Morgunblaðið - 20.12.1986, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986
Til viðbótar um
virðisaukaskatt
eftir Geir H. Haarde
Frumvarp ríkisstjómarinnar um
virðisaukaskatt, er komi í stað sölu-
skatts, hefur nú verið til umfjöllun-
ar á opinberum vettvangi um
nokkurra vikna skeið. Hafa ýmsir
orðið til að gagnrýna það. í sjálfu
sér þarf ekki að undra að meiri
háttar breytingar í flóknum og
vandasömum málum valdi andstöðu
og kalli á margháttaðar útskýring-
ar. Samt hafa líklega fá mál í seinni
tíð verið betur kynnt samtökum
atvinnulífs og vinnumarkaðar.
Staðgreiðsla — virðis-
aukaskattur 1988
í tengslum við gerð kjarasamn-
inga fyrr í mánuðinum gaf ríkis-
stjómin aðilum vinnumarkaðarins
fyrirheit um að stefna að framlagn-
ingu fmmvarps um staðgreiðslu
skatta og ýmsar fleiri umbætur á
sviði beinna skatta, sem taki gildi
1. janúar 1988. Ljóst er að slík
breyting þarf gríðarlegan undirbún-
ing innan skattkerfísins jafnt sem
utan. Það er álitamál, hvort heppi-
legt sé að gera mjög róttækar
breytingar samtímis á bæði beinum
sköttum og óbeinum og hvort hægt
sé að ætlast til að skattkerfið og
skattborgararnir ráði við hvort
tveggja í einu. í því efni verður
raunsæið að sjálfsögðu að ráða ferð.
Virðisaukaskattsmálið má ekki
tefja að staðgreiðsla skatta og
umbætur henni tengdar nái fram
að ganga.
Jákvæð gagurýni
og neikvæð
Sú gagnrýni sem fram hefur
komið að undanförnu á fyrirhugaða
breytingu úr söluskatti í virðisauka-
skatt virðist mér vera aðallega af
þrennum toga spunnin. í fyrsta lagi
er um að ræða ótta við að skattar,
ríkisumsvif og millifærslukerfi hins
opinbera aukist. Þessi gagnrýni sem
einkum hefur komið frá ýmsu góðu
og gegnu sjálfstæðisfólki, er mál-
efnalegs eðlis og að mínum dómi
jákvæð, þótt ég telji mig hafa sýnt
fram á að við ótal tækifæri, á fund-
um og í fjölmiðlum, að þessi ótti
sé ástæðulaus.
I öðru lagi er um að ræða gagn-
rýni er byggir á hreinni sérhags-
munagæslu, m.ö.o. umkvartanir
aðila, sem telja eigin hag verr borg-
ið í hinu nýja kerfi en í hinu gamla.
Yfirlýsingu sem m.a. hefur verið
send þingmönnum í nafni Verzlun-
arráðs Islands verður að flokka
undir þetta. Tvö atriði af þremur,
sem gagnrýnd eru í yfirlýsingunni,
lúta að fyrirkomulagi innheimtu í
virðisaukaskattsfrumvarpinu. Ráð-
ið telur að þessum atriðum mætti
koma fyrir þannig að betur henti
félögum þess og öðrum innheimtu-
aðilum. Þótt tekið hafi verið tillit
til margra athugasemda og ábend-
inga frá Verzlunarráði við undir-
búning þessa máls var ekki unnt
að verða við þessu.
Abyrgðarlaus
Alþýðuflokkur
I þriðja lagi nefni ég síðan gagn-
rýni sprottna af pólitískri tækifær-
ismennsku. Málflutningur
talsmanna Alþýðuflokks og Al-
þýðubandalags er gott dæmi um
þetta, en báðir þessir flokkar hafa
fundið málinu allt til foráttu, þótt
þeir hafi áður lagt því lið. Málflutn-
ingur þeirra er gott dæmi um
hentistefnu þessara flokka. Þeir
hafa eflaust talið sig finna andstöðu
við breytingu úr söluskatti yfir í
virðisaukaskatt og standast þá ekki
freistinguna að vera líka á móti.
