Morgunblaðið - 16.12.1986, Síða 91
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
91
AStaa. »
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
Geta fjölmiðlamenn fjall-
að um fjölmiðlamenn?
Borgari skrifar:
Það hefði mörgum brugðið í brún
þegar Hafskipsmálið stóð sem hæst
ef einungis stjómendur og starfs-
menn fyrirtækisins hefðu verið
spurðir álits á eigin stjórn. Það
hefðu ekki allir verið ánægðir með
að fá svörin einungis þaðan. Ég
leyfi mér að efast um að fjölmiðla-
menn hefðu verið ánægðir með þá
málsmeðferð að stjómendur full-
yrtu að reksturinn væri í eðlilegu
ásigkomulagi miðað við aðstæður.
Þeir hefðu kannski leitað til annara
um málið og önnur viðhorf hefðu
vafalítið komið í ljós. Hafskip var
reyndar tekið til gjaldþrotaskipta
eftir þvílíka umfjöllun, þrátt fyrir
fögur ummæli stjómenda.
En á dögunum bar svo við að í
Kastljósi þótti rétt að spyija einung-
is fjölmiðlamenn um stöðu fjölmiðla
í dag. Einn þessara fjölmiðlamanna
sagði að það væru bara reiðir menn
sem gagnrýndu fjölmiðla. Hann
taldi sig afgreiða málið með því.
Það hefði þótt ómerkilegt af Ragn-
ari Kjartanssyni á sínum tíma, fyrir
nú utan það hvað það er skiljanlegt
af fólki að vera reitt út í fjölmiðla
í dag. En að í Kastljósi sem Gunn-
ar Kvaran stjómaði 28. nóvember
s.l. skuli fjallað um gagnrýni á fjöl-
miðla á þann hátt að spyrja fjöl-
miðlamennina eina álits er
sennilega ómerkilegasta málsmeð-
ferð sem sést hefur í Ríkissjón-
varpinu um margra ára skeið. Það
hefði verið afsakanlegt ef HP hefði
verið að verki, en Ríkissjónvarpið?
Það verður að segjast eins og er
að langoftast er Ríkissjónvarpið
með vandaðasta fréttaflutninginn
og því kemur þetta á óvart.
Er umfjöllun um fjölmiðla ekki
möguleg af fjölmiðlum vegna ein-
hverskonar samtryggingarklíku
sem heldur um spottana svo að öll
heilbrigð umræða er stöðvuð áður
en hún fer af stað? Hvað fínnst
sannleikselskandi rannsóknarblaða-
mönnum um þetta? Þola þeir
gagnrýni á eigin stórasannleik, eða
er hann yfír gagnrýni hafinn vegna
þess eins að pyngja fjölmiðlamanna
yrði léttari ef almenningur missti
traust sitt á þeim? Fjölmiðlamenn
hafa aðstöðu til að búa tii almenn-
ingsálit, eða eins og einn þeirra sem
talaði í Kastljósi minnti réttilega á
að þessi sami almenningur er dóm-
stóll fjölmiðla. Þægilegt eða hvað?
Nei, Ríkissjónvarpið skuldar
áhorfendum annan og betri þátt um
fjölmiðla þó ekki væri nema til þess
að hinn þátturinn gleymdist um
alla eilífð.
Hefur ríkisstjórnin engan blaðafulltrúa?
Reykvíkingur skrifar:
Velvakandi,
Hér á árum áður, það er nú orð-
ið langt síðan, þá mátti reiða sig
á, að fréttnæmir atburðir sem gerð-
ust á vegum eða fyrir tilverknað
ríkisstjómarinnar, hver sem hún
var, væri það blaðafulltrúi hennar
sem fyrstur kynnti málið, a.m.k. í
flestum tilfellum.
Nú er ekki slíkur háttur hafður
á og er verið að ræða við ráðherra
okkar á hveijum degi um hvaðeina
sem upp kemur, jafnvel á þingi, að
ekki sé nú talað um það sem skeð-
ur á ríkisstjómarfundum.
Ég er ekki kunnugur þvf, hvort
einhver gegnir starfi blaðafulltrúa
ríkisstjómarinnar eins og er, en það
má svo sem vel vera. Lítið fer þá
fýrir starfí hans opinberlega, ef
hann er til staðar.
Á þessum tímum, þegar flest
berst út með ljóshraða, hvort sem
það á nú að fréttast eða ekki, og
hér á ég við ýmis mál, sem ríkis-
stjóm fjallar um, þá er það einhvem
veginn mun viðkunnanlegra og sið-
menntaðra, að blaðafulltrúi haldi
fund með blaðamönnum en ráð-
herrar séu sífellt í sviðsljósinu að
útskýra - oft ómerkileg eða minni
háttar atriði, sem þó kunna að eiga
heima í fjölmiðlum.
