Morgunblaðið - 16.12.1986, Qupperneq 87
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
í fremstu röð, frá vinstri eru: Hulda Kristinsdóttir, Þráinn Þorvaldsson, Helga Eysteinsdóttir og Bryn-
hildur Sverrisdóttir.
í miðröð: Björn Birgisson, Eggert Ágúst Sverrisson, Sveinn Hallgrímsson, Þórður Magnússon, Sigurð-
ur Ágúst Jensson, Ágúst Ágústsson, Björn Guðmundsson og Hafsteinn Vilhelmsson.
í öftustu röð: Kornelíus Sigmundsson, Gunnar Kjartansson, Orri Vigfússon og Páll Gíslason.
Á myndina vantar Birgi Harðarsson, Eddu L. S. Helgason, Guðlaug Björgvinsson, Guðmund Svavars-
son, Inga Tryggvason, Olaf Haraldsson og Vilhjálm Kjartansson.
Fyrrverandi fulltrúar utflutnings-
miðstöðvar iðnaðarins koma saman
Itilefni þess að Útflutningsmið-
stöð iðnaðarins var iögð niður
30. september síðastliðinn, komu
fyrrverandi fulltrúar og markaðs-
stjórar Útflutningsmiðstöðvarinnar
saman, en á árunum 1971-1985
störfuðu alls 24 markaðsstjórar og
fulltrúar hjá Ú.i. Þessir aðilar störf-
uðu mislengi hjá stofnuninni., en
gegna nú ýmsum mikilvægum stöð-
um í atvinnulífinu hér á landi, sem
erlendis.
Allt fram til ársins 1985 gegndi
Úlfur Sigurmundsson starfi fram-
kvæmdastjóra Ú.i., en hann lét af
störfum í byijun árs og tók við
starfí viðskiptafulltrúa U.i. í New
York. Það var Þráinn Þorvaldsson,
fyrrv. framkvæmdastjóri Hildu h.f.
sem tók við starfi Úlfs og gengdi
því þar til Útflutningsmiðstöðinn
var lögð niður.
Meðfylgjandi mynd var tekin er
fulltrúar og markaðsstjóramir
komu saman.
Buchanan, Ingemar Stáhl og Hannes H. Gissurarson.
Til heiðurs
N óbels verðalaunahafa
Itilefni af því að bandaríski pró-
fessorinn James M. Buchanan
fékk Nóbelsverðlaunin í hagfræði í
ár, efndu nokkrir vinir hans til
kvöldverðar í Stokkhólmi, hinn 8.
desember síðastliðinn og var þessi
mynd tekin við það tækifæri. Á
henni eru frá vinstri þeir James
M. Buchanan, Ingemar Stáhl, hag-
fræðiprófessor í Lundi, og dr.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
lektor við Háskóla íslands.
í hendinni heldur Buchanan á
ritinu Hagfræði stjórnmálanna, sem
Stofnun Jóns Þorlákssonar gaf út
í tilefni verðlaunaveitingarinnar.
Þar er að fínna fyrirlestur, sem
Buchanan flutti í Viðskiptadeild
Háskóla íslands haustið 1982, með
forspjalli eftir Hannes.
TTLaJCiZcL
j A P A N ' $ ! E ' A D I N C- P O ' W E R T O O l S
RAFHLÖÐUBORVÉLAR
verÖ fra kr. 4.990,-
Gull ermahnappar
og bindisnœlur fyrir
herrann.
Gull og demantar
Kjarton Ásmundsson. gU/lsmiður.
Aðalstrœti 7, sími 11290.