Það er lítil reisn yfir stjórnmálafor-
ingjum sem þannig haga sér.
Alþýðuflokkurinn er þó sýnu
ábyrgðarlausari í þessu efni, því
hann hefur í farteskinu aðeins
nokkurra vikna gamla stefnu
fiokksþingsins í Hveragerði, en þar
segir orðrétt: „Viðurkennt er af öll-
um að verulega vanti á að söluskatt-
ur skili sér, bæði vegna þess að
undanþágur eru margar og algengt
er að söluskatti sé hreinlega sleppt
í viðskiptum manna í milli. Flokks-
þingið ályktar því, að taka beri upp
virðisaukaskatt. Tryggt verði að
skatturinn verði ekki til þess að
hækka framfærslukostnað heimil-
anna.“
Skýrari getur þessi boðskapur
ekki verið. I virðisaukaskattsfrum-
varpi ríkisstjómarinnar eru kynntar
ráðstafanir til þess að tryggja að
skatturinn verði ekki til þess að
hækka framfærslukostnað heimil-
anna. Samt standast forystumenn
Alþýðuflokksins ekki freistinguna
°g leggjast gegn málinu með yfir-
klóri. Efsti maður á lista þeirra í
Reykjavík, sem var á árinu 1981
einn aðalhöfundur skýrslu til stjóm-
valda um virðisaukaskatt þar sem
þetta skattkerfi er mjög vegsamað,
á greinilega mikið verk óunnið inn-
an flokksins.
Af staða Alþýðu-
bandalagsins
Alþýðubandalagið hefur einnig
lgast gegn skattbreytingunni, en
forystumenn þess eiga einnig erfitt
uppdráttar í sinni andstöðu. I
stjómarsáttmála ríkisstjómar
Gunnars Thoroddsens frá því í febr-
úar 1980 segir m.a. svo: „Athugað
verði að breyta söluskatti í skatt
með virðisaukasniði innan tveggja
ára.“ Mér er tjáð að þessu hafí
framsóknarmenn og þeir sjálfstæð-
ismenn, sem aðild áttu að stjórninni,
komið inn í sáttmálann, en alþýðu-
bandalagsmenn ekki verið ýkja
hrifnir og þá beitt sér fyrir því að
orðalagið er jafnloðið og raun ber
vitni.
Engu að síður fól Ragnar Am-
alds, fjármálaráðherra Alþýðu-
bandalagsins, árið 1982 sérstakri
nefnd sérfræðinga að semja frum-
varp um virðisaukaskatt sem kæmi
í stað söluskatts. Frumvarpið sem
Albert Guðmundsson, þá fjármála-
ráðherra, lagði fram á Alþingi 1983
og aftur 1984 er afrakstur af starfi
þessarar nefndar og það er endur-
skoðuð og endurbætt útgáfa þess
frumvarps sem nú liggur fyrir þing-
inu. Það er hreinn bamaskapur ef
Alþýðubandalagið heldur að það
geti hlaupið burt frá þeirri stað-
reynd að fjármálaráðherra þess ýtti
samningu frumvarpsins úr vör á
sínum tíma. Sjálfsagt myndu samt
einhverjir telja það málinu frekar
til framdráttar nú, að Alþýðubanda-
lagið hefur lagst gegn því.
Rangar fullyrðingar
Opinberar umræður hér á landi
um yfirgripsmikil mál eiga það til
að einkennast af fullyrðingum án
raka. Allir þekkja dæmi um slíkt
úr „þjóðmálaumræðunni" og stund-
um fer það svo, að þeir sem mest
fullyrða eða taka upp í sig, 'af mis-
mikilli þekkingu, verða ofan á í
Geir H. Haarde
„Opinberar umræður
hér á landi um yfir-
gripsmikil mál eiga það
til að einkennast af full-
yrðingum án raka. Allir
þekkja dæmi um slíkt
úr „þjóðmálaumræð-
unni“ og stundum fer
það svo, að þeir sem
mest fullyrða eða taka
upp í sig, af mismikilli
þekkingu, verða ofan á
í stríðinu um athygli
almennings og fjöl-
miðla.“
stríðinu um athygli almennings og
fjölmiðla.
