Morgunblaðið - 20.12.1986, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986
Plnr^mi Útgefandi Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakið.
Sakharov
til Moskvu
Sovésk stjórnvöld hafa nú
skýrt frá því, að hjónunum
Andrei Sakharov og Yelenu
Bonner verði leyft að halda til
Moskvu úr útlegðinni í Gorkí. Þar
hafa þau dvalist síðan 1980 við
þröngan kost og stöðug óþægindi
frá sovésku öryggislögreglunni
KGB. Oftar en einu sinni hefur
Sakharov farið í hungurverkfall
í því skyni að brjóta ofríki Kreml-
veija á bak aftur. Með þeim hætti
tókst honum að koma því til leið-
ar á síðasta ári, að eiginkona sín
fengi að leita sér lækninga á
Vesturlöndum.
Andrei Sakharov, sem fékk
friðarverðlaun Nóbels árið 1975,
hefur á undanfömum ámm verið
helsta lifandi tákn þess mikla
Qölda fólks, sem sætir ofsóknum
vegna skoðana sinna í Sovétríkj-
unum. Hann hefur aldrei bognað
og í frásögnum hans, sem var
smyglað frá Gorkí til Vesturlanda
á síðasta vetri, kemur fram, að
hann hefur hvorki gefíst upp fyr-
ir ógnunum né blíðmælgi KGB.
Yelena Bonner hefur með mikilli
reisn staðið við hlið eiginmanns
síns í baráttunni fyrir mannrétt-
indum. Eftir að hafa gengið undir
aðgerðir vegna augnsjúkdóms og
hjartveiki á Vesturlöndum, sneri
hún aftur til Gorkí fyrir um það
bil hálfu ári.
í hinu lokaða sovéska stjóm-
kerfí em ekki gefnar opinberar
skýringar á því, hvað veldur
stefnubreytingu af því tagi, sem
nú blasir við í máli Sakharov-
hjónanna. Hitt er ljóst, að við
Vesturlandabúar fáum að lokum
fréttir um það, hvemig það bar
að gagnvart útlögunum í Gorkí,
að Andrei Sakharov var leyft að
fara til Moskvu og Yelena Bonner
var sýknuð af þeim sökum, sem
á hana hafa verið bomar. Þau
hjón hafa sýnt ótrúlega hug-
kvæmni í því að láta boð berast
frá sér í útlegðinni og eftir endur-
komu þeirra til Moskvu verður
auðveldara en áður að fá af þeim
fréttir.
Það var Vladimir F. Petrovsky,
aðstoðamtanríkisráðherra, sem
sagði frá breyttum högum Sak-
harov-hjónanna. Hafði verið
boðað til blaðamannafundar í
Moskvu í því skyni að skýra þá
breytingu á stefnu Sovétstjómar-
innar, að hún ætlaði að heija
tilraunir með kjamorkuvopn að
nýju á næsta ári, eftir að Banda-
ríkjamenn sprengdu fyrstu til-
raunasprengju sína þá. Á að líta
þannig á, að tengsl séu á milli
þessara ákvarðana hjá Kremlveij-
um? Er Sakharov-málið til marks
um breytta stefnu Sovétstjómar-
innar í mannréttindamálum? Uta
Kremlveijar þannig á, að tiltölu-
lega mikil þögn um Sakharov-
hjónin á Vesturlöndum undan-
famar vikur hafí skapað
hæfílegar aðstæður til að láta þau
laus, án þess að það væri gert
undir beinum þrýstingi? Vilja
Kremlveijar draga athyglina frá
sjö ára afmæli innrásarstríðs
þeirra í Afganistan? Metur Sovét-
stjómin vandræði Bandaríkja-
stjómar vegna íransmálsins
þannig, að í áróðursstríðinu beri
það meiri árangur nú en áður að
binda enda á útlegðina í Gorkí?
