo rík
að það gleymist að sumir eru eða
verða af eðlilegum ástæðum ósjálf-
bjarga eins og fótbrotni kötturinn,
eða þurfa vist á dvalarheimili vegna
einsemdar eins og heimilishundur-
inn þegar húsbændumir hans
skreppa í sumarfrí?
Nokkur samtök og stofnanir era
að hugsa til eldri borgara, sem
Guðjón B. Baldvinsson
„Þegar nú mannkindin
horfir svo samúðarfull-
um augum til dýranna,
hversu miklu fremur
skyldi hún þá ekki lít
atil sinnar eigin teg-
undar?“
þurfa á umönnun að halda umfram
það venjulega, og reisa hjúkranar-
heimili með 90 sjúkrarúmum, 15
gistirúmum og dagvistunarrými að
auki.
Þetta hrekkur skammt munu
sumir segja, en það er ekki afsökun
fyrir því að gera ekkert. Samfélag
krefst þess að menn hugsi saman,
starfi saman, lifi saman allt frá
vöggu til grafar, og samfélag vill
vera lifandi, fullt gleði og sam-
kenndar er léttir áhyggjum og
styður alla til sjálfsbjargar hvem
eftir hans getu.
Þó að þessi draumur rætist ekki
til fulls í okkar tíð, þá er ærin
ástæða til að muna þá, sem aldnir
era og hafa búið í haginn fyrir þá
sem nú lifa.
Höfundur er formaður Bandalags
tífeyriaþega ríkis ogbæja.
Stofnfundur
Landssambands
sjúkraflutn-
ingsmanna
STOFNFUNDUR Landssambands
sjúkraflutningsmanna var haldinn
fyrir skömmu. Tildrög að stofnun
LS er reglugerð um sjúkraflutninga
sem væntanlega verður gefín út á
næstunni og er byggð á lögum um
heilbrigðisþjónustu.
Við setningu fundarins vora við-
staddir Ólaíur Ólafsson landlæknir,
Guðjón Magnússon formaður RKI
og Guðmundur Sigurðsson for-
maður nefndar er samdi reglugerð-
ina. Þeir ávörpuðu fundinn og kom
fram í máli þeirra stuðningur við
reglugerðina og stofnun LS og töldu
þetta vera til hagsbóta fyrir þá er
njóta þjónustu sjúkraflutnings-
manna.
Reglugerðin kveður jafnframt á
um betri samræmingu á bifreiðum
til sjúkraflutninga_ en það er ný-
lunda hér á landi. Á fundinum kom
fram sú ósk að heilbrigðisráðherra
gengi hið fyrsta frá reglugerðinni
til hagsbóta bæði fyrir sjúklinga og
sjúkraflutninga á landinu. Undir-
búningsstjóm LS var falið að starfa
áfram og undirbúa lög fyrir LS sem
lögð verða fram á framhaldsstofn-
fundi LS í vor.