I skrifum um virðisaukaskattinn
að undanförnu hefur gætt þessarar
alkunnu tilhneigingar. Það er til
dæmis fullyrt án frekari skýringa
að virðisaukaskattur sé „dæmigerð-
ur krataskattur", þótt auðvelt sé
að fá upplýsingar um að ríkisstjóm-
ir hægri flokka víða í Vestur-
Evrópu hafa beitt sér fyrir upptöku
hans.
Það er fullyrt að skriffinnska
muni margfaldast í hinu nýja kerfi
vegna rúmlega tvöfalt fleiri inn-
heimtuaðila, þótt sýnt hafi verið
fram á að fjöldi skattskýrslna eykst
ekki að neinu marki, þar sem upp-
gjörstímabil verða helmingi færri
en nú er. Að auki verða skattskýrsl-
umar mun einfaldari en nú.
Reynsla Dana og
Norðmanna
Það er fullyrt að fyrir norska
þinginu liggi frumvarp um að
hverfa frá virðisaukaskatti og taka
að nýju upp söluskatt, þótt ekkert
frumvarp um það efni liggi þar fyr-
ir né hafi gert. Það sem nýjast
hefur gerst í Noregi í þessu máli
er að dreift var á þinginu 1984—85
skýrlu um virðisaukaskattskerfið
frá Rolf Presthus, sem þá var fjár-
málaráðherra og nú er formaður
Hægri flokksins. í skýrslunni er
lýst ánægju með 15 ára reynslu af
virðisaukaskatti í Noregi oe- hið
sama kemur fram í áliti fjárhags-
nefndar norska þingsins um skýrsl-
una. Osammála þessu áliti og í
miklum minnihluta í nefndinni eru
fulltrúar litlu öfgaflokkanna til
hægri og vinstri í norskum stjóm-
málum.
Einnig hefur verið fullyrt í um-
ræðum um þessi mál, að reynsla
Dana í þessu efni sé þungbær og
að danskir kaupsýslumenn ljúki upp
einum munni um hversu slæmt
kerfið sé. Ég get ekki fullyrt hvað
einstakir kaupsýslumenn kunna að
hafa sagt, en í kynnisferð sem
skipulögð var í haust fyrir fulltrúa
samtaka atvinnulífs og vinnumark-
aðar til Danmerkur kom þveröfug
afstaða fram hjá samtökum kaup-
sýslumanna. Eins og raunar öllum
öðrum aðilum, sem rætt var við í
þeirri ferð, hvort heldur var um að
ræða samtök launþega, atvinnurek-
enda eða stjómvöld. Það verður svo
auðvitað hver að gera það upp við
sjálfan sig, hvort meira mark er
takandi á upplýsingum þessara að-
ila en því sem einstakir kaupmenn
kunni að hafa sagt yfir búðarborðið
hjá sér.
Málefnaleg umræða
Þannig mætti halda áfram að
tína til fullyrðingar sem ekki er
stoð fyrir, en menn hafa látið frá
sér fara í hita baráttunnar gegn
virðisaukaskatti á síðum blaðanna.
Ég get vel skilið að margir séu á
báðum áttum varðandi þessa breyt-
ingu. Ég var það eitt sinn sjálfur,
en ég hef skipt um skoðun eftir að
hafa kynnt mér þessi mál betur og
kynnst í íjármálaráðuneytinu því
ófremdarástandi sem hér ríkir varð-
andi söluskattinn.
í þessu máli sem öðrum verða
menn að kynna sér málavöxtu af
sanngirni og taka afstöðu á grund-
velli efnisatriða málsins. Fullyrðing-
ar á borð við þær, sem ég hef hér
hrakið, greiða ekki fyrir málefna-
legum umræðum. Það gera tilraunir
stjómarandstöðuflokkanna til að
drepa málinu á dreif ekki heldur.