Svörin við þessum spumingum
geta orðið jafíi mörg og mennim-
ir, sem svara þeim. Eitt er víst,
að það hefur enn einu sinni sann-
ast, að hávær barátta á Vestur-
löndum í þágu nafngreindra
sovéskra andófsmanna hefur bor-
ið árangur. Eins og áður sagði
hefur Andrei Sakharov verið lif-
andi tákn þeirra sovésku andófs-
manna, sem ekki fá um fíjálst
höfuð strokið. Nefndir hafa verið
stofnaðar til stuðnings honum
víða um lönd. Nýlega var til dæm-
is skýrt frá því, að Heimdallur,
félag ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík, hefði hug á að reisa
honum og kröfunni um frelsi hon-
um til handa bautastein á
Landakotstúni í nágrenni sovéska
sendiherrabústaðarins.
Eftir að hin óvænta tilkynning
barst frá Moskvu, hafa formæl-
endur mannréttinda og stjóm-
málamenn um allan hinn fíjálsa
heim fagnað henni. Á hitt er jafn-
framt minnt, að óljóst sé, hvemig
högum Sakharov-hjónanna verði
háttað í Moskvu. Baráttunni fyrir
frelsi þeirra og annarra þegna
Sovétstjómarinnar lýkur ekki,
fyrr en þeir eru í raun og sann-
leika frjálsir. Um það hefur
löngum verið deilt, hvað felst í
orðinu „frelsi". Þær deilur verða
vonandi aldrei til lykta leiddar.
Þær ættu þó að vera úr sögunni
í opinberum samskiptum austurs
og vesturs. Hvað svo sem segja
má um þá fundi, sem efnt er til
undir merkjum Helsinki-sam-
þykktarinnar frá 1975, hefur
grundvallarskjalið sjálft að
geyma skilgreiningu á mannrétt-
indum og frelsi, sem Sovétstjómin
féllst á með undirskrift Leonids
Brezhnev. Ofsóknir KGB á hend-
ur Sakharov eiga ekki síst rætur
að rekja til þess, að hann hefur
einarðlega krafíst þess, að Kreml-
veijar virði mannréttindaákvæði
Helsinki-samþykktarinnar í verki.
Um leið og því er fagnað að
Andrei Sakharov og Yelena Bonn-
er eru laus úr útlegðinni, er
ítrekuð afdráttarlaus ósk um að
þau fái að ferðast út úr Sovétríkj-
unum, kjósi þau það, og segja og
gera það, sem þau sjálf ákveða.
ífetaidMináÐ
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
Nærri má geta að Jesús Krist-
ur hafí staðið nokkuð óljós fyrir
hugarsjónum þeirra forfeðra
okkar sem tóku trú á hann fyrir
þúsund árum. Eða ætti ég
kannski heldur að segja að þeir
hafí séð hann í öðru ljósi en af-
komendumir?
Af fátæklegum myndlistar-
leifum má fremur greina Krist
kórónaðan konung en þymi-
krýndan píslarvott. Kveðskapur
sá, sem leifst hefur, er einnig
til marks um þetta. Aldamóta-
skáldið Eilífur Guðrúnarson orti
að vonum bæði um Þór og Krist.
Þórsdrápa hans er einna tor-
skildust allra dróttkvæða, og er
þá mikið sagt. Af Kristsdrápu
Eilífs þessa, sem kenndur var
til móður sinnar, hefur nú ekki
geymst nema hálf vísa, eða er
þetta kannski stefíð í drápunni?
Setbergs kveða sitja
sunnr at Urðarbrunni.
Svá hefr ramr konungr remmdan
Róms banda sik löndum.
Þetta er þann veg að skilja,
að menn telji Krist sitja suður
við Urðarbrunn og hafí svo hinn
voldugi konungur Rómaborgar
eflt sig með því að leggja undir
sig heiðin lönd. Verður að virða
skáldi þessa tíma til vorkunnar,
þótt hann blandi saman Urðar-
bmnni og Jórdanarfljóti og láti
Krist vera landvinningakonung
í Róm, enda vitum við lítt hvað
Eilífí hinum föðurlausa hefur
verið kennt. Hér á landi var og
löngum spurt hvor væri máttk-
ari, Kristur eða Þór.
