Morgunblaðið - 20.12.1986, Side 32

Morgunblaðið - 20.12.1986, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986 FLÓTTAMENN 86 Landssöfnun til flóttamannahjálpar Gefum þeim von! 15 milljónir manna eru í dag á flótta undan stríði, ofsóknum og hungri. Stærsti hlutinn konur og börn sem hrekjast frá einu fátæku landi í annað. Allslaust fólk, örvæntingarfullt og vonlaust. Við getum gert þeim lífið örlítið bærilegra. Verndari söfnunarinnar er forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir. í dag safna sjálfboðaliðar við verslanamiðstöðvar: í dag verða sjálfboðaliðar við helstu verslana- miðstöðvar landsins, frá kl. 14.00- 22.00. Þeir taka á móti framlögum gegn kvittunum í formi límmerkja, - einn miði fyrir hvert 100 krónu framlag. Miðarnir eru númeraðir. Á morgun er símasöfnun: Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur látið gera tónlistarþátt sem þegar hefur verið sýndur í 22 löndum og þessi þáttur verður sýndur í Ríkissjónvarpinu á sunnudaginn. Hann hefst klukkan 15:00 og stendur til kl. 17:50. Á þeim tíma, og fram eftir kvöldi getur fólk hringt í söfnunarsíma Rauða Kross íslands og tilkynnt um framlög sín og það má gera með tvenns konar hætti - segja nafn sitt og heimilisfang og fá síðan sendan gíróseðil, eða með því að nota greiðslukort, VISA og EUROCARD og er það nýmæli hér á landi. Allt söfnunarféð verður sent héðan óskert til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Genf og því varið til aðstoðar við flóttamenn í samráði við Alþjóða Rauða Krossinn Framlögum verður veitt viðtaka í eftirtöldum númerum: 91- 88888 92- 4850 93- 3288 94- 4466 95- 6700 96- 27200 97- 1101 98- 2788 99- 2799 RAUÐI KROSS ÍSLANDS Rauöi Kross íslands þakkar Svala og Sodastream sem greiða kostnað vegna birtingar þessarar auglýsingar. &m'i iÍEÓÍ trea

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.