Þegar leiðtogafundurinn var
haldinn, var það t.d. mjög áber-
andi, að enginn blaðafulltrúi virtist
vera til hjá hinu opinbera. Og varð
að „leigja" einn slíkan ef svo má
segja. Og þótt það hafí tekist vonum
framar, en ekki meira en svo, og
ráðherrar og þá aðallega forsætis-
ráðherra hafí svo að segja stjómað
Ieiðtogafundinum sjálfur þá hefði
verið mun viðkunnanlegra og verið
meiri heimsbragur á , ef blaðafull-
trúi sem hefði titilinn „blaðafulltrúi
ríkisstjómarinnar“ hefði komið
fram við ýmis tækifæri og getað
verið eins konar fyrirliði.
En þetta á ekkert sérstaklega
Þessir hringdu . . .
1. desember
verði almennur
frídagur
Vilhjálmur Alfreðsson hafði
samband:
Mig langar til að bera fram þá
ósk að hið háa Alþingi taki til hend-
inni og lýsi því yfír að 1. desember
við um leiðtogafundinn, heldur al-
mennt um samskipti ríkisstjómar
og fjölmiðla t.d.
Nú væri fróðlegt að fá um þetta
frekari upplýsingar frá réttum aðil-
um fljótlega, en ekki láta svona
fyrirspum eins og vind um eyru
þjóta, eins og títt er um fyrirspum-
ir sem beint er til aðila hins
opinbera. En er blaðafulltrúi til
staðar og hvert er þá hans starf?
Ef ekki verður hann ráðinn í bráð?
verði aftur almennur frídagur.
Þetta myndi leiða til þess að þjóð-
emiskennd íslendinga styrktist
jafnt sem að létta yfír þessum
dimmu skammdegisdögum. Að lok-
um vil ég óska íslensku þjóðinni
innilega til hamingju með Pullveld-
isdaginn.
Getur einhver
veitt upplýs-
ingar um Simon
Norling?
Alf Hedström, Sviþjóð, hafði
samband:
Getur einhver veitt upplýsingar
um Simon Norling er fæddist 15.
febrúar 1879 í Svíþjóð? Það getur
verið að hann hafí kallað sig Sim-
onsen og kannski notað fomafnið
Albert. Líklegt er að hann hafí
unnið á íslandi við orkuver eða eitt-
hvað álíka. Ef til eru einhveijir
afkomendur hans eða aðrir sem
kannast við hann em þeir vinsam-
legast beðnir um að hafa samband
við okkur. Heimilisfangið er: Alf
Hedström, Wemergatan 9, 82093
Hede, Svíþjóð. Síminn er 0684/
10244.
Blekkingar og
skrum í aug-
lýsingum
Amma hafði samband:
Fyrir nokkm auglýsti Iðunn í
DV nýjustu bamabók Guðrúnar
Helgadóttur „Saman í hring" sem
verðlaunabók. Ekki er mér kunnugt
um að þessi bók hafí fengið ein eða
nein verðlaun eða hvað?
Hinsvegar hefur bamabókin
„Emil og Skundi" eftir Guðmund
Ólafsson hlotið íslensku bamabóka-
verðlaunin 1986. Blekkingar eða
skmm í auglýsingum er hvimleitt
fyrirbæri og á ekki að eiga sér stað.
■ ííiu 741111 u ' 1 i«mn 1 j ( vf i
HEILRÆÐI
SW
Er reykskynjarinn í lagi?
Bilaður reykskynjari er „falskt" öryggi. Prófaðu því reykskynjar-
ann þinn reglulega. Sjáðu til þess að rafhlöður séu ávallt í lagi.
Við skulum vona að þú þurfir aldrei að vakna við hljóðið í reyk-
skynjaranum vegna eldsvoða á heimilinu, en mundu að hann á að
vekja þig á hættustundu.
Vertu eldklár - Njóttu undirbúnings jólanna með slysalausum dög-
. IJillJ l iJ'ltlíy
MÆLDU VEGGINN
•SSS&*
J (v.
Oslo Maghony kr. 39.980.
Bergen í kótó kr. 44.190.-
rm m m n
E'l i i i *
J ‘ ‘ Ul’ 'i
_____ í'i
11 “ (I
Korfu í kótó kr. 49.740.-
System II raðskápar í hvítu, svörtu,
beiki, kótó og maghony.
Bonn hvítt og beiki.
Uppstilling kr. 29.490.-
b
Tunö raðskápar og massíf fura.
VtSA
eurocabo
BESTU GREIÐSLUKJÖR í BÆNUM
húsgagnsthöllin
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410