„Fjórtán vetrum eða fímmtán
fyrr en kristni kvæmi hér á ís-
landi“, var suðureyskur maður,
mæltur á norrænu, í förum til
Grænlands, og varð mikill sjáv-
arháski. Brotsjóimir birtust
honum sem garðar á hafínu, og
hann orti Hafgerðingadrápu.
Enn er aðeins til brot, og sést
nú hrynhendur háttur í fyrsta
sinni.
Mínar biðk að munka reyni
meinalausan farar beina.
Heiðis haldi hárar foldar
hallar dróttinn of mér stalli.
Hér er Kristur (eða er það
Guð faðir?) ekki eins hermann-
legur og hjá Eilífí. Hann er
konungur (dróttinn) hallar hárr-
ar foldar (himnaríkis) og munka
reynir, svo að einhvem pata
hefur hinn skáldmælti Suðurey-
ingur haft af klausturlífí.
Skafta Þóroddssyni (lögsögu-
maður á íslandi 1004—1030)
gekk, eins og Eilífí, illa að skilja
Krist frá Rómaborg, og er frels-
arinn mikill byggingameistari í
huga lögsögumannsins:
Máttr es munka dróttins
mestr, ræðr guð flestu.
Kristr skóp rikr ok reisti
Róms höll veröld alla.
Líða nú tímar fram. Verður
Kristur þymikrýndur á róðu-
krossum og drúpir höfði. Skáld
sjá hann fyrir sér píslarvott og
endurlausnara, en kóngur hefur
hann að sjálfsögðu Iengi verið
með íslendingum, „kóngur engl-
anna, kóngur vór, kóngur
almættis tignarstór". (Hallgr.
Pétursson: Ps. 27.)
Kolbeinn Tumason Ásbiming-
ur á Víðimýri (1173—1208) var
að vísu ekki mjög biskupsbljúg-
ur, en þeim mun Kristhollari.
Hann bað þess á banadægri að
Kristur blési sér fögmm hug-
sjónum í bijóst, enda væri allt
hjálpræði frá honum komið:
Gæt þú, mildingr, mín,
mjök þurfum þín
helst hveija stund
á hölda grund.
Send þú, meyjar mögr,
málsefnin fögr
- öll er hjálp af þér -
í hjarta mér.
368. þáttur
Og óþekktur höfundur biður
Krist þessarar fögm bænar í
kvæði sem hlotið hefur nafnið
Líknarbraut:
Þrifgæðir, láttú, þjóðar,
þíns anda mér skína
ástar ljós, sem ek æsti,
albjart í sal hjarta,
þat er misverka myrkrum
minna hrindi, svó blindi
míns úr mælsku túni
móðs vandliga hijóði.
En þessa bæn er svo að skilja,
að skáldið biður Krist (sem gæð-
ir þjóð þrifum) að láta albjart
ljós sitt skína í hjarta sínu og
rýma gjörsamlega burtu úr huga
sér allri blindni, öllu myrkri, öll-
um misgjörðum og syndsamleg-
um hugrenningum.
í Líknarbraut er Kristur í
senn konungur og píslarvottur
og fær einnig hina stórskemmti-
legu einkunn siðnenninn. En
ætli það sé ekki við hæfí að ljúka
þessum þætti með því að vitna
til þess kvæðis sem allir vildu
kveðið hafa, Lilju. Um Júdas
ískarot segir þar meðal annars:
Mildan guð við silfri seldi
sveitum þeim er Júðar heita,
fullum upp af grimmdargalli,
grenjaði þjóstr í þeirra bijósti.
Og Eysteinn munkur biður
Krist þann veg fyrir sér:
Laust aldrigi lát mig, Christe,
lastavinds í byljakasti.
