Morgunblaðið - 20.12.1986, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986
7
Einlyndi og marglyndi eru tuttugu Hannesar Árnasonarfyrirlestrar sem Sigurður Nordal
flutti veturinn 1918—1919. Með þeim hreif hann áheyrendur sína svo fast að fullyrða
má að enginn íslendingur hafi kvatt sér hljóðs við þvílíkar undirtektir.
Þar hyggur Sigurður Nordal að ólíkum manngildishugsjónum — leysingjans og
vandrceðamannsins, skáldsins og framkvœmdamannsins — lífsviðhorfum, draum-
hyggju, leikhyggju og vafahyggju meðal annarra.
Leikandi og lipurt málfar Sigurðar ber vitni einum helzta íslenzkumanni þjóðarinnar.
Þorsteinn Gylfason og Gunnar Harðarson sáu um útgáfuna og ritar Þorsteinn ýtarlegan
inngang.
Verð kr. 1.890.-
Einhver ferskasta og litríkasta saga Guðmundar
Daníelssonar... Lesendur tóku brœðrunum í
Grtjshaga með kostum og kynjum... Þarna var á
ferðinni sú ómengaða, listilega frásagnargleði
sem þjóðin hafði unað við um aldir, annaðhvort í
munnlegri geymd eða þá af skrifuðum bókum.
Saga var til að segja hana. Og skáldverk eins og
bræðurnir í Grashaga var sem nœst framhald
hinnar munnlégu sígildu frásagnarlistar eins og
hún hafði gerst best. . .
ERLENDUR JÓNSSON MBL. 16. DES. 1986
HIÐ ÍSLENZKA BÓKMENNTAFÉLAG
ÞINGHOLTSSTRÆTI S - 121 REYKJAVlK
í þágu íslenskrar menningar
Þetta merkisverk frásagnameistarans þurfa
allir að eignast
LÖGBERG
Ásgrímur O
Jönsson
Ásgrímur Jónsson er einn fremsti meistari
íslenskrar myndlistar. Myndir hans tala
skýrt til skoðandans, eru máttugar í hrein-
leik sínum, en dulúðin, sem býr undir
yfirborðinu, ljær þeim heillandi dýpt.
Ásgrímur var einkar ötull í listsköpun
sinni. Meginyrkisefni hans er ramm-
íslenskt: fegurð landsins og kynngi þjóð-
sagna.
í bókinni eru fjölmargar litprentanir af
málverkum listamannsins auk teikninga
eftir hann og ýmissa ljósmynda. Höfundar
ritaðs máls eru tveir, þau Hrafnhildur
Schram og Hjörjeifur Sigurðsson. Á nær-
færinn hátt draga þau upp sína myndina
hvort af listamanninum.
Þetta er sjötta verkið í bókaflokknum um
íslenska myndlist.
LISTAS AFN ASI
Lögbem Bókaforlag
Þingholtsstræti 3