Höfundur er aðstoðarmaður fjár-
málaráðherra.
Fréttabréf úr Árneshreppi:
Færð ótrygg, en
furðanlega oft er
f logið á Strandir
Auðfúsugestur í skammdeginu, Arnarflugsvél á Gjögurflugvelli.
Amesi.
VEÐRÁTTAN hefur verið hér
stirð að undanförnu, sem annars
staðar á Vestfjarðarkjálkanum,
gengið á með éljum og foki og
færð því ótrygg.
Amarflug hefur þó ekki látið deig-
an síga, og er mesta furða, hvað
þeim tekst að fljúga hingað í mis-
jöfnu veðri. Heyrst hafði að innan-
landsflug þeirra myndi leggjast af í
nóvember og þóttu það hin mestu
ótíðindi. Eitthvað hefur rætst úr fyr-
ir þeim Amarflugsmönnum því enn
er flogið, sem betur fer, þökk sé
þeim fyrir góða og lipra þjónustu.
Nú á haustdögum var slátrað um
3.800 fjár í nýju sláturhúsi Kaup-
félags Strandamanna, Norðurfírði.
Meðalfallþungi dilka var 16,17 kg.
Auk þess voru um 800 líflömb seld
héðan úr sveitinni, en líflambasala
hefur ávallt verið nokkur undanfarin
haust. Að þessu sinni fóru lömbin
flest suður á Barðaströnd, auk
Skagaijarðar og Svarfaðardals
nyrðra.
Að undanfömu hafa „bréfin" verið
að berast til bænda frá Framleiðslu-
ráði. Fá flestir bændur þetta 3-12%
skerðingu á bústofni sínum, eftir við-
miðunarári.
Nú er meðalbúið í Ámeshreppi um
200-220 ærgildi, svo af litlu sýnist
að taka, auk þess sem ekki er hér
hlaupið yfir í aðrar búgreinar. Þótt
einhver lagfæring fáist, er þessi þró-
un ærið áhyggjuefni fámennri byggð.
Saltfískverkun var með mesta
móti, eða 30 tonn af fullverkuðum
fiski hjá kaupfélaginu. Auk þess salt-
aði Lýður Hallbertsson frá Skaga-
strönd talsvert í Djúpuvík.
Fólksfækkun varð í sveitinni í
haust. Guðmundur Jónsson, bóndi í
Stóru-Ávík flutti búferlum suður á
Akranes ásamt fjölskyldu sinni, alls
7 manns. Er mikil eftirsjá að því
ágæta fólki. En ekki tjóar um slíkt
að fást, og skal því fjölskyldunni
óskað alls velfamaðar á nýjum vett-
vangi.
Nokkrar framkvæmdir hafa verið
í sveitinni að undanfömu og skal
þeirra helstu getið:
Á haustdögum fluttist fjölskyldan
að Kjörvogi í nýreist íbúðarhús.
Stendur það við þjóðveginn ofan við
gamla bæjarhólinn. Þá hefur bama-
skólinn að Finnbogastöðum fengið
góða andlitslyftingu, þar sem skólinn
var klæddur að utan og á hann lagt
nýtt þak.
Einnig hefur íbúð skólastjóra verið
talsvert lagfærð og er unnið að
stækkun hennar.
Ámeskirkju var talsvert löguð,
húsið rétt af og grunnur endurhlað-
inn. Þá var gólf endumýjað og
einangrað og ný fótstykki og þver-
bönd lögð.
Morgunblaðið/Einar J.
Áður hefur nýs sláturhúss verið
getið. Sveitarstjóm hefur í samvinnu
við Orkubú Vestfjarðar, stofnað til
útiljósa á hveiju lögbýli í sveitinni.
Bera þau góða birtu og er þetta
menningarframtak hið lofsverðasta.
Nú er komið fram á aðventu og
innan skamms hringja klukkur til
hátíðar gleði og friðar. Við Ámes-
hreppsbúar sendum vinum og
kunningjum okkar bestu óskir um
gleðilega jólahátíð.
Einar.