Tyfta mitt og tem sem oftast
tendrað bijóst með líknarvendi,
svó að grátandi fúss að fótum,
faðir skínandi, kijúpa eg þínum,
hvert það sinn er eg kulda kenni
kostalauss af glæpafrosti.
Að svo skrifuðu óskar um-
sjónarmaður ykkur öllum gleði-
legra jóla.
Andrei Sakharov:
Framfarir og skil
ur óhugsandi án f
Moskvu, Reuter, AP.
VESTURLANDABÚAR lofa Andrei Sakharov fyrir mannréttinda-
baráttu hans en í Sovétríkjunum er hann talinn svikari. Sakharov,
sem er kjarneðlisfræðingur að mennt, vann að þróun og smíði fyrstu
vetnissprengju Sovétmanna árið 1953 og hlaut mikið lof fyrir. Síðar
varð hann helsti talsmaður mannréttindahreyfingarinnar i Sovétríkj-
unum og var dæmdur í útlegð. Þegar hann hlaut Friðarverðlaun
Nóbels árið 1975 fyrir mannréttindabaráttu sina sagði Sovétstjórnin
þá ákvörðun vera „í anda kalda striðsins“ og lýsti Sakharov sem
„fasista" sem hefði saurgað þjóðlífið.
Andrei Sakharov, sem er 65 ára
gamall, er í hugum margra sam-
nefnari fyrir þann hóp andófs-
manna sem hóf mannréttindabar-
áttu í Sovétríkjunum seint á sjöunda
áratugnum. Flestir voru þeir sendir
í útlegð, vinnubúðir eða lagðir inn
á geðveikrahæli. Hann hélt reglu-
Iega fréttamannafundi í íbúð sinni
í Moskvu þar sem hann skýrði frá
örlögum andófsmanna og þeim
fréttum var miðlað til hins fíjálsa
heims.
í útlegð til Gorkí
Þegar Sakharov gagniýndi innr-
ásina í Afganistan þótti sovéskum
ráðamönnum mælirinn fullur. Hann
var sviptur þeim viðurkenningum
sem hann hafði hlotið sem vísinda-
maður og dæmdur í útlegð til
borgarinnar Gorkí við Volgubakka.
Heimili hans í Gorkí var vaktað
alian sólarhringinn en inn fyrir
múra þeirrar borgar mega engir
útlendingar stíga. Ferðafrelsi eigin-
konu hans, Yelenu Bonner, var
takmarkað í maímánuði árið 1984
þegar hún var einnig dæmd í út-
legð, en fram að þeim tíma hafði
hún fengið að ferðast til Moskvu.
í útlegðinni lýsti Sakharov því
yfír að hann óskaði þess að fá að
flytjast úr landi. Fyrr á þessu ári
sagði Mikhail S. Gorbachev Sovét-
leiðtogi að ekki kæmi til greina að
veita Sakharov fararleyfí þar sem
honum væri kunnugt um ýmis trún-
aðarmál, sem vörðuðu öryggis-
hagsmuni Sovétríkjanna.
Hungurverkföll voru einu vopnin
sem sovéskum ráðamönnum tókst
ekki að slá úr höndum þeirra hjóna.
Árið 1984 hóf Sakharov hungur-
verkfáll til að þrýsta á stjómvöld
um að gefa eiginkonu sinni farar-
leyfí til Vesturlanda til að leita sér
lækninga. Sigur vannst að lokum
og í desember 1985 hélt Yelena
Bonner til Ítalíu og síðan til Banda-
ríkjanna.
Glæstur ferill
Sakharov stundaði nám við
Moskvuháskóla og lauk doktors-
prófí aðeins 26 ára gamall. Árið
1948 var hann valinn ásamt Igor
Tamm til að vinna að smíði fyrstu
vetnissprengju Sovétmanna. Ráða-
menn þar eystra höfðu miklar
áhyggjur af forskoti Bandaríkja-
manna á sviði gereyðingarvopna og
því var gerð eins konar „neyðará-
ætlun" til að brúa bilið